Fréttablaðið - 25.02.2006, Side 80
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000
60 02 .V .B
s
met sy S
AEKI
re tn I
©
890,-
KASSETT kassar með loki
2 stk. 37x29x17 sm
490,-
DEKAD veggklukka Ø22 sm
MÖRKER vinnulampi
ýmsir litir 390,-
FNISS ruslafata
VINK geisladiskarekki
31x15x16,5 sm 190,-
ORIGINAL
skrifborðsmotta rúnuð 2.990,-
DOKUMENT
minnisblaðabakki
MIKAEL hornvinnustöð
120x120x166 sm 9.950,-
ORIGINAL
músarmotta 190,-
JAGGA skrif/segultafla
56x82 sm 1.990,-
190,-
Laugardaga kl. 10:00 - 18:00 | Sunnudaga kl. 12:00 - 18:00 | Mánudaga - föstudaga kl. 10:00 - 20:00 | www.IKEA.is
Skpiulag
á skrifstofunni...
MIKAEL skúffueining
37x50x70 sm 5.950,-
890,-
190,-
Kryddbakaður lax
með graslaukssósu, kartöflum
og grænmeti
Einn léttur
ÍSKALDUR!
����������
���������
���������������
Sjaldan hef ég haft jafnmikið á tilfinningunni eins og nú að
lífið sé leikrit. Jafnvel fullorðið
fólk við góða heilsu á í megnustu
erfiðleikum með að greina milli
raunveruleika og skáldskapar á
þessum síðustu og verstu. Fólk er
uppvíst að því að hringja ævareitt
inn í þjóðarsálir útvarpanna til
þess að kvarta yfir framferði
leikinna sjónvarpspersóna líkt og
þær séu raunverulegar en ekki
grín.
FÓLK er orðið ruglað í ríminu.
Sigurvegarinn í forkeppni
Eurovision er semsagt leikin per-
sóna og er ekki til sem slík. Þessi
staðreynd hefur verið að síast inn
í þjóðina smám saman. „Nú, já,“
muldra sumir og hrista höfuðið.
„Það var og.“ Þó er ennþá til fólk
sem vill býsnast yfir manneskj-
unni líkt hún sé sönn og með
kennitölu eins og við hin. Karl-
peningurinn hefur meira að segja
kosið hana kynþokkafyllstu konu
landsins, sem er álíka athyglis-
vert og ef kvenfólkið kysi Íþrótta-
álfinn.
TALANDI um hann. Er hann til?
Hver er munurinn á Magnúsi
Scheving og álfinum? Var það álf-
urinn eða Magnús sem sýndi list-
ir sínar frammi fyrir Viktoríu
Svíaprinsessu hér um árið með
heljarstökkum afturábak og
áfram? Álfurinn segi ég. Að álfur
hitti prinsessu er ólíkt ævintýra-
legra. Eins og lesið beint upp úr
sögu eftir H.C. Andersen.
Æ STÆRRI hluti veraldarinnar
er skáldaður. Búinn til. Á ákveð-
inn hátt er það skemmtilegt og
gerir lífið fjölbreytilegra. Oft
fyndið. En stundum verður þó
skáldskapurinn full yfirgripsmik-
ill. Er ekki alþjóðlega peninga-
stofnunin Fitch að velta því fyrir
sér um þessar mundir hvort upp-
gangur íslenska hagkerfisins sé
hugsanlega reistur á tómum leik-
araskap? Menn skiptast á fyrir-
tækjum með þykustupeningum
og kaupa hluti fyrir fé sem þeir
eiga ekki. Kannski vill Fitch
meina að leikstjórinn, þ.e. ríkis-
stjórnin, hafi ekki staðið sig nógu
vel og leikritið sé ekki nógu
sannnfærandi?
NÚTÍMINN snýst um að vera í
karakter. Ekki missa andlitið. Ég
sé ekki betur en að mörgum hafi
tekist að gera það með aðdáunar-
verðum árangri. Umrædd Silvía
Nótt er eitt dæmið, en mér sýnist
þau vera miklu fleiri. Nú þegar
upplýst hefur verið hver það er
sem leikur Silvíu verð ég að segja
að ég brenn í skinninu að vita
hvaða leikkona það er sem leikur
Geir Ólafsson. Og svo mætti
áfram telja. Hvaða snillingur er
að baki persónu eins og Leoncie?
Hver leikur Bubba Morthens? Er
Guðni Ágústsson lokaverkefni í
Leiklistarskólanum sem vatt upp
á sig? Er Baugsmálið spuni? Mun
Björn Bjarnason einhvern tím-
ann fletta af sér latexgrímu og
Laddi kemur í ljós? Hver veit?
Nú ríður á að taka öllu með fyrir-
vara og láta ekki spaugarana
gabba sig. Við erum öll í falinni
myndavél og Strákarnir eru
handan við hornið.
Satt og logið