Fréttablaðið - 25.02.2006, Side 24
25. febrúar 2006 LAUGARDAGUR24
timamot@frettabladid.is
Tilkynningar um merkis-
atburði, stórafmæli, andlát og
jarðarfarir í smáletursdálkinn
hér á síðunni má senda á net-
fangið timamot@frettabladid.
is.
Auglýsingar á að senda á
auglysingar@frettabladid.is
eða hringja í síma
550 5000.
Hjartans þakkir til allra þeirra sem sýndu
okkur hlýhug og vináttu við andlát og útför
föður okkar og bróður,
Gylfa Gíslasonar
teiknara og myndlistarmanns.
Margrét Þóra Gylfadóttir
Kristín Edda Gylfadóttir
Unnur Kristbjörg Gylfadóttir
Freyja Gylfadóttir
Þorkell Snorri Gylfason
Kristín Eiríka Gísladóttir og fjölskyldur.
TENNESSEE WILLIAMS (1911-1983)
LÉST ÞENNAN DAG.
„Ekki hlakka til dagsins þegar
þú hættir að þjást, því þegar
hann kemur veistu að þú er
dauður.“
Tennessee Williams var bandarískt
leikritaskáld. Meðal frægra verka hans er
Sporvagninn Girnd.
Á þessum degi árið 1964 varð
hinn 22 ára hnefaleikakappi
Cassius Clay heimsmeistari í
hnefaleikum þegar hann sigraði
Sonny Liston öllum að óvörum
í hnefaleikakeppni í Miami.
Liston, sem af mörgum var
talinn ósigrandi, gafst upp eftir
sex lotur. Þegar bjallan hringdi
inn sjöundu lotuna sat Liston
áfram í sínu horni og neitaði að
berjast áfram.
Fyrir leikinn hafði Clay verið
sektaður fyrir slæma framkomu
en hann hafði veist að hinum
32 ára Liston við vigtun þeirra.
Clay fékk að halda heimsmeist-
aratitlinum en rannsókn var
gerð á viðureigninni enda þótti
sigur Clay nokkuð vafasamur.
Var talað um að svik væru
í spilunum bæði í þessari
keppni og þegar þeir Clay og
Liston mættust á ný ári síðar.
Þá sigraði Clay með rothöggi í
fyrstu lotu.
Stuttu eftir sigurinn kom
hann hnefaleikasamtökunum
á óvart með því að tilkynna að
hann væri genginn til liðs við
íslamstrúarhóp en Clay varð
síðar þekktur undir nafninu
Muhammad Ali.
Ferill hans spannaði tuttugu
ár. Á þeim tíma sigraði hann 56
sinnum og átti 37 rothögg.
ÞETTA GERÐIST > 25. FEBRÚAR 1964
Cassius Clay krýndur heimsmeistari
CASSIUS CLAY
MERKISATBURÐIR
1570 Elísabet I Englandsdrottning
er bannfærð af Píusi páfa V.
1956 Nikita Krúsjeff heldur
þrumandi ræðu á þingi
kommúnista. Þar lýsir hann
andúð sinni á stjórnmála-
stefnu Stalíns.
1964 Teikning eftir Sigmund
Jóhannsson birtist í fyrsta
sinn í Morgunblaðinu,
en hún er af landgöngu í
Surtsey.
1966 Bandaríska söngkonan
Ella Fitzgerald kemur til
landsins og heldur tónleika
í Háskólabíói.
1986 Corazon Aquino verður
forseti Filippseyja eftir að
Ferdinand Marcos flýr land.
2000 Þrír látast og sjö slasast
alvarlega í árekstri jeppa og
rútu á Kjalarnesi.
Fjallað verður um hjónaband og sam-
búð með fræðslu, gleði, tónlist og bæn í
fyrstu messu um það efni sem haldin
verður í Garðakirkju á Álftanesi á
sunnudaginn 26. febrúar klukkan 20.00.
Prestarnir Jóna Hrönn Bolladóttir og
Friðrik J. Hjartar standa að baki þess-
um nýju messum sem verða haldnar til
skiptis í Garða- og Bessastaðakirkju en
báðar eru þær geysilega vinsælar fyrir
brúðkaupsathafnir.
„Fjölskyldan er mikilvægasta stofn-
un samfélagsins og byggir á sambúð
eða hjónabandi foreldranna. Mikilvæg-
ustu stoðirnar eru ástin, trúfestan og
virðingin sem er nauðsynlegt að rækta,“
segir Jóna Hrönn, sem fannst mikil-
vægt að kirkjan kæmi með tilboð um
þjónustu sem hjálpar sambúðarfólki og
hjónum að rækta þessar stoðir.
Friðrik hefur orðið þess áskynja að
fólk telji sambúð og hjónaband jafn-
gild. „Ég vona að sambúðarmessurnar
verði til þess að sambúðarfólk leggi
meira inn í samband sitt, sem þá mun
gefa meira til baka og grunnur þess
treystast,“ segir Friðrik. Þó ekki sé
ætlunin með þessu uppátæki að hvetja
fólk til hjónabands segir Friðrik það
jákvætt ef messurnar verði til þess að
pör kanni réttarstöðu sína.
Jóna og Friðrik stefna að því að gera
messurnar skemmtilegar með gleði og
söng jafnhliða fræðslu og bæn. Í hverri
messu munu fyrirlesarar miðla af fróð-
leik og gott tónlistarfólk leiðir lofgjörð-
ina. „En mest er um vert að við ætlum
að standa saman um að rækta hið dýr-
mæta samband sem hjónaband og sam-
búð er svo sannarlega,“ segir Jóna
Hrönn og tekur fram að allir séu vel-
komnir og þar sé aldur og kynhneigð
engin fyrirstaða.
Friðrik telur að svo náið samband
sem hjónaband og sambúð er geti tví-
mælalaust sótt sér styrk í starf kirkj-
unnar og kristin gildi. „Það er til dæmis
ekki sjálfsagt að sambúðaraðilar sjái
það fyrir að makinn kunni að hafa galla,
sem koma í ljós við nánari kynni,“ bend-
ir Friðrik á en kirkjan sé ágætis vett-
vangur til að læra að breiða yfir galla
makans og draga fram kostina.
Annað kvöld verða hjónin séra Vig-
fús Bjarni Albertsson og Valdís Ösp
Ívarsdóttir með fræðslu um mikilvægi
samtalsins í sambúð fólks. Ómar Guð-
jónsson gítarleikari leiðir tónlistina
ásamt Eyjólfi Þorleifssyni saxófónleik-
ara og Anna Sigríður Helgadóttir syng-
ur. ■
BESSASTAÐA- OG GARÐASÓKN: HJÓNA- OG SAMBÚÐARMESSUR
Ást, trúfesta og virðing
VIÐ GARÐAKIRKJU Prestarnir Jóna Hrönn Bolladóttir og Friðrik J. Hjartar standa fyrir sérstökum mess-
um um hjónaband og sambúð. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
Nýja bílahúsið við Laugaveg 86-94, sem
opnað var í lok nóvember, hefur hlotið
nafnið Stjörnuport.
Bílastæðasjóður stóð fyrir nafna-
samkeppni og bárust tillögur frá tæp-
lega 1.800 manns þar sem ríflega þús-
und nöfn voru tilgreind. Rúmlega
helmingur þeirra fól í sér einhverja
orðmynd af stjörnu sem vísar til þess
tíma þegar Stjörnubíó stóð á lóðinni.
Eftir umfjöllun nafnanefndar varð
fyrir valinu nafnið Stjörnuport sem
heiti á nýja húsinu. Nokkrar tillögur
höfðu borist með því nafni og var dreg-
ið úr nöfnum þeirra sem áttu þá til-
lögu.
Hinn heppni vinningshafi er Heimir
Bergmann Hauksson. Hann hlaut í
verðlaun Gjafabréf miðborgar að upp-
hæð 50.000 krónur.
Nýtingin á bílahúsinu hefur verið
góð frá fyrsta degi. Gjald hefur ekki
verið tekið fyrir stæðin til þessa, en
verðskrá hefur verið ákveðin og munu
skammtímastæði kosta 80 krónur fyrsta
klukkutímann og síðan 10 krónur fyrir
hverjar byrjaðar 12 mínútur, sem þýðir
að eftir fyrsta klukkutímann er tíma-
gjaldið 50 krónur. Langtímastæði verða
leigð í neðsta kjallaranum og kosta þau
5.600 krónur á mánuði. ■
Bílahús fær nafnið Stjörnuport
GLAÐUR NAFNASMIÐUR Heimir Bergmann Hauksson sendi inn tillögu að nafninu Stjörnuport og
hlaut peningaverðlaun að launum.
AFMÆLI
Nína Dögg Filipp-
usdóttir leikkona
er 32 ára.
Guðrún Vil-
mundardóttir
leikhúsfræðingur
er 32 ára.
Jón Ólafsson
tónlistarmaður er
43 ára.
Sigurður B. Stef-
ánsson hagfræðing-
ur er 59 ára.
Þorsteinn Eggerts-
son tónlistarmaður
er 64 ára.
ANDLÁT
Kristbjörg Pétursdóttir, fyrr-
verandi kennari, Holtagerði 84,
Kópavogi, andaðist á hjúkrunar-
heimilinu Sunnuhlíð þriðjudaginn
21. febrúar.
Anna Steindórsdóttir Haarde,
Aflagranda 40, Reykjavík, lést
miðvikudaginn 22. febrúar.
Gróa Bjarney Helgadóttir, Skúla-
götu 20, Reykjavík, lést á líknar-
deild Landspítalans í Kópavogi
miðvikudaginn 22. febrúar.
Þráinn Jónsson, Ekrusíðu 9,
Akureyri, lést á Fjórðungssjúkra-
húsinu á Akureyri miðvikudaginn
22. febrúar.
JARÐARFARIR
11.00 Högni Klemensson, Sunnu-
braut 9, Vík í Mýrdal, verður
jarðsunginn frá Víkurkirkju.
13.00 Aðalheiður V. Steingríms-
dóttir, Hjallahlíð 4, Mos-
fellsbæ, verður jarðsungin
frá Lágafellskirkju.
13.30 Ástríður I. Sigurðardóttir,
áður til heimilis í Álftarima
11, Selfossi, verður jarð-
sungin frá Selfosskirkju.
14.00 Hreinn Þorvaldsson,
Skagfirðingabraut 49, Sauð-
árkróki, verður jarðsunginn
frá Sauðárkrókskirkju.
14.00 Jón Pálmi Rögnvaldsson
matsveinn, Hvanneyrar-
braut 42, Siglufirði, verður
jarðsunginn frá Siglufjarðar-
kirkju.
14.00 Reynir Böðvarsson,
Breiðabóli, Eyrarbakka,
verður jarðsunginn frá
Eyrarbakkakirkju.
14.00 Tómasína Elín Olsen,
Hraunbæ 103, verður
jarðsungin frá Landakirkju í
Vestmannaeyjum.
Eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
Björn M. Loftsson
Drápuhlíð 42, Reykjavík,
lést þriðjudaginn 21. febrúar. Útför hans fer fram
frá Háteigskirkju mánudaginn 6. mars kl. 13.00.
Kristín Þ. Jónsdóttir
Jón Loftur Björnsson
Guðni Björnsson Helena Hákonardóttir
Yngvi Björnsson Guðrún A. Sigurðardóttir
Daníel B. Yngvason