Fréttablaðið


Fréttablaðið - 25.02.2006, Qupperneq 33

Fréttablaðið - 25.02.2006, Qupperneq 33
 Heimild: Almanak Háskólans Smáauglýsingasími 550 5000 Auglýsingasími Allt 550 5880 Þú getur pantað smáauglýsingar á visir.is FASTEIGNIR HEIMILI HEILSA HÚS BÖRN NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR TÍSKA ATVINNA BRÚÐKAUP TILBOÐ O.FL. Hátíð verður hjá Bernhard bíla- umboðinu í Vatnagörðum um helgina. Þar verður meðal annars frumsýndur glænýr Honda Civic sem hefur fengið nýtt útlit frá toppi til táar. Einnig verður endur- bætt Honda Accord frumsýnd. Opið verður frá 12 til 16 í dag en frá 13 til 16 á morgun. Bændaferðir standa fyrir ferð á lokatónleika blúsarans B.B. King sem fram fara í Birmingham eftir rúman mánuð. Enn eru til örfáir miðar en frekari upplýsingar má nálgast á heimasíðu Bænda- ferða, baendaferdir.is. Hermannaföt virðast aftur vera að komast í tísku, þá sérstaklega hjá strákum. Svo virðist alltént vera ef marka má eitthvað af þeim fjölmörgu tískusýningum sem farið hafa fram nýlega. Passa verður þó upp á að fara ekki of hefðbundnar leiðir heldur má aðeins hressa upp á þetta annars staðn- aða snið. ALLT HITT [ TÍSKA, BÍLAR, FERÐIR ] Forstjóri Umferðarstofu, Karl Ragnars, er með tvo bíla á heimili sínu. Hann segist ekki mikill bílaáhugamaður en er þó afar sáttur við báða bílana sína. Á heimili Karls Ragnars, forstjóra Umferð- arstofu, eru tveir forláta bílar, annars vegar ársgömul Toyota Corolla Hatchback og hins vegar fimm ára gamall Subaru Legacy Stat- ion. Alla jafna segir Karl að konan fái að nota Corolluna en að hann noti Lagacyinn við hið daglega amstur. Aðspurður um hvorn bílinn hann myndi velja sér til þess að keyra út í búð segist Karl ekki vilja gera upp á milli barnanna sinna. ,,Þetta eru hvort tveggja ágætir bílar, sem þjóna okkar þörf- um alveg gríðarlega vel.“ Karl segist í gegnum tíðina hafa átt nokkra Subaru bíla. Hann segist þó ekki vera endilega að sækja í japanska bíla. ,,Ég hef aðallega verið að leita eftir því að vera á fjórhjóladrifnum bíl.“ Almennt séð segist Karl ekki vera mikill bíladellukarl. Aðspurður hvort hann hafi frekar áhuga á umferðinni hlær Karl örlítið og segir að það sé nærri lagi. Í umferðinni segir Karl að bílarnir tveir virki afar vel, ,,Já, mikil ósköp.“ Karl er afar ánægður með þróun örygg- ismála í fólksbílum en þar hefur orðið bylt- ing á síðastliðnum áratug. Karl telur ein- mitt upp öryggið sem einn af aðalkostum bílanna tveggja. ,,Þeir eru báðir með ABS- bremsur, mér finnst það mjög gott. Það er enginn vafi að öryggið hafi aukist mikið með tilkomu þeirra. Maður er hættur að skrensa til þversum í hálku þegar stigið er á bremsuna,“ segir Karl og telur einnig upp fleiri þætti í öryggi nýrra bíla sem hafa stórbatnað að undanförnu. ,,Það er enginn vafi á því að bílaframleiðslan öll hefur orðið við síauknum kröfum um aukið öryggi.“ steinthor@frettabladid.is Ánægður með örugga fjölskyldubíla Sólarupprás Hádegi Sólarlag Reykjavík 8.49 13.41 18.33 Akureyri 8.39 13.25 18.13 GÓÐAN DAG! Í dag er laugardagurinn 25. febrúar, 56. dagur ársins 2006. BÍLL FYRIR FAGURKERA BMW X3 er nettur og skemmtilegur lúxus- jepplingur. Hann er lipur hvort heldur sem er á beinum og breiðum vegi og í borgarakstrinum. BÍLAR 2 GYRTIR STRÁKAR Nú eiga strákar að vera óhræddir við að gyrða sig, það er jafnvel orðið svalt. TÍSKA 5 Vátryggjandi er Tryggingamiðstöðin hf. Karl Ragnars, forstjóri Umferðarstofu, er einstaklega ánægður með bílana sína tvo. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.