Fréttablaðið - 15.04.2006, Blaðsíða 65
LAUGARDAGUR 15. apríl 2006 45
Gleðilega páska
við erum eggjandi
um páskana
AFGREIÐSLUtími yfir páskaNA: Skírdagur 13-18; laugardagur 11-18.
30%
A F S L Á T T U R
30%
A F S L Á T T U R
30%
A F S L Á T T U R
30%
A F S L Á T T U R
A F S L Á T T U R
15%
Maine
dömu- og
herrafatnaður
CASUAL
CLUB
dömufatnaður
Allur
náttfatnaður
og inniskór
fyrir dömur
Allur
náttfatnaður
fyrir börn
Allir
maskarar
vor
Nýtt VISA-tímabil
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
D
EB
3
22
35
0
4/
20
06
Peaches Honeyblossom Michelle
Charlotte Angel Vanessa Geldof
heitir hún heillin. Hún gengur þó
oftast undir nafninu Peaches Geld-
of og segist vera ánægð með her-
legheitin sem nafnið hennar er,
finnst það fallegt og örlítið
„kitsch.“
Hún er dóttir Bob Geldof eins
og flestir vita og hefur stimplað
sig inn sem eina best klæddu konu
Bretlands og verið á ófáum slíkum
topplistum í breskum tímaritum.
Sjálf segist henni líka best að
vera kynþokkafull á óljósan hátt.
„Ég hef engan áhuga á að líta út
eins og Jordan, mér finnst kyn-
þokkafyllra að klæða sig í föt sem
hylja líkamann. Það er svo mikil
áhersla á stúlkur að vera kyn-
þokkafullar að margar ungar
konur telja sig ekki hafa annan
kost en að klæða sig í ögrandi flík-
ur. Það er algjörlega rangt,“ segir
Peaches sem er ekki þekkt fyrir
að liggja á skoðunum sínum.
Hún er með skemmtilegan stíl,
örlítið rokkaralegan en stundum
einfaldlega kvenlegan. Hún er
alltaf með svartan, þykkan „eyel-
iner“ sem fer henni afar vel og
örlítið reytt hárið gerir hana töff-
aralegri en ella. Einnig er hún
ósmeyk við að klæðast fötum sem
eru ekki frá dýrasta hönnuðinum í
bænum og jafnvel bara frá Top
Shop, þó svo að hún eigi sennilega
sæg af peningum.
Litla stúlkan með stóra nafnið
PEACHES Hún er dásamlega sæt hérna í
fallegum silkikjól og með rauða eyrnalokka
sem fara einstaklega vel við. ROKKARI Hér er hún í töffaralegum fíling.
AUGNFARÐI Hún er þekkt fyrir augnfarða
sinn enda sparar hún ekki „eyelinerinn“ hér
frekar en vanalega.
Karlmenn hafa ekki eins fjölda-
mörg tæki og tól til að gera sig
fína eins og konurnar. Besta tækið
sem þeir hafa hlýtur hins vegar að
vera rakspírinn enda getur góður
rakspíri heillað hvaða konu sem er
upp úr skónum. Vandinn er bara
að passa að setja ekki of mikið því
þá verða áhrifin þveröfug því fátt
er eins fráhrindandi fyrir konur
eins og útúr-rakspíraður gaur.
Snyrtivöruframleiðandinn Zihr
býður upp á margar vörutegundir
fyrir karlmennina og sú nýjasta er
nýr ilmur að nafni Cordoroy. Sá er
mjúkur eins og flauel, mildur og
góður. Ilmurinn er blanda af
frönskum lavender, mandarínu,
viðarilmi, vanillu, greipi og örlitl-
um kryddkeim. Umbúðirnar eru í
brúnum tónum og flöskurnar svo
karlmannlegar og töff að enginn
alvöru töffari ætti að skammast
sín fyrir að láta glitta í þær á bað-
herberginu. Minni flaskan er svo
með „roll-on“ stút sem gerir það
ennþá auðveldara að skella rak-
spíranum á smettið, bara smá rúll-
un yfir andlitið og nudda svo. Full-
komið.
Karlmann-
legur ilmur
ROLL-ON
Þægileg
flaska með
„roll-on“ stút.
ILMUR Corduroy
er nýjasti ilmur-
inn frá Zirh.