Fréttablaðið - 19.04.2006, Blaðsíða 56
40 19. apríl 2006 MIÐVIKUDAGUR
sport@frettabladid.is
KÖRFUBOLTI Bárður Eyþórsson
hefur með árangri sínum með
Snæfelli síðustu ár skipað sér á
bekk með allra færustu þjálfurum
Íslands. Hann hefur stýrt Snæfelli
í fimm ár og á þeim tímamótum
hefur hann tekið þá ákvörðun að
breyta um umhverfi. Hann til-
kynnti forráðamönnum Snæfells í
gær að hann myndi ekki endur-
nýja samninginn við félagið en
Snæfellingar bundu miklar vonir
við að halda Bárði áfram.
„Ég get staðfest það að ég verð
ekki í Hólminum næsta vetur,“
sagði Bárður við Fréttablaðið í
gær aðspurður um stöðu mála.
„Þetta er erfið ákvörðun enda hef
ég átt frábæran tíma hjá Snæfelli
og virkilega notið þess að vinna
fyrir félagið. Það eru aftur á móti
komin fimm ár síðan ég tók við lið-
inu og mér finnst kominn tími á
nýja áskorun. Ég skil við Snæfell í
góðu og er stoltur af því starfi sem
ég vann hjá félaginu.“
Aðspurður hvað tæki við var
Bárður þögull sem gröfin en bæði
ÍR og KR höfðu falast eftir kröft-
um hans. Heimildir Fréttablaðsins
herma að Bárður hafi samþykkt
að taka við liði ÍR og verður að
öllum líkindum tilkynnt um ráðn-
inguna fyrir helgi.
Kemur þessi ákvörðun Bárðar
nokkuð á óvart enda flestir sem
áttu von á því að hann myndi reyna
fyrir sér í Vesturbænum. Heim-
ildir Fréttablaðsins herma að KR-
ingar hafi ekki sótt það fast að fá
Bárð til starfa og því hafi val hans
í raun ekki verið svo erfitt. KR-
ingar ku vera að horfa út fyrir
landsteinana eftir nýjum þjálfara
og því hafi þeir ekki reynt svo stíft
að fá Bárð til starfa.
Ráðning Bárðar til ÍR mun
eflaust virka sem vítamínsprauta
á félagið en fyrir er efnilegur
mannskapur sem Bárður fær að
vinna með. Er ekki ólíklegt að ein-
hverjir leikmenn muni fylgja
þjálfaranum snjalla í Breiðholtið
og spurning hvort Sigurður Þor-
valdsson snúi á fornar slóðir og
leiki aftur með ÍR?
Algjör óvissa ríkir með þjálf-
aramálin í Hólminum og spurning
hvað gerist á næstu vikum og
hvort félaginu takist að halda í
alla sína leikmenn þar sem Bárður
sé farinn. henry@frettabladid.is
Úr Hólminum í Breiðholtið
Körfuboltaþjálfarinn Bárður Eyþórsson hefur látið af þjálfun Snæfells í Stykk-
ishólmi eftir fimm frábær ár. Hann mun taka við liði ÍR samkvæmt heimildum
Fréttablaðsins. Bárður segist kveðja Hólminn sáttur.
Á LEIÐ Í BREIÐHOLTIÐ Bárður Eyþórsson er tilbúinn í nýja áskorun og hefur því sagt skilið
við Snæfell og er á leið til ÍR að því er heimildir Fréttablaðsins herma. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
> Þjálfari meistaranna á
lausu
Einar Árni Jóhannsson, sem er nýbúinn
að gera Njarðvík að Íslandsmeisturum,
er með lausan samning hjá félaginu og
því frjálst að semja við hvaða lið sem er
kjósi hann svo. Einar Árni sagði í samtali
við Fréttablaðið í
gær að hann hefði
áhuga á því að
halda starfi sínu
hjá Njarðvík áfram
en boltinn væri
nú hjá stjórn
Njarðvíkur.
Ekki er
búist við
öðru en
Njarðvík
bjóði
Einari
Árna
nýjan
samning.
LÉTT SPÆGIPYLSA
65% MINNI FITA
FORMÚLA-1 Framtíð Michael
Schumacher, Formúlu-1 ökuþórs
hjá Ferrari, er enn í lausu lofti.
Sögusagnir ganga ýmist um það
að Schumacher gangi til liðs við
Reanult eftir tímabilið, framlengi
samning sinn við Ferrari eða
hætti hreinlega í Formúlunni.
„Við erum ekki að setja neina
pressu á hann. Ég er viss um að
Michael mun ákveða sig fyrir
sumarið, mjög líklega í mai,“
sagði Ross Brown, tækistjóri hjá
Ferrari um fyrrverandi heims-
meistarann sem ku vera orðinn
langþreyttur á misjöfnum Ferra-
rifáknum sem hefur ekki gengið
stöðuglega síðan hann varð
heimsmeistarið árið 2004.
Flavio Briatore, yfirmaður hjá
Reanault, er talinn hafa mikinn
hug á að fá Schumacher til liðsins
í stað núverandi heimsmeistara,
Fernando Alonso, sem gengur til
liðs við McClaren á næsta ári.
- hþh
Schumacher tjáir sig um þrálátan orðróm þess efnis að hann sé að hætta:
Framtíðin enn í mikilli óvissu
AFSLAPPAÐUR Fyrrverandi heimsmeistar-
inn er ekkert að stressa sig á hlutunum.
Tveir af lykilmönnum Fylkis verða að
öllu óbreyttu áfram hjá liðinu á næstu
leiktíð. Varnarjaxlinn Guðlaugur Arnars-
son og stórskyttan Heimir Örn Árnason
hafa framlengt samninga sína við Árbæj-
arliðið um eitt ár en Heimir gæti þó enn
fengið boð um að spila erlendis. Fari
svo munu Fylkismenn ekki standa í vegi
fyrir honum.
„Þetta er óráðið ennþá en það er
ólíklegt að af þessu verði. Þetta ætti þó
endanlega að koma fljótlega í ljós fljót-
lega en við höfum verið að tala saman,“
sagði Heimir Örn við Fréttablaðið í gær
en hann hefur verið í viðræðum við
danska félagið Holstebro. Samnings-
tilboð liðsins var þó ekki upp á marga
fiska en ekki er loku fyrir það skotið að
Heimir fari á endanum til Danmerkur,
hvort sem það verður núna eða á næsta
ári.
Fylkir hefur komið liða mest á óvart í
DHL-deild karla en það var endurreist
frá grunni fyrir tímabilið og hafði ekki
lifað á forni frægð hvað handboltann
varðar. Sigurður Valur Sveinsson hefur
leitt liðið áfram en gríðarlega sterk vörn
hefur verið lykillinn að góðum árangri
liðsins en Sigurður var sjálfur ekki
þekktastur fyrir varnarleikinn á árum
áður.
Fylkir hefur fengið á sig 600 mörk
í vetur, 29 færri en topplið Fram.
Guðlaugur hefur farið þar fremst-
ur í flokki en hann kom einmitt
til liðsins frá Safamýraliðinu.
„Við erum með rétta blöndu
af mönnum sem kunna að
spila vörn og erum með marga sterka
leikmenn. Við erum með bestu vörnina
í deildinni og það er án efa aðalmál-
ið hvað okkur varðar, ef við bætum
sóknina þá er þetta allt upp á við. Við
stefnum að sjálfsögðu enn hærra,“ sagði
Heimir.
HEIMIR ÖRN ÁRNASON OG GUÐLAUGUR ARNARSSON: FRAMLENGJA SAMNINA SÍNA HJÁ FYLKI
Rétt blanda af sterkum leikmönnum
Þú sendir
SMS skeyt
ið BT FBT
á númerið
1900.
Þú færð sp
urningu.
Þú svarar m
eð því að
senda SMS
skeytið
BT A, B eð
a C á
númerið 19
00.
S
M
S
LE
IK
UR
!
*Aðalvinningar dregnir út úr öllum innsendum skeytum. Vinningar verða afhentir í BT Smáralind, Kópavogi. Með því að taka þátt ertu kominn í SMS klúbb. 99 kr/skeytið. Þú færð 5.mín til að svara spurningu.
+DVD pakki
67. 588119. 988215. 988
Dregin út
28.apríl
Dregin út
21.apríl D
regin út
12.apríl 0kr0kr0kr5.hver
vinnur!
550 5000
Hringdu ef blaðið berst ekki
- mest lesið
Ásthildur og Dóra spiluðu
Landsliðskonurnar Ásthildur Helgadóttir
og Dóra Stefánsdóttir voru báðar í liði
Malmö sem tapaði fyrir meistaraliði
Umeå í fyrstu umferð sænsku úrvals-
deildarinnar sem fram fór í fyrradag.
Ásthildur mun leika fyrstu leiki Malmö
áður en hún kemur heim til að spila
með Breiðablik í sumar en Dóra gekk
sem kunnugt er í raðir Malmö í haust.