Fréttablaðið - 25.02.2006, Síða 36
25. febrúar 2006 LAUGARDAGUR4
Í liðinni viku héldu fimm íslensk-
ir jeppamenn til Kanada til að
hefja heimskautaferð á tröllvöxn-
um jeppum sínum. Leiðangurinn
er farinn í tvíþættum tilgangi.
Annars vegar til að fagna því að
100 ár eru liðin síðan heimskauta-
farinn Vilhjálmur Stefánsson
lagði fyrst í leiðangur á þessum
slóðum. Hins vegar til að kynna
fyrir íbúum svæðisins hvað
Íslendingar hafa verið að gera
með jeppum hér á landi, sér í lagi
á snjó og jöklum.
„Einn heimamanna sagði við
leiðangursstjórann að ef okkur
tækist þetta, væri blað brotið í
samgöngusögu svæðisins. Einu
farartækin sem íbúar þess nota
núna eru snjóbílar, túndruböggí-
ar og snjósleðar. Við verðum
fyrstir til að keyra bíla þessa leið
sem við förum,“ segir Halldór
Sveinsson, einn leiðangurs-
manna.
Hugmyndin að ferðinni varð
til hjá leiðangursstjóranum,
Ómari Friðþjófssyni, fyrir
nokkrum árum. Hann hafði lesið
mikið um og eftir Vilhjálm Stef-
ánsson og fyrir þremur árum fór
undirbúningur af stað fyrir þessa
ferð. „Stefán var frumkvöðull,“
segir Halldór. Vilhjálmur mun
eiga afkomendur á þessum slóð-
um. Leiðangursmenn hafa hitt
ekkju hans sem er mörgum ára-
tugum yngri en Vilhjálmur og líst
henni vel á ferðina. „Vilhjálmur
nýtti sér bestu og fullkomnustu
tækni síns tíma og hefði örugg-
lega kosið þennan fararmáta í
dag.“
Leiðangursmenn leggja mikla
áherslu á að kynnast íbúum svæð-
isins. „Þeir hafa tekið mjög vel í
þessa ferð. Hluti hópsins hefur
farið tvisvar til Kanada að ræða
við heimamenn og fá nauðsynleg
leyfi. Inúítarnir hafa skoðað leið-
ina með okkur og við gerðum
breytingar í kjölfarið af því,“
segir Halldór.
Frá Íslandi hélt hópurinn til
Shelburn í Kanada til að sækja
bílana sem voru sendir þangað á
undan þeim. Þaðan liggur leiðin
þvert yfir Kanada um 6-7.000 km
leið að Yellowknife, sem er upp-
hafsreitur heimskautaleiðangurs-
ins. Frá Yellowknife ferðast hóp-
urinn norður á bóginn til
Viktoríueyju sem er nálægt 70.
breiddargráðu. „Við þurfum að
keyra 40 km á ísilögðu hafi til að
komast að eyjunni. Þetta er sá
hluti ferðarinnar sem maður
hugsar einna mest um. Við tökum
stikkprufur með ísbor til að kanna
þykktina og leggjum ekki í neina
tvísýnu. Vilhjálmur kom til þess-
arar eyju á sínum tíma og því var
hún valin sem nyrsti áfanga -
staðurinn ,“ segir Halldór.
Frá Viktoríueyju liggur leiðin
suður aftur, töluvert austar, og
endar í Gimli. Þar ætla Vestur-
Íslendingar að taka á móti leið-
angursmönnum. Ferðin mun taka
um 6-8 vikur. „Við heimsækjum
þorp á leiðinni og vonumst til að
kynnast menningu heimamanna
og jafnvel að kynna Ísland í leið-
inni. Fólk á þessu svæði veit jafn
lítið um Ísland og við um þeirra
heimkynni.“ Ráðgert er að taka
upp 52 mínútna heimildarmynd
um ferðina en einn leiðangurs-
manna er atvinnukvikmyndatöku-
maður.
Frostið á heimskautasvæðinu
er um 30-50 gráður að staðaldri.
Lítið er um vind en Halldór segir
flesta sem þeir hafi hitt hafa verið
með einhverskonar kalbletti. Við
breytingu bílanna var tekið tillit
til þessa mikla kulda. „Við erum
með þrjá nýja Ford 350 bíla sem
var breytt hér á landi fyrir 46“
dekk. Þeir eru með framlæsingar,
auka lágt drif og 400 lítra tanka-
pláss hver. Ein olíumiðstöð sér
um að halda hita á vélinni og far-
þegahúsinu og önnur hitar pall-
húsið. Þar hafa verið útbúin
svefnpláss sem við höfumst við
í,“ segir Halldór. „Við erum líka
með sérsaumað tjald sem við
getum haft yfir öllum bílunum og
hitað upp ef við þurfum til dæmis
að gera við eitthvað.“
Ævintýraþráin er greinilega
rík í þessum ferðalöngum. Hall-
dór sagðist varla standa í báða
fætur af spenningi og hlakkaði
mikið til að komast til Yellowkni-
fe og hefja ferðina, sem verður
líklega 3. eða 4. mars. Hægt er að
fylgjast með þeim köppum á
heimasíðu ferðarinnar sem upp-
færð verður reglulega meðan á
henni stendur. Slóðin er www.arc-
tictrails.com.
Keyra 40 kílómetra á sjó í
átta vikna heimskautaferð
Hópurinn við bílana þegar þeir voru settir í skip. Frá vinstri eru Karl Rútsson, Ómar Frið-
þjófsson leiðangursstjóri, Kristján Kristjánsson, Halldór Sveinsson og Friðþjófur Helgason.
FRÉTTABLAÐIÐ/E.ÓL.
Kort af leiðinni. Gert er ráð fyrir að ferðin taki 6-8 vikur.
Victoria Island
Yellow Knife
Gimli