Fréttablaðið - 19.04.2006, Side 2

Fréttablaðið - 19.04.2006, Side 2
2 19. apríl 2006 MIÐVIKUDAGUR KOSNINGAKAFFI F-LISTANS á Sumardaginn fyrsta kl. 14-17 í Aðalstræti 9. HLJÓMSVEITIN AMPOP TEKUR LAGIÐ EFNAHAGSMÁL Almennur kaup- máttur hefur aukist mjög mikið, mest þó síðustu mánuði ef marka má launavísitöluna sem hefur hækkað úr 273,9 í desember í fyrra í 284,4 í febrúar í ár, eins og sjá má á meðfylgjandi línuriti. Búist er við að kaupmáttur aukist enn frekar þegar launa- vísitalan verður birt í dag og sýni þá launabreytingar milli febrúar og mars. Talið er líklegt að launa- vísitalan haldi áfram að hækka næstu mánuði. „Hagvöxtur hefur verið meiri hér en í öðrum löndum. Í síðustu mælingu hafði launaskrið verið þó nokkuð og þá var kaupmáttur að vaxa að meðaltali um fjögur prósent sem er nokkuð mikið í alþjóðlegum samanburði. Það er hætta á því að það fari að draga úr kaupmætti vegna verð- bólgunnar eða að kaupmátturinn verði neikvæður,“ segir Ólafur Darri Andrason, hagfræðingur Alþýðusambands Íslands, og telur að kaupmáttaraukningunni sé misskipt. Þegar tekið er tillit til kaup- máttar kjarasamninga þá er ljóst að þeir sem hafa bara fengið almennar kauphækkanir, 2,5 pró- sent um síðustu áramót, og ekk- ert meira en það, bera minnst úr býtum þegar kaupmáttaraukn- ingin er annars vegar. Þetta eru þeir sem eru í hópi þeirra lægst launuðu, með kannski 120-160 þúsund krónur á mánuði. Ekki er ljóst hversu stór sá hópur það er sem fær minnstan hlut af kaupmáttaraukningunni en Ólafur Darri telur að um mjög stóran hóp sé að ræða. Ekki er vitað jafn vel um það hvaða hópar þetta eru og oftast áður eða hversu stóran skerf af kaupmátt- araukningunni þeir hafa fengið til sín þar sem Kjararannsóknar- nefnd hefur ekki getað sent frá sér hefðbundin gögn fyrir árið 2005 vegna tæknilegra vanda- mála. Horfurnar næstu mánuði benda til þess að líkur séu á áframhaldandi launaskriði, til dæmis í byggingageiranum og útflutningsgeiranum, og jafnvel að launabreytingar og verðbólga verði á víxl. Ef forsendur kjarasamninga bresta á þessu ári þá hefur verka- lýðshreyfingin frest til miðnætt- is 15. nóvember til að ná sam- komulagi. Ef samkomulag næst í forsendunefnd verkalýðshreyf- ingar og vinnuveitenda þá gilda samningar á almennum vinnu- markaði út árið 2007. Ef sam- komulag næst ekki þá hafa félög- in frest til 10. desember til að segja upp samningum og eru laus allra mála frá 1. janúar 2007. ghs@frettabladid.is Kaupmáttur hefur aukist undanfarna mánuði Ef marka má launavísitölu hefur kaupmáttur aukist mikið undanfarna mánuði. Horfur á áframhaldandi launaskriði. Kaupmáttaraukningin skilar sér ekki til stórra hópa. Hagvöxtur meiri hér en í öðrum löndum. VIÐSKIPTI Hlutabréf lækkuðu um tvö prósent á fyrsta viðskiptadegi eftir páska. Úrvalsvísitalan endaði í 5.535 stigum. Mest lækkuðu bréf í FL Group, um 4,8 prósent, og í Lands- bankanum, eða um -4,2 prósent. Þá hélt krónan áfram að gefa eftir og veiktist um 1,77 prósent. Í dagslok stóð vísitala hennar í 131,1 stigi. Greiningardeild Landsbank- ans segir að líta þurfi aftur til árs- ins 2002 til að sjá vísitöluna í sama gildi. Þá er í Vegvísi deildarinnar bent á að veiking krónunnar auki virði 98 prósenta hlutabréfa sem skráð séu í Kauphöll Íslands. - eþa /- óká Gengi krónunnar veikist enn: Lækkanir eftir páskahelgina ÍSRAEL, AP Ísraelsk stjórnvöld kenna palestínsku heimastjórninni, undir forystu Hamas-samtakanna, um mannskæðustu sjálfsmorðs- sprengjuáras sem gerð hefur verið þar í landi í 20 mánuði, og afturköll- uðu í gær búsetuleyfi þriggja þing- manna Hamas sem búa í Jerúsal- em. Á mánudag sprengdi ungur Pal- estínumaður úr samtökunum Heil- agt stríð sjálfan sig í loft upp fyrir utan skyndibitastað í Tel Avív með þeim afleiðingum að níu óbreyttir borgarar fórust og fjöldi slasaðist. Talsmenn Hamas-hreyfingar- innar sögðu árásina réttlætanlega í ljósi hernaðarárása Ísraela á Pal- estínumenn. Fyrst Palestínustjórn fordæmdi ekki árásina, þá ber hún ábyrgð á henni, að sögn Gideons Meir, talsmanns utanríkisráðuneyt- is Ísraels, eftir tveggja tíma fund með forsætisráðherra Ísraels, Ehud Olmert, og öðrum ráðamönn- um í gær. Fastafulltrúi Ísraels hjá Sam- einuðu Þjóðunum, Dan Gillerman, tilkynnti Öryggisráði SÞ í gær að Palestína, Sýrland og Íran væru „öxull hryðjuverka“, og sagði stjórnir landanna vera að undirbúa jarðveginn fyrir fyrstu heimstyrj- öld 21. aldarinnar. Fréttaskýrendur segja orð hans lýsa vaxandi ótta Ísraela við andúð ríkisstjórna land- anna þriggja í garð Ísraels. Fastafulltrúi Palestínu hjá SÞ, Riyad Mansour, fordæmdi árásina, en benti á að árásir Ísraelshers urðu nítján Palestínubúum að bana í byrjun apríl, og minnti á að Ísrael- ar brytu alþjóðlalög með hersetu sinni í Palestínu. Rúmlega helm- ingur Palestínumanna eru flótta- menn vegna hersetu Ísraela. - smk Ísraelar bregðast við sjálfsmorðssprengjuárás á mánudag: Kenna Hamas-stjórninni um MÓÐIR KVÖDD Þessi Ísraeli grét við útför móður sinnar sem var ein þeirra sem fórust í sjálfsmorðssprengju í Tel Avív á mánudag. FRÉTTABLAÐIÐ/AP SPURNING DAGSINS? Jóhann Ágúst, opnið þið ekki bara 12 Dóna á Istedgade? Nei, ég held við látum súlukarlana um það. Ný verslun 12 Tóna mun opna í Kaupmanna- höfn í maí. Jóhann Ágúst Jóhannsson er útgáfustjóri 12 Tóna. Það orð fer af Istedgade að nokkuð sé um vændi og slíka starfsemi þar. BREYTINGAR LAUNAVÍSITÖLU Janúar 2004 til febrúar 2006 Launavísitala er reiknuð og birt skv. lögum nr. 89/1989. Vísitalan miðast við meðallaun í hverjum mánuði og er reiknuð og birt um miðjan næsta mánuð. Desember 1988=100. janúar 2004, 244,9 janúar 2005, 261,1 febrúar 2006, 284,4 desember 2005, 273,9 KAUPMÁTTARAUKNINGUNNI MISSKIPT Hagvöxtur hefur verið meiri hér en í öðrum löndum. Kaupmáttur hefur vaxið að meðaltali um fjögur prósent en hætta er á að það dragi úr kaupmætti vegna verðbólgu á þessu ári. Myndin tengist ekki efni fréttarinnar beint. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Hagstofa Íslands: Launakjara- vísitala í sumar Hagstofa Íslands byrjar að mæla launakjaravísitölu í sumar að ósk Eurostat, hagstofu Evrópusambands- ins og verða vísitölurnar tvær, launa- vísitala og launakjaravísitala, þá gefn- ar út reglulega. Launakjaravísitalan mælir laun og allan launakostnað launagreiðand- ans meðan launavísitalan mælir bara launin sjálf og hækkun þeirra. Víða erlendis er aðeins launakjaravísitalan gefin út. ÓX UM 4,3 PRÓSENT Laun hækkuðu að meðaltali um 0,6 prósent í febrúar. Þá höfðu laun hækkað um 8,6 prósent á einu ári séu þau mæld með breytingu á launavísitölunni. Á sama tíma hækkaði verðlag um 4,1 prósent. Kaupmátturinn óx því að meðaltali um 4,3 prósent á þessu ári. Þetta kom fram á fréttavef ASÍ. MOSKVA, AP Rússar eru enn andvíg- ir refsiaðgerðum gegn Íran, en Bretar og Bandaríkjamenn ítreka að þeir ætli að fara fram á að Örygg- isráð Sameinuðu þjóðanna sam- þykki ályktun um að refsiaðgerðir verði óhjákvæmilegar fari Íranar ekki að kröfum Öryggisráðsins um að hætta auðgun úrans eigi síðar en 28. apríl næstkomandi. Fulltrúar fastaveldanna fimm í Öryggisráðinu, það er Rússlands, Bretlands, Bandaríkjanna, Frakk- lands og Kína, hittust í Moskvu í gær ásamt fulltrúa Þýskalands. Þeir snæddu saman kvöldverð og ræddu um kjarnorkuáform Írana og hvaða leiðir væru færar til þess að fá þá ofan af þeim. „Allir kostir eru á borðinu,“ sagði George W. Bush Bandaríkja- forseti í Washington í gær, þegar blaðamenn spurðu hann hvort til greina kæmi að gera árás með kjarnorkuvopnum á kjarnorku- mannvirki í Íran. Gholamreza Ansari, sendiherra Írans í Rússlandi, sagði aftur á móti að Íranar myndu búa sig undir stríð ef þörf krefði. „Við reynum að gera allt sem hægt er til að leysa málið með frið- samlegum hætti en ein leiðin til að gera það er að búa sig undir alla möguleika, þar á meðal hernaðar- möguleika,“ sagði hann. -gb Fastaveldin fimm og Þýskaland ræða Íransmálið í Moskvu: Rússar andvígir refsiaðgerðum REIÐUBÚNIR AÐ FÓRNA SÉR Þessir írönsku menn undirrituðu í gær í Teheran skráning- arpappíra um að þeir væru reiðubúnir til þess að fórna lífi sínu í árásum gegn Ísrael. FRÉTTABLAÐIÐ/AP STJÓRNMÁL Halldór Ásgrímsson for- sætisráðherra segir að búast megi við verðhækkunum í nokkra mánuði en ekkert bendi til annars en að á seinni hluta ársins og næsta ári dragi úr verðbólgu á ný. „Ástæðan fyrir verðbólgunni að undanförnu er fyrst og fremst hækkun á húsnæðismarkaði,“ segir Halldór. „Það hafa orðið veru- legar verðhækkanir í kjölfar geng- isbreytinganna en við það batnar staða útflutningsgreina og dregur úr eftirspurn þannig að þenslan minnkar. Það er gert ráð fyrir að húsnæðisverð hætti að hækka.“ Halldór Ásgrímsson: Draga mun úr hækkunum HALLDÓR ÁSGRÍMSSON DÓMSMÁL Mál tveggja Nígeríu- manna sem grunaðir eru um stór- felld fjársvik, var þingfest í Hér- aðsdómi Reykjaness í gær. Þeir eru grunaðir um að selja Íslendingum á miðjum aldri falsaða peninga. Íslendingarnir eru einnig ákærðir í málinu. Mennirnir voru með tæki til pen- ingafölsunar við komu til landsins frá Kaupmannahöfn. Tollgæslan grunaði þá í fyrstu um fíkniefnamis- ferli en engin fíkniefni fundust. Mennirnir voru á leið af landi brott eftir sólarhringsdvöl þegar 100 þúsund evrur fundust í fórum þeirra. Íslendingar höfðu keypt falsaða pen- inga fyrir evrurnar. -mh Fjársvikamál fyrir dómi: Ákærðir fyrir falsanir og svik Ungt fólk jákvætt Mikill meirihluti 18 til 19 ára ungmenna telja að Ísland verði meðal tíu samkeppnishæfustu hagkerfa heims næstu tíu árin og eru bjartsýn á framtíðina. Þetta er meðal niðurstaða könnunar sem framkvæmd var fyrir Samtök atvinnulífsins á viðhorf- um ungs fólks fyrr í þessum mánuði. VIÐHORFSKÖNNUN

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.