Fréttablaðið - 15.04.2006, Side 51
LAUGARDAGUR 15. apríl 2006
R
ey
kj
av
ík
ur
tjö
rn
RÆKTAÐU VINA- OG
FJÖLSKYLDUBÖNDIN
Pantaðu fermingarskeyti
í síma 1446 eða á netfanginu
www.postur.is.
��������������������
�������������������
�����������������������������������������������������������������������������������
��������������������������������������������������������������������������������
������������������ ��������� ���� ����������� �������������������� � ���� ���������
������������������������������
�
������������������ �������������� ��������������������������������������������
���������������������������������������������������� ������������
���������������������
Vissulega var páskahátíðin hátíð
Ísraela og gyðinga löngu fyrir
daga Krists. Á henni minntust
Ísraelsmenn hinir fornu og síðar
Gyðingar frelsunar forfeðra sinna
úr ánauðinni í Egyptalandi eins og
lesa má um í Annarri Mósebók í
Gamla testamentinu.
Páskar helsta hátíð kristinna
manna
Það er þó ekki að ástæðulausu að
páskarnir urðu frá upphafi helsta
hátíð kristinna manna og héldu
þeirri stöðu langt fram eftir öldum
eða þar til jólin tóku að keppa við
þá um vinsældir. Ástæða þessa er
sú að mikilvægustu þættina í verki
Krists bar einmitt upp á páskahá-
tíð Gyðinga. Er þar átt við hand-
töku, pyntingar, aftöku og upp-
stigningu Krists sem lesa má um í
lokaköflum allra guðspjalla Nýja
testamentisins. Ein ástæðan fyrir
því að kristnir menn gerðu páska-
hátíðina að sinni er því þessi tíma-
setning.
Páskalambið
Það var fljótt farið að líta svo á í
kirkjunni að á milli þessara
tveggja hátíða, það er páskahátíð-
ar Gyðinga og páska kristinna
manna, væru einnig inntakstengsl.
Báðar voru þær haldnar til að
fagna frelsun. Gyðingarnir minnt-
ust frelsunarinnar undan Egypt-
um en kristnir menn frelsunar
undan synd og sekt til lífs með
Guði. Þá slátruðu Gyðingar svo-
kölluðu páskalambi sem þeir
neyttu á hátíðinni. Í kristninni var
farið að tala um Krist sem hið
sanna páskalamb. Samkvæmt einu
guðspjallanna er jafnvel sagt að
dauða Krists hafi borið upp á sömu
stundu og páskalömbunum var
slátrað.
Föst eða færanleg hátíð
Fljótt dró þó í sundur með páska-
hátíð Gyðinga og páskum krist-
inna manna. Páskar Gyðinga eru
svokölluð föst hátíð sem alltaf er
haldin á sérstökum mánaðardegi
samkvæmt tímatali Gyðinga.
Kristnir menn minntust hins vegar
upprisu Krists, það er páskadags-
ins, ætíð á sunnudegi og miðuðu
hátíðina við fyrsta sunnudag eftir
fyrsta fulla tungl eftir jafndægur
á vori. Páskarnir urðu því svoköll-
uð færanleg hátíð.
Tengsl gyðingdóms og kristni
Sú staðreynd að páskar eru haldn-
ir bæði í gyðingdómi og kristni
minnir auðvitað á þau beinu sögu-
legu tengsl sem eru milli þessara
tveggja trúarbragða. Kristni er
sprottin úr gyðingdómi og var í
upphafi í raun ekki annað en gyð-
inglegur söfnuður með sérstakar
áherslur. Mikið af trúariðkun
kristinna manna er því sótt til gyð-
ingdóms og þessi trúarbrögð eiga
sameiginleg trúarrit þar sem eru
bækur Gamla testamentisins.
Páskarnir eru því ekki eina atriðið
sem tengir trúarbrögðin. Má í því
sambandi ekki gleyma sjálfri hug-
myndinni um frelsarann Krist, en
orðið Kristur er í raun grísk orð-
mynd af hebreska orðinu Messías
sem Gyðingar vænta enn að koma
muni.
Eldri hugmyndir teknar upp
Páskarnir eru eitt dæmi um það
hvernig kristin trú tekur upp eldri
hugmyndir, túlkar þær í nýju ljósi
og gefur þeim nýtt inntak. Þessi
nýtúlkun páskahátíðarinnar er
afar eðlileg vegna þeirra tíma-
tengsla sem voru á milli hátíða-
halda Gyðinga og mikilvægustu
þátta þess sem oft er nefnt Krists-
atburðurinn (með því er átt við
fæðingu, líf, starf, dauða og upp-
risu Krists). Slík tímatengsl þurfa
þó ekki að vera til staðar eins og
kemur fram í því að víða á því
svæði þar sem kristni breiddist út
á fornöld og á miðöldum var haldin
hátíð á sama tíma og kristnir menn
halda jól. Ekkert bendir þó til þess
að Kristur hafi fæðst á þeim tíma
árs frekar en einhverjum öðrum.
Þetta sýnir að þótt kristin trú sé
um margt lokuð, játi til dæmis
aðeins trú á einn Guð, er hún að
öðru leyti opin. Á það ekki síst við
um ýmis félagsleg og menningar-
leg atriði sem kristnin hefur tekið
upp og glætt nýju inntaki.
Hjalti Hugason, prófessor í
guðfræði við HÍ.
Af hverju er páskaliturinn í kirkj-
unni fjólublár en ekki gulur eins
og venjulegi páskaliturinn?
Páskaliturinn er reyndar hvítur
en tíminn fyrir páska, það er að
segja fastan, hefur fjólubláan lit.
Dymbilvika og páskavika
Að baki spurningunni liggur mál-
venja síðari ára sem lætur pásk-
ana byrja ekki síðar en þegar skól-
ar fara í páskafrí. Af þeirri ástæðu
er farið að kalla vikuna fyrir páska
páskaviku, þótt hún heiti frá fornu
fari kyrravika eða dymbilvika. Í
þeirri viku minnist kirkjan sér-
staklega þjáninga og dauða Jesú
Krists á krossinum á föstudaginn
langa. Sú vika hefur yfirbragð
kyrrðar og íhugunar og hefur því
hinn fjólubláa lit iðrunarinnar.
Páskavikan hefst með páska-
degi. Þá fagnar kirkjan því að
Jesús sem dó á krossinum reis upp
frá dauðum. Kirkjan skrýðist
hvítu, sem er litur Krists. Hins
vegar hefur lengi tíðkast að nota
einnig gulan eða gullinn lit með til
þess að minnast dýrðarbjarma
upprisunnar.
Guli litur páskaliljanna
Til er helgisögn sem segir að eitt
sinn hafi páskaliljurnar verið
hvítar. En þegar sól reis á páska-
morgni og Jesús var ekki í gröf-
inni, því að hann var upprisinn frá
dauðum, þá varð birta sólarinnar
svo gullin af fögnuði að páskalilj-
urnar urðu gular. Hinn guli litur á
páskaliljunum hefur síðan ráðið
páskalitnum eins og hann er í
hugum margra, þótt litur kirkj-
unnar á páskum sé áfram hvítur.
Kristján Valur Ingólfsson,
lektor í guðfræði við HÍ.
Af hverju heldur kristið
fólk upp á páska? Eru pásk-
ar ekki eldri en kristni?
�������������
���������������
PÁSKALILJUR Í hugum margra er gulur litur
páskanna. NORDICPHOTOS/GETTY IMAGES
Fylgiklausa: Vísindavefur Háskóla Íslands fjallar um öll vísindi, hverju nafni sem þau nefn-
ast. Að jafnaði birtast þar 15-20 ný svör í hverri viku. Meðal spurninga sem glímt hefur
verið við að undanförnu eru: Breytist helmingunartími geislavirkra efna eftir hitastigi, af
hverju er stundum svona mikill hitamunur á milli nálægra staða, hvað eru fjölmiðlar,
hvernig myndast lungnakrabbamein, hvers vegna ganga reikistjörnur eftir sporbaug og
af hverju tala menn um peninga sem „kall“, eins og fimmhundruðkall? Hægt er að lesa
svör við þessum spurningum og fjölmörgum öðrum á slóðinni www.visindavefur.hi.is.