Fréttablaðið - 15.04.2006, Side 18
15. apríl 2006 LAUGARDAGUR18
timamot@frettabladid.is
Tilkynningar um merkisatburði, stórafmæli, andlát og jarðar-
farir í smáletursdálkinn hér að ofan má senda á netfangið
timamot@frettabladid.is.
MERKISATBURÐIR
1785 Skálholtsskóli er lagður
niður samkvæmt konungs-
úrskurði og ákveðið að
flytja biskupssetrið frá
Skálholti til Reykjavíkur.
1803 Reykjavík er gerð að sér-
stöku lögsagnarumdæmi
og skipaður er bæjarfógeti í
fyrsta sinn.
1865 Abraham Lincoln lætur lífið
af völdum skotsára sem
hann hlaut kvöldið áður.
1912 Breska farþegaskipið Titanic
sekkur eftir árekstur við
ísjaka á Atlantshafinu.
1989 Mótmæli hefjast á Torgi
hins himneska friðar í
borginni Peking í Kína.
1997 343 látast þegar eldur kemur
upp í tjaldsvæði í borginni
Mekku í Sádi-Arabíu þar
sem mikill fjöldi er saman
kominn vegna pílagríma-
ferðarinnar Hadj.
Á þessum degi árið 1955 opnaði
fyrsti McDonalds veitingastaðurinn
eftir að einkaleyfi fékkst á vöru-
merkið. Staðurinn var í Des Plaines í
Illinoisríki.
Fyrsti raunverulegi McDonalds-
staðurinn opnaði sjö árum áður af
bræðrunum Maurice og Richard
McDonalds. Skriður komst þó ekki á
samsteypuna fyrr en viðskiptamaður-
inn Ray Kroc heimsótti veitingastað
bræðranna og heillaðist af aðferð
þeirra til að framleiða hamborgara
og mjólkurhristinga á ódýran hátt.
Frá opnun staðarins í Des Plaines
hófst vöxtur McDonalds-fyrirtækisins.
Einungis áratug seinna voru staðirnir
orðnir meira en þúsund talsins og
árið 1967 opnaði McDonalds útibú
í Kanada og var það fyrsta skrefið
í alheimsútbreiðslu hamborgara-
keðjunnar. Í byrjun þessarar aldar
var fjöldi veitingastaðanna orðinn
meiri en þrjátíu þúsund í hundrað
og nítján löndum.
Þaulskipulögð markaðsherferð
McDonalds hefur löngum verið
talin ein helsta ástæðan fyrir
velgengni fyrirtæksins. Það hefur
þó lent í skakkaföllum undanfarin
ár vegna aukinnar meðvitundar
um alþjóðleg viðskipti. Fyrirtækið
er af mörgum talið í fararbroddi
fyrir óæskilega viðskiptahætti þar
sem allt er selt bara ef það er nógu
ódýrt í framleiðslu.
ÞETTA GERÐIST > 15. APRÍL 1955
Útþensla McDonalds hefst
McDonalds í Kringlunni
ABRAHAM LINCOLN
(1809-1865) lést þennan dag
„Allir þrá að eiga langa
ævi en enginn vill vera
gamall.“
Abraham Lincoln, fyrsta forseta
Bandaríkjanna, tókst ekki að
verða gamall en hann var myrtur
einungis 56 ára að aldri.
„Ég á svo oft afmæli á pásk-
unum eða mig minnir það,“
segir Ari Kristinsson kvik-
myndagerðarmaður þegar
blaðakona innir hann eftir
því hvernig tilfinning það sé
þegar afmæli slær saman
við aðrar hátíðir. Hann verð-
ur 55 ára á morgun og ætlar
ekki að halda stóra veislu.
„Fjölskyldan verður bara
hérna heima í mat, börnin
okkar og barnabörn.“
Páskabragur verður á
afmælisveislunni og Ari úti-
lokar ekki að þar verði
páskalamb á boðstólum og
svo auðvitað páskaegg. „Við
erum samt farin að borða
minna af páskaeggjum.
Yngstu börnin eru að fá
dálítið mikið og það tekur
marga mánuði að borða þetta
allt saman og fólki er farið
að líða illa af páskaeggjaát-
inu.“ Hann heldur því fram
að páskaeggjamenningin
hljóti því að vera á undan-
haldi enda hafi enginn gott
af því að innbyrða slíkt magn
súkkulaðieggja. „Ég held að
það verði sérstaklega mikið
dregið úr stóreggjunum og
páskaeggjaátið hljóti að
minnka á næstunni.“
Litlar fjölskylduveislur
hafa einkennt afmælisdaga
Ara sem þó hefur stundum
nýtt páskana til ferðalaga og
haldið upp á afmælið úti á
landi. „Þegar ég var fimm-
tugur fórum við til Egils-
staða og héldum upp á
afmælið hjá systur minni
sem býr þar. Við fórum líka í
fermingarveislu í þeirri ferð
og slógum þessu því öllu
saman.“ Annars gefur Ari
sér oftast lítinn tíma til að
slaka á enda segir hann að á
páskum gefist sérstaklega
góður tími til að vinna. „Þá
er tími til að vinna að ein-
hverju sem ekki er hægt að
gera þegar er meiri ófriður.
Ég tek mér kannski frí á
páskadag en annars ekki.
Páskarnir eru góðir til að
vinna að verkefnum og
hreinsa upp það sem ógert
er.“
Vinnutíminn um páskana
nýtist líka vel í undirbúningi
á stóru verkefni sem staðið
hefur yfir í heilt ár. „Við
erum að koma af stað kvik-
myndinni Óvinafagnaður
sem er risamynd. Tökur
hefjast í maí og standa næst-
um því í tíu mánuði. Þetta er
búið að vera mjög lengi í
undirbúningi en er að kom-
ast af stað núna alveg á
næstunni.“
Svo skemmtilega vill til
að Ari þekkir mann sem er
nákvæmlega jafn gamall og
hann en það er tónlistarmað-
urinn góðkunni Björgvin
Halldórsson. Aðspurður seg-
ist Ari ekki leggja í vana
sinn að hitta hann á afmælis-
daginn en útilokar ekki
möguleikann á því að ein-
hvern tímann í framtíðinni
slái þeir félagar saman upp
stórveislu. „Ég hitti Björg-
vin nú um daginn og þá var
hann að hafa áhyggjur af því
hvað væri orðið stutt í sex-
tugsafmælið. Kannski höld-
um við bara upp á það
saman.“
ARI KRISTINSSON: AFMÆLI Á PÁSKADAG
Páskaeggjaátið á undanhaldi
AFMÆLI
Ari Matthíasson
leikari er 42 ára.
Hreinn Jakobsson
fráfarandi forstjóri
Skýrr er 46 ára.
Björgvin Þ. Valdi-
marsson tónlistar-
maður er fimmtugur.
Vigdís Finnboga-
dóttir fyrrum forseti
lýðveldisins er 76
ára.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
Ingibjörg Sigrún Jóhannsdóttir
frá Barðastöðum í Staðasveit, áður til
heimilis á Hlíf 1 á Ísafirði,
andaðist þriðjudaginn 11.apríl. Útför hennar fer fram
frá Ísafjarðarkirkju laugardaginn 15. apríl, kl.11.00.
Þeim sem vilja minnast hennar er bent á að láta
Heilbrigðisstofnun Ísafjarðar njóta þess.
Sigríður Ýr Ham Lester Ham
Jóhann Adólf Haraldsson Fjóla Hannibalsdóttir
Pétur Orri Haraldsson Erla Kristín Hallsdóttir
Magnús Hlynur Haraldsson Kristín Ósk Þórarinsdóttir
Sýta Rúna Dal Haraldsdóttir Lárus Erlendsson
Gróa Linddís Dal Haraldsdóttir Björn Anton Einarsson
Helga Guðrún Dal Haraldsdóttir Magnús Örnólfur
Jóhannsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskulegi maðurinn minn, pabbi,
tengdafaðir og afi,
Gunnar Einarsson
fyrrverandi stöðvastjóri Pósts og Síma,
Hörgshlíð 8, Reykjavík,
verður jarðsunginn þriðjudaginn 18. apríl frá
Háteigskirkju kl.13.
Ólöf Hólmfríður Sigurðardóttir
Þór Gunnarsson Sigrún Ása Sturludóttir
Hrafnhildur Gunnarsdóttir Anita Bowen
Embla Þórsdóttir Klaus Wallberg Andreasson
Sturla Þórsson Ólöf Tara Smáradóttir
Guðlaug Ýr Þórsdóttir.
Okkar hjartkæri eiginmaður, faðir,
tengdafaðir, afi og langafi,
Helgi Jóhannesson
fyrrverandi aðalgjaldkeri, Hæðargarði 29,
lést á Hjúkrunarheimilinu Skógarbæ þriðjudaginn
11. apríl.
Þóra Þorleifsdóttir
Halldóra M. Helgadóttir Þorbergur Atlason
Hörður Ó. Helgason Sigrún Sigurðardóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
90 ára
Magnea Kristín Hjartardóttir
frá Seljalandi, Hörðudal, Dalasýslu,
til heimilis að Ægisíðu, 125 Reykjavík,
verður 90 ára þann 18. apríl nk. Af því
tilefni hefur hún opið hús fyrir vini og
vandamenn á heimili sonar síns og
tengdadóttur annan í páskum að
Suðurhvammi 4, Hafnarfirði.
Afmæli
ARI KRISTINSSON KVIKMYNDAGERÐARMAÐUR Ekki verða mörg páskaegg á boðstólum í afmælisveislu Ara enda
segir hann að yngstu börnin í fjölskyldunni sinni fái svo mikið af páskaeggjum að það taki marga mánuði að borða
þau. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
Gísli K. Sigurðsson
Bifreiðarstjóri, Mjósundi 15, Hafnarfirði,
Varð bráðkvaddur, miðvikudaginn 12. apríl.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
Marta Ormsdóttir
Sigurður Gíslason Ásbjörg Skorasteim
Kristín Gísladóttir Ellert V. Harðarson
Júlíus Aron Ellertsson
Rakel Ósk Ellertsdóttir
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát og
útför bóður okkar og mágs,
Einars Ellertssonar
Frá Meðalfelli, Asparfelli 2,
Sérstakar þakkir til heimahjúkrunar Karítas og líknar-
deildar LSH í Kópavogi og svo allra þeirra sem sýndu
honum hjálpsemi og alúð síðustu mánuði.
Elín Ellertsdóttir Haukur Magnússon
Sigríður Sæmundsdóttir
Eíríkur Ellertsson Ólafía Lárusdóttir
Gísli Ellertsson Steinunn Þorleifsdóttir
Finnur Ellertsson Sigurbjörg Ólafsdóttir
Jóhannes Ellertsson Sigurbjörg Bjarnadóttir