Fréttablaðið - 15.04.2006, Side 70
15. apríl 2006 LAUGARDAGUR50
Svali H. Björgvinsson, einn af
sunnudagspennum íþróttasíðu
Fréttablaðsins, skrifaði ekki alls
fyrir löngu um hið svokallaða
dagsform íþróttamanna. Þar kemst
hann að þeirri niðurstöðu að „Með
tali um dagsformið er í raun verið
að varpa frá sér ábyrgð og treysta
á afar vafasöm fræði eins og
heppni eða slakan undirbúning
andstæðinganna. Dagsformið
hefur sennilega álíka mikil áhrif á
úrslit leikja og veðrið í þeim íþrótt-
um sem keppt er í innandyra.“ svo
vitnað sé orðrétt í niðurstöður
hans. Þetta er nokkuð merkileg
niðurstaða sem Svali kemst að sem
ég get á engan hátt verið sammála.
Vissulega er það svo að sigrar
stjórnast fyrst og fremst af þátt-
um eins og getu, skipulagi, skiln-
ingi og líkamsþjálfun svo eitthvað
sé nefnt. En það er nú bara einu
sinni þannig að dagsformið hefur
heilmikið um þetta að segja og
getur gert þann gæfumun sem til
þarf til þess að sigra.
Til að byrja með skilgreini ég
dagsformið á allt annan hátt en
Svali gerir. Svali skilgreinir dags-
form sem eitthvert form eða
ástand, sem viðkomandi leikmað-
ur og eða lið er í þá stundina sem
leikur fer fram. Það sé síðan ekki
fyrr en eftir leik sem við getum
metið hvort það hafi verið okkur í
hag eða ekki og hafi sigur unnist
hafi það verið okkur í hag en hafi
leikurinn tapast þá hafi það ekki
verið okkur hliðhollt. Svali nefnir
enn fremur að um dagsformið
gildi lögmál veðurfræðinnar að
annaðhvort rigni eða rigni ekki,
þ.e. að um dagsformið fáum við
engu ráðið.
Ég tel hins vegar klárlega hægt
að hafa áhrif á dagsformið og
margir fara langt með að stjórna
því fullkomlega. Það er nefnilega
þannig, að dagsform kemur ekk-
ert og fer þegar því hentar ef við
getum orðað það sem svo. En hvað
er þá þetta blessaða dagsform?
Dagsform er einfaldlega sá undir-
búningur sem viðkomandi leik-
maður, þjálfari og lið leggja í fyrir
leikinn sjálfann. Dagsformið er
það ástand sem leikmaður/þjálf-
ari kemur sér í þá stundina sem
leikur stendur yfir. Inn í þetta
ástand fléttist hvíld leikmanns-
ins, næring hans og sú andlega
vinna sem hann leggur í undir-
búninginn sjálfan, en andlegur
undirbúningur leikmanna og
þjálfara skiptir gríðarlega miklu
máli. Hann skiptir svo miklu máli
að margir telja hann skipta mestu
máli þegar á hólminn er komið.
Auðvitað þurfa þeir þættir sem ég
hef fyrr nefnt eins og geta, skipu-
lag, skilningur og líkamsþjálfun
að vera í lagi. En svo á einnig við
um undirbúninginn fyrir einstaka
leiki, þ.e. dagsformið og þá sér-
staklega þegar mikið liggur
undir.
Við skulum taka vítaskot sem
dæmi, en Svali segir í grein sinni
að almennt viðurkennt sé að besta
leiðin til að hitta betur úr víta-
skotum sé einfaldlega að æfa víta-
skot. Auðvitað svo að það er
æfingin sem skapar meistarann,
eða réttara sagt, aukaæfingin sem
skapar meistarann og gerir það að
verkum að viðkomandi leikmaður
hittir úr öllum þeim æfingavíta-
skotum sem hann tekur. En það er
ekki samansemmerki á milli þess,
og að hann skori síðan úr öllum
þeim vítaskotum sem hann fær
þegar út í sjálfan leikinn er komið.
Þar kemur þetta margumrædda
dagsform til skjalanna. Leikmað-
ur sem er ekki í góðu dagsformi
er líklegri til þess að vera með
slakari nýtingu en sá sem er í
góðu dagsformi.
Hver einasti leikmaður ásamt
þjálfara liðsins hefur þá skyldu
fyrir hvern leik, alveg sama
hversu „mikilvægur“ leikurinn
er, að vera í því besta mögulega
dagsformi sem kostur er á. Dags-
formið sem slíkt, verður þeim
mun mikilvægara þegar um jafn-
ar viðureignir er að ræða og þétt
er spilað við t.d. sama andstæð-
inginn s.s. í úrslitakeppnum og
öðru slíku.
Nærtækasta dæmið um þetta
allt saman er nýliðin viðureign
Keflavíkur og Skallagríms í
úrslitakeppninni í körfuknattleik
þar sem Skallagrímur kom klár-
lega á óvart með því að leggja af
velli Íslandsmeistara sl. fjögurra
ára á þeirra heimavelli. Ég held
að það sé enginn vafi á því að það
sem réð úrslitum í síðasta leikn-
um var að dagsform leikmanna
Skallgríms var betra en dagsform
Íslandsmeistaranna. Sumir vilja
kalla þetta vanmat en það eitt og
sér útskýrir ekki þessi úrslit.
Hvernig útskýrir maður t.a.m.
það þegar „óvænt“ úrslit verða
t.d. í bikarkeppnum víða um heim?
Geta liðanna breytist varla á einni
nóttu! Nei, oftast er þar um mis-
munandi dagsform leikmanna og/
eða liða að ræða. Niðurstaða mín
er því þvert á niðurstöðu Svala.
Dagsformið hefur margoft sýnt
að það getur haft áhrif á úrslit
leikja og mun svo gera um ókomna
tíð. Dagsformið er ekki eins og
veðrið. Það er vissulega hægt að
hafa áhrif á dagsformið og þar
kemur heppni eða slakur undir-
búningur aðstæðingsins málinu
ekkert við. Með tali um dagsform-
ið er því alls ekki verið að varpa
frá sér ábyrgð því þjálfarar og
leikmenn bera ábyrgð á því hvert
dagsformið er hverju sinni.
LESENDUR SPYRJA > ÁSTHILDUR HELGADÓTTIR
SUNNUDAGSPENNINN GEIR SVEINSSON
Til varnar dagsforminu!
Hlífar Rúnarsson, Kópavogi, 33 ára
Áttu kærasta?
Nei.
Guðmundur, Ísafirði, 25 ára Eru
peningar að gera útaf við kvenna-
boltann á íslandi? Fara ekki allar
þær bestu í Breiðablik, KR eða
Val útaf mestu peningunum sem
þar eru?
Ég held nú að það séu ekki mikl-
ir peningar í kvennaboltanum á
Íslandi. Það er sem betur fer að
aukast því að þetta er mikil vinna
og það fer mikill tími í æfingar.
Það er ekki auðvelt að vinna fulla
vinnu með fótboltanum þannig að
það er mjög góð þróun að stelpur
séu að fá meira borgað en áður svo
að þær geti lagt metnað í æfing-
ar. Leikmenn fara í lið þar sem
aðstæður eru bestar og þar sem
mestar líkur eru á að þær geti
bætt sig. Hraði og gæði á æfing-
um skipta miklu máli. Félögin á
Íslandi verða einfaldlega að leggja
meiri metnað í að skapa þetta
umhverfi fyrir leikmennina.
Hafsteinn, Reykjavík,15 ára Varstu
atvinnumaður þegar þú spilaðir
fyrir Malmö?
Ég var í mastersnámi þannig að
ég var í raun námsmaður. Það má
eiginlega segja að fótboltinn hafi
haft forgang og ég hagaði náminu
svo eftir því. Þetta hefur líklega
kallast hálfatvinnumennska þar
sem komið er til móts við leik-
menn til að gera þeim kleift að
æfa allt að átta sinnum í viku.
Jón Arnar Óskarsson, Reykjavík,
25 ára Hvaða knattspyrnumaður
finnst þér vera myndarlegastur?
Þeir eru margir myndarlegir,
en Beckham, Shevchenko og Nesta
koma fyrstir upp í hugann.
Laufey Ólafsdóttir, Reykjavík, 25 ára
Hvernig er svo að vera fyrirliði
hjá íslenska landsliðinu og vera
ekki einu sinni varafyrirliði hjá
Breiðablik?
Haha, góð spurning Laufey! En
það er þjálfarinn sem ræður því
og þetta er ekkert sem hefur mikil
áhrif á mig.
Karl, Reykjavik, 25 ára Stefnirðu
aftur út i atvinnumennskuna?
Ég ákveð bara eitt ár í einu,
síðan verð ég að sjá hvernig hnéð
á mér verður eftir tímabilið og ég
tek ákvörðun eftir því og hvort ég
hafi ennþá gaman af því að spila
fótbolta.
Örvar Steingrímsson, Reykjavík, 27
ára Hver er huggulegasti karl-
maðurinn á Línuhönnun, vinnu-
staðnum þínum?
Mér hefur nú alltaf þótt Örvar
Steingrímsson frekar huggulegur.
Arnar Þór Halldórsson, Eyrarbakka,
11 ára Hvað varst þú gömul þegar
þú byrjaðir í fótbolta?
Ég var 11 ára eins og þú ert nú.
Guðmundur E. Gíslason, Keflavík, 17
ára Hvað tekurðu í bekkpressu?
Haha, ég er nú ekki sú sterk-
asta í bekkpressu, en ætli ég taki
ekki um 50 kg.
Jón Ragnar Jónsson, Reykjavík,
38 ára Hvort ertu KR-ingur eða
Bliki?
Ég er meiri Bliki, ég byrjaði
þar og þar eru mínar rætur. En ég
hef líka sterkar tilfinningar til KR
þar sem ég átti mörg mjög góð ár.
Stefán Arnar Harðarson, Reykjavík,
10 ára Hver finnst þér vera besta
knattspyrnukona heims?
Ég kaus Mörtu besta í fyrra,
hún spilar með Umeå í Svíþjóð og
ég hef séð mikið til hennar. Mér
finnst Renate Lingor og Birgit
Prinz frá Þýskalandi líka mjög
góðar.
Emil Alfreð Emilsson, Hafnarfirði,
16 ára Hvað færðu þér á pylsuna
þína?
Ég fæ mér pylsu með öllu.
Emil Alfreð Emilsson, Hafnarfirði, 16
ára Hver er besta íslenska knatt-
spyrnukonan?
Ég.
Þorsteinn Þormóðsson, Grenivík, 38
ára Hvernig gengur að samræma
verkfræðingsstarfið með fótbolt-
anum?
Það hefur gengið ágætlega, það
er oft mikil vinna en það hefst sér-
staklega af því að Línuhönnun
sýnir mér mjög mikinn skilning
og samstarfsmennirnir eru mjög
liðlegir við mig.
Arnar Þór Halldórsson, Eyrarbakka,
11 ára Hver er besti þjálfarinn
sem þú hefur haft?
Þetta er erfið spurning, ég hef
verið svo heppin að hafa marga
góða þjálfara. Vanda Sigurgeirs-
dóttir kenndi mér mjög margt og
ég var mjög heppin að hún þjálf-
aði mig þegar ég var ung og ennþá
að mótast sem knattspyrnumaður.
Hún þjálfaði mig fyrst í 3. flokki
þar sem tækniæfingar eru mjög
mikilvægar. Hún þjálfaði mig líka
í meistaraflokki og er mjög góð í
leikskipulagi. Logi Ólafsson var
mjög góður þegar hann var með
landsliðið 93 og 94. Jörundur Áki
hefur líka verið mjög góður með
landsliðið. Núverandi þjálfari
Malmö FF, Jörgen Petersson, er
mjög fær þjálfari og hefur kennt
mér mjög marga nýja hluti.
Hilmar Ægir Þórðarson, Hafnarfirði,
28 ára Hvað þyrfti stóra upphæð
til að fá þig yfir í FH?
Ég spila fótbolta af því að mér
finnst það gaman, hefði líklega
snúið mér að einhverju öðru fyrir
löngu ef ég væri að þessu pening-
anna vegna!
Guðmundur E Gíslason, Keflavík, 17
ára Hvað færðu þér í morgunmat?
Það er svolítið misjafnt, fyrir
leiki fæ ég mér yfirleitt hafra-
graut, brauð og eplasafa.
Júlíus Sigurjónsson, Reykjavík, 36
ára Ertu hjátrúarfull fyrir leiki?
Ég hringi í ömmu Áslu fyrir
hvern einasta leik og fæ gusu.
Síðan reyni ég að hafa sömu rút-
ínu fyrir leiki og undirbúa mig
eins fyrir hvern einasta leik. Ég
verð líka að fá banana fyrir hvern
einasta leik.
Sigmundur Ámundason, Akranesi,
50 ára Hvað finnst þér um að
kvennalið ÍA og ÍBV verða ekki
með í sumar? Ertu ekki hrædd um
að þessi þróun haldi áfram og
fleiri lið hætti þátttöku í framtíð-
inni?
Mér finnst mjög slæmt að ÍA
og ÍBV verði ekki með í sumar.
Akranes og Vestmannaeyjar eru
báðir sterkir fótboltabæir og mjög
lélegt að það sé ekki metnaður til
að hafa kvennalið í bænum, sér-
staklega miðað við þróun kvenna-
boltans í heiminum. Jú, auðvitað
hræðir þessi þróun mig en ég er
að vona að þetta veki knattspyrnu-
hreyfinguna til umhugsunar. Það
þarf að kynna kvennaknattspyrnu
betur og fá fleiri stelpur til að fá
áhuga og metnað til að stunda
knattspyrnu.
Halla María Helgadóttir, Kópavogi,
35 ára Hvaða næturkrem not-
arðu?
Ég nota ekki næturkrem, þetta
er bara náttúrulegt.
Sindri Kristjánsson, Akureyri, 22 ára
Þú hefur verið nokkuð óheppin
með meiðsli á frábærum ferli og
lent í þeim nokkrum alvarlegum.
Hver er lykillinn að því að koma
alltaf svona sterk til baka?
Lykillinn í stuttu máli er þolin-
mæði og metnaður til að ná sér.
Það skiptir miklu máli að hlusta á
lækna og sjúkraþjálfara og fara
eftir því sem þeir segja, gera
æfingar samviskusamlega og
missa aldrei trúna á sjálfum sér.
Össur Valdimarsson, Keflavík, 46 ára
Ertu að leggja fótboltaskóna á hill-
una ef þú kemst í bæjarstjórn?
Nei, það er nú ekki stefnan, ég
ætla að spila þetta árið og sjá svo
til. Ég tel að það muni ganga vel
að sameina fótboltann og bæjar-
málin með því að skipuleggja tím-
ann vel.
Sigmundur Kristjánsson, Reykjavík,
22 ára Hver er besta knattspyrnu-
konan sem þú hefur spilað á móti,
hér heima og erlendis?
Hér heima er það Þóra systir
mín, hún er besti markmaður sem
ég hef spilað á móti. Erlendis hef
ég spilað á móti mörgum góðum,
Hanna Marklund í sænska lands-
liðinu er mjög góð, síðan hefur
mér alltaf fundist erfitt að mæta
þýska landsliðinu.
Vilmundur Þór, Grindavík, 17 ára
Hver er lykillinn að góðri vel-
gengni þinni í boltanum?
Fótboltinn hefur alltaf haft for-
gang hjá mér og ég hef alltaf haft
mikinn metnað til að ná langt. Ég
hef stundað æfingarnar vel og haft
það að markmiði að ná sem mestu
út úr hverri einustu æfingu. Það
skiptir líka miklu máli að hafa trú
á sjálfum sér og vilja til að verða
betri.
Einar Björgvin Davíðsson, 25 ára
Hvað er uppáhaldsbjórinn þinn?
Ætli það sé ekki tékkneski Bud-
weiser, hann er mjög góður.
Berglind Lilja Guðlaugsdóttir, Nes-
kaupstað, 11 ára Hvað æfir þú oft
í viku og hvað eru æfingarnar
langar?
Það er svolítið misjafnt hvað ég
æfi oft í viku, mest er átta sinnum
í viku á undirbúningstímabilinu
og þá eru æfingarnar um einn og
ÁSTHILDUR HELGADÓTTIR Ein allra fremsta knattspyrnukona sem Ísland hefur alið. Hér er
hún í leik með Malmö í Svíþjóð.
FÓTBOLTINN HEFUR
ALLTAF HAFT FORGANG