Fréttablaðið - 15.04.2006, Qupperneq 2
2 15. apríl 2006 LAUGARDAGUR
Takið frá dagana 21.-23. apríl fyrir
stórviðburð í Laugardalshöll
Sumar 2006Laugardalshöll 21.-23. apríl 2006
Glæsileg sumarsýning
Regína Ósk syngur kl. 13:00
á opnun sýningarinnar
föstudaginn 21. apríl.
Silvía Nótt kemur fram ásamt
fylgdarliði kl. 15:00
laugardaginn 22. apríl.
Snorri Snorrason Idol-stjarna
skemmtir kl. 15:00
sunnudaginn 23. apríl.
STJÓRNMÁL Geir H. Haarde, for-
maður Sjálfstæðisflokksins, telur
að minni áherslumunur sé milli
stjórnarflokkanna en látið sé í
veðri vaka og samstarf hans og
Halldórs Ásgrímssonar forsætis-
ráðherra sé mjög traust.
Geir telur að munur á sjónar-
miðum flokkanna varðandi einka-
væðingu sé minni en margur ætli.
„Við höfum sagt að náist sam-
komulag um eignarhald á Lands-
virkjun verði hluti af því fyrir-
tæki með tíð og tíma seldur
langtímafjárfestum eins og til
dæmis lífeyrissjóðunum. Ég held
að það væri mjög skynsamlegt
bæði fyrir lífeyrissjóðina og líka
fyrir ríkissjóð að innleysa hluta af
eign sinni og nota í annað eins og
við erum að gera með andvirði
Símans.“
Geir segir að
svipað eigi við
um rekstur
Keflavíkurflug-
vallar. „Ég hef
talað fyrir því
að stofnað yrði
hlutafélag um
Keflavíkurflug-
völl sem sæi um
rekstur hans með
svipuðu sniði og gerist víða ann-
ars staðar. Spurningin er sú hvort
ríkið eigi að eiga slíkt hlutafélag
um aldur og ævi eða hvort gefa
eigi öðrum kost á að kaupa sig inn
í það á ákveðnu augnabliki. Þetta
er sama spurningin og með Lands-
virkjun. Það er alveg hægt að
hugsa sér það og ég tel skynsam-
legt að gera ráð fyrir því að það
gæti orðið þó að ég sjái ekki að það
sé eitthvað sem gerast ætti strax,“
segir Geir.
Borið hefur á ágreiningi stjórn-
arflokkanna um framtíð Íbúða-
lánasjóðs, en Sjálfstæðisflokkur-
inn hefur lýst áhuga á að breyta
honum í heildsölubanka eða einka-
væða hann með öllu. Geir segir að
á vegum stjórnarflokkanna sé nú
unnið að tillögum um framtíð
sjóðsins. „Ég sé ekki annað en að
um það ætti að geta orðið sam-
staða og vonandi við aðra á fjár-
magnsmarkaðnum vegna þess að
verið er að tala um breytingar á
núverandi hlutverkaskipan. Ég
held að í stjórnarflokkunum sé
viðurkennt að við viljum tryggja
að fólk geti haft aðgang að lánsfé
til þess að eignast þak yfir höfuðið
óháð búsetu eða efnahag. Þetta
eru hin pólitísku sjónarmið sem
gilda um þetta en að öðru leyti
eiga að gilda almennar reglur
lánamarkaðarins.“
sjá viðtal á síðu 20 / johannh@frettabladid.is
GEIR H. HAARDE
Lífeyrissjóðir kaupi
hlut í Landsvirkjun
Geir H. Haarde, formaður Sjálfstæðisflokksins, telur að ágreiningur stjórnar-
flokkanna sé minni en menn láti í veðri vaka. Hann telur skynsamlegt að selja
lífeyrissjóðum hlut í Landsvirkjun og nota andvirðið í önnur verkefni.
ÍTALÍA, AP Innanríkisráðuneytið á
Ítalíu sagði í gær að vafaatkvæði
frá því í þingkosningunum um síð-
ustu helgi væru mun færri en áður
var talið, eða rétt rúmlega fimm
þúsund. Þar með þykir nánast eng-
inn vafi leika lengur á því að Romano
Prodi og bandalag miðju- og vinstri
flokka hafi hlotið meirihluta í báðum
deildum þingsins.
Ráðuneytið segir að mistök hafi
valdið því að í fyrstu hafi menn
haldið að vafaatkvæði fyrir neðri
deild þingsins væru 43.028 og fyrir
efri deildina 39.82, en í raun væru
þau aðeins 2.131 fyrir neðri deildina
og 3.135 fyrir efri deildina.
Silvio Berlusconi forsætisráð-
herra virtist þó í gær alls ekki hafa í
hyggju að viðurkenna ósigur sinn.
Berlusconi hefur krafist þess að
dómsyfirvöld fari yfir öll atkvæði
sem dæmd voru ógild, en það eru
meira en milljón atkvæði.
Samkvæmt lögum geta dómstól-
ar þó einungis farið yfir vafaat-
kvæði, en ekki þau sem úrskurðuð
hafa verið ógild. Þyki ástæða til
þess að fara yfir önnur atkvæða, þá
þarf nýkjörið þing að láta þingnefnd
fá það verkefni. -gb
ROMANO PRODI Leiðtogi ítölsku stjórnar-
andstöðunnar og nýbakaður sigurvegari
í þingkosningunum brá sér í gær út að
skokka í almenningsgarði í heimaborg
sinni, Bologna. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Vafaatkvæði frá þingkosningunum á Ítalíu voru oftalin:
Sigur Prodis talinn öruggur
HEILBRIGÐISMÁL Yfirdýralæknir og
starfsfólk Tilraunastöðvar
Háskóla Íslands í meinafræðum á
Keldum bíða niðurstaðna rann-
sóknar á sýnum úr dauðri gæs
sem fannst á Elliðavatni síðastlið-
inn laugardag. Sýnin voru send til
Statens Veterinärmedicinska
Anstalt í Uppsölum á mánudag.
Gert var ráð fyrir að niðurstöð-
ur bærust fyrir helgi að sögn Vil-
hjálms Svanssonar dýralæknis en
hugsanlega setur páskafrí strik í
reikninginn. - sdg
Sýni úr gæs í rannsókn:
Bíða enn eftir
niðurstöðum
DÓMSMÁL Slökkvilið höfuðborgar-
svæðisins var í gær dæmt í Hér-
aðsdómi Reykjavíkur til að greiða
starfsmanni rúmar tvær milljónir
króna auk vaxta vegna slyss sem
hann varð fyrir árið 2000.
Maðurinn slasaðist þegar um
hundrað kílóa grind sem á voru
rúmlega tíu súrefniskútar féll á
öxl hans. Hann var að færa grind-
ina um bílskúr stöðvarinnar ásamt
yfirmanni sínum þegar slysið
varð. Þar féll hann um dekkjakeðj-
ur sem lágu á gólfinu. Hann hefur
gengist undir tvær aðgerðir.
Læknir mat að starfsmaðurinn
bæri tuttugu og fimm prósenta
örorku af slysinu. -gag
Slökkviliðsmaður fær bætur:
Féll um keðjur
og slasaðist illa
SRÍ LANKA, AP Norrænu sáttasemj-
ararnir á Srí Lanka, sem hafa reynt
að hafa milligöngu um friðarsamn-
inga milli ríkisstjórnarinnar og
aðskilnaðarsinna Tamíla, vöruðu
við því í vikunni að átök kynnu að
breiðast út um allt eyríkið eftir að
æstum múg úr ólíkum fylkingum
lenti saman í borginni Trincomalee
á norðausturhorni Srí Lanka.
Að minnsta kosti þrettán manns
létu lífið og 40 særðust í spreng-
ingum og óeirðum í Trincomalee.
„Það er raunveruleg hætta á að
ofbeldið sem blossaði upp í dag
kunni að breiðast út um landið og
leiða til dauða fleira saklauss fólks
ef stríðandi fylkingar reyna ekki
hið snarasta að ná stjórn á ástand-
inu,“ segir í yfirlýsingu frá nor-
ræna friðargæsluliðinu, SLMM.
- aa
Friðargæsluliðið á Srí Lanka:
Varað við út-
breiðslu átaka
MIKIL SPENNA Hermaður á verði í Kól-
ombó, höfuðborg Srí Lanka. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Sótti slasaðan sjómann Land-
helgisgæslan sótti slasaðan sjómann
um borð í spænska togarann Farruco á
skírdag. Landhelgisgæslan hafði fengið
tilkynningu um að maður um borð væri
með alvarlega brjóstholsáverka. TF-LÍF
flutti manninn til lands þar sem gert var
að áverkum hans.
LANDHELGISGÆSLAN
Kastaðist af slöngu Drengur slas-
aðist við Lambafell nærri Húsavík í gær.
Hann var að leik ásamt öðrum og kast-
aðist af uppblásinni slöngu sem bíll dró
á eftir sér. Hann kenndi sér meins í baki
og var sendur á sjúkrahúsið á Akureyri
til aðhlynningar.
LÖGREGLUFRÉTTIR
KÁRAHNJÚKAR Virkjunin kostar liðlega 100 milljarða króna og er stærsta eignin í safni
Landsvirkjunar. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Fréttablaðið kemur næst út þriðju-
daginn 18. apríl. Afgreiðsla og
smáauglýsingadeild blaðsins er
opin í dag frá 11 til 16. Lokað er á
morgun, páskadag. Afgreiðsla og
smáauglýsingadeild eru svo opnar
á annan dag páska frá 11 til 16.
Útgáfa Fréttablaðsins:
Kemur næst út
á þriðjudag
SAMGÖNGUR Ný Breiðafjarðar-
ferja, sem ber heitið Baldur eins
og forverar hennar, verður tekin í
notkun eftir helgi. Nýi Baldur kom
til landsins í gær eftir fimm daga
siglingu frá Hollandi og kvaðst
Pétur Ágústsson skipstjóri ánægð-
ur með nýja bátinn.
„Þetta er náttúrlega allt annað
líf, bæði fyrir starfsfólk og far-
þega,“ segir Pétur. Nýi Baldur
tekur 45 bíla í stað þeirra tæplega
tuttugu sem sá gamli tók og hefur
pláss fyrir 300 farþega í stað tæp-
lega 200 í þeim gamla. Nýi Baldur
er líka mun snarari í snúningum
en Baldur eldri og mun sigla
Breiðafjörðinn á rétt rúmum
tveimur tímum í stað þriggja
áður.
Þrátt fyrir aukna yfirferð er
ekki fyrirhugað að fjölga ferðum
yfir fjörðinn. „Á sumrin förum við
tvær ferðir á dag og eina á vet-
urna. Við reynum að fara 450 ferð-
ir á ári.“
Nýi Baldur er sjöundi Baldur-
inn í áttatíu ára sögu ferjanna
yfir Breiðafjörð. Gamli Baldur,
sem þjónað hefur landsmönnum í
sextán ár, var seldur til Finnlands
en þar mun hann gegna svipuðu
hlutverki. Pétur segist kveðja
gamla bátinn með smá söknuði.
„Það var vissulega dálítið ein-
kennileg tilfinning að horfa á
eftir honum.“
Uppselt er í fyrstu ferð nýju
ferjunnar en vonast er til að hægt
verði að fara hana á mánudag. - sh
Ný Breiðafjarðarferja kom til landsins í gær:
Uppselt í fyrstu ferð Baldurs
NÝR BALDUR Ánægja er meðal skipstjórnarmanna með hinn nýja Baldur þótt þeir finni
einnig fyrir söknuði eftir þeim gamla.
SPURNING DAGSINS
Runólfur, eru stjórnvöld úti
að aka?
„Já, allavega skattalega eru þau ekki
með á nótunum.“
Runólfur Ólafsson, framkvæmdastjóri FÍB,
segir eðlilegt að stjórnvöld lækki skatta á
bensín, ekki síst vegna þess hversu mikið
þau þéni á bensínskatti.
BJÖRGUNARAÐGERÐIR Tveir vél-
sleðamenn fundust við Eiríksjökul
í gærmorgun eftir að þeirra hafði
verið saknað frá kvöldinu áður.
Höfðu þeir meðal annars gengið
um átta kílómetra frá þeim stað
þar sem þeir höfðu yfirgefið vél-
sleða sína við suðurhluta Langjök-
uls.
Vel á þriðja hundrað björgun-
arsveitamenn tóku þátt í leitinni
auk þess sem bæði þyrla Land-
helgisgæslunnar og þyrla Varnar-
liðsins voru notaðar við leitina.
Skýrsla var tekin af mönnunum í
Borgarnesi og fengu þeir að fara
heim eftir það. - sha
Vélsleðamenn í ógöngum:
Fundust eftir
næturgöngu