Fréttablaðið - 15.04.2006, Blaðsíða 34
[ ]
Margir ætla sér út úr bænum
um helgina og skilja þar með
heimilin sín eftir óvarin fyrir
ágangi annarra.
Þegar haldið er af bæ og brunað í
sveit er gott að leiða hugann að því
að stórar ferðahelgar eru uppá-
hald margra innbrotsþjófa. Því er
gott að gera ráðstafanir til að
vernda hreiðrið fyrir ágangi ræn-
ingja og ruplara.
Margir innbrotsþjófar hafa
þann haginn á að fylgjast með
ferðum heimilismanna og eiga því
auðvelt með að sjá hvenær húsið
er mannlaust. Þegar farið er í
lengri ferðir er því gott að fá ætt-
ingja eða vini til að líta eftir hús-
inu, fjarlægja póst sem safnast í
lúgunni, kveikja nokkur ljós eða
breyta lýsingunni frá degi til dags
eða geyma bílana sína fyrir fram-
an húsið svo óæskilegir innbrots-
þjófar hörfi frá. Látið einnig
nágrannana vita að húsið verði
mannlaust og þá geta þeir látið
lögreglu vita verði þeir varir við
mannaferðir.
Auðvitað þarf líka að ganga
tryggilega frá öllum gluggum og
muna að læsa dyrum. Þeir sem
ekki haf þjófavörn í húsum sínum
ættu að fá sér slíka við fyrsta
tækifæri enda mikill ferða og að
sama skapi innbrotstími fram
undan.
Þjófum haldið úti
Áður en farið er í ferðalag skaltu tryggja að einhver líti eftir húsinu þínu.
NORDICPHOTOS/GETTYIMAGES
Árið 1885 fékk Alexander
III Rússakeisari gullsmiðinn
Fabergé til að búa til mjög
sérstakt páskaegg. Eggið átti
að vera páskagjöf til keisara-
ynjunnar Maríu Fyodorovnu
og dugði ekkert minna til en
skíragull.
Að utan leit eggið út eins og venju-
legt hvítt hænuegg en var það
opnað kom í ljós eggjarauða úr
skínandi gulli. Eggjarauðan inni-
hélt svo sjálf gullhænu, krýnda
með kórónu skreyttri smaragði.
Keisaraynjan var svo hrifin af
gjöfinni að Alexander bauð
Fabergé og mönnum hans að búa
til eitt egg á ári. Einu skilyrðin
sem Alexander setti voru að eggin
yrðu öll einstök og innihéldu
óvæntan glaðning. Þessi hefð lifði
Alexander og þegar sonur hans,
Nikulás II, tók við stjórnartaum-
unum urðu eggin tvö á ári. Eitt
fyrir konu Nikulásar, Alexöndru,
og eitt fyrir móður hans.
Eggin urðu allt í allt 57 talsins
en framleiðslu þeirra var hætt
eftir byltinguna árið 1918. Þau eru
öll mismunandi að gerð enda lögðu
gullsmiðir Fabergés mikið upp úr
hönnun. Eitt eggið er til dæmis
skreytt að utan með leiðarkerfi
Síberíuhraðlestarinnar en innan í
því er líkan úr skíragulli af sjálfri
lestinni. Annað egg inniheldur
lítið skip og enn annað stendur á
stöpli í formi Kreml.
Á tímum byltingarinnar hurfu
mörg eggjanna úr landi meðan
önnur glötuðust í óreiðunni sem
fylgdi stjórnarskiptunum. Árið
1930 seldu svo rússnesk stjórn-
völd 14 egg til að afla fjár fyrir
sveltandi land. Eggin voru ódýr,
það ódýrasta kostaði aðeins 30
þúsund krónur, sem er í hrópandi
mótsögn við þann einn og hálfa
milljarð sem fæst fyrir dýrasta
eggið í dag.
Nítján egg hvíla nú í faðmi rúss-
neska bjarnarins, átta eru glötuð
og afgangurinn dreifður um söfn
og sýningasali víðs vegar um heim-
inn. Fabergé fjölskyldan fram-
leiðir ennþá gullegg. Hvort sem
það er hönnunin, eða nostalgían
bak við hina keisaralegu sögu 57
upprunalegu eggjanna, verða þau
hins vegar ávallt skör ofar en öll
önnur egg í huga heimsbyggðar-
innar. tryggvi@frettabladid.is
Eggin eru almennt talin meðal mestu
meistaraverka gullsmíðasögunnar.
NORDICPHOTOS/GETTY IMAGES
Páskarnir eru kristin hátíð og því gleymdu gullsmiðir Fabergé ekki.
NORDICPHOTOS/GETTY IMAGES
Keisaraleg páskaegg
Fyrsta Fabergé eggið sem búið var til. Eggið er metið á um 250 milljónir króna. NORDICPHOTOS/GETTY IMAGES
Slökkvitæki á að vera aðgengilegt á hverju heimili. Þau þarf líka að yfirfara
reglulega.