Fréttablaðið - 19.04.2006, Blaðsíða 4
4 19. apríl 2006 MIÐVIKUDAGUR
Bandaríkjadalur 75,57 75,93
Sterlingspund 133,93 134,59
Evra 92,63 93,15
Dönsk króna 12,413 12,485
Norsk króna 11,795 11,865
Sænsk króna 9,944 10,002
Japanskt jen 0,6402 0,644
SDR 109,57 110,23
GENGIÐ
GENGI GJALDMIÐLA 18.4.2006
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
KAUP SALA
Gengisvísitala krónunnar
129,2191
���������������������������������������������������������������������
�������������
������������
�����������
����������������������������������������������������������������
����
�����
�����
�
FÍKNIEFNAMÁL Þrír Íslendingar um
og yfir fertugt, Ólafur Ágúst Ægis-
son, Ársæll Snorrason og Hörður
Hilmarsson, hafa
verið úrskurðaðir
í gæsluvarðhald
til 5. maí í tengsl-
um við eitt stærsta
fíkniefnamál sem
upp hefur komið á
Íslandi. Auk
þeirra situr Hol-
lendingur, Johan
Handrick, í gæslu-
varðhaldi en hann
tók þátt í smygl-
inu og var handtekinn með tveimur
mannanna.
Lögreglan í Reykjavík handtók
tvo menn til viðbótar í gærkvöldi
sem taldir eru tengjast smyglinu.
Tólf kíló af amfetamíni og tíu kíló
af hassi fundust í bensíntanki not-
aðrar bifreiðar fyrir um þremur
vikum. Starfsmaður Tollgæslunnar
í Reykjavík fann efnin við hefð-
bundið eftirlit.
Tollgæslan gerði lögreglunni í
Reykjavík viðvart um fíkniefna-
fundinn og hóf hún strax að rann-
saka málið. Bifreiðin var tollaf-
greidd 11. apríl og afhent þeim sem
flutti hana til landsins. Að kvöldi
skírdags, þremur dögum eftir að
bifreiðin var tollafgreidd, handtók
lögreglan mennina þrjá sem voru að
losa fíkniefnin úr bílnum í iðnaðar-
húsnæði við Krókháls.
Sérsveit Ríkislögreglustjóra
aðstoðaði lögregluna í Reykjavík
við handtökuna. Mennirnir þrír voru
ekki samvinnuþýðir á vettvangi og
streittust harkalega á móti þegar
lögreglan handtók þá í iðnaðarhús-
næðinu.
Rannsókn málsins er á lokastigi
en Hörður Jóhannesson, yfirlög-
regluþjónn í Reykjavík, og Snorri
Olsen, tollstjóri, vildu ekki tjá sig
um framgang rannsóknarinnar. „Við
gefum ekki upplýsingar um rann-
sókn málsins að svo stöddu. Hvorki
Tollgæslan í Reykjavík eða lögregl-
an geta gefið upp hvaða starfsað-
ferðir eru viðhafðar við rannsókn-
ir,“ sagði Hörður.
Ólafur Ágúst var dæmdur í níu
ára fangelsi árið 2000 fyrir þátt sinn
í stóra fíkniefnamálinu svokallaða
en hefur verið á reynslulausn síðan
16. febrúar 2004 af heilsufarsástæð-
um, samkvæmt upplýsingum frá
Fangelsismálastofnun. Reynslutími
Ólafs Ágústs var þrjú ár. Það sem
eftir er af fangelsisdómi bætist við
refsinguna, verði hann sakfelldur
um stórfellt fíkniefnasmygl.
Einn mannanna, Ársæll Snorra-
son, sem nú situr í gæsluvarðhaldi,
var framseldur hingað til lands frá
Hollandi árið 2002 vegna gruns um
aðild að hvarfi Valgeirs Víðissonar.
Hann sat í gæsluvarðhaldi frá 22.
maí til 4. júní 2002. Hann var sýkn-
aður af aðild að hvarfi Valgeirs.
Lögreglan í Reykjavík sendi í
gær frá sér yfirlýsingu þar sem
segir að „ótímabær fréttaflutning-
ur“ af málinu hafi þegar komið sér
illa fyrir rannsóknina.“ Lögreglan
varðist frekari frétta af rannsókn
þessa umfangsmikla máls.
magnush@frettabladid.is
Fíkniefnasmyglari á
reynslulausn í tvö ár
Lögreglan handtók í gær tvo menn til viðbótar vegna eins stærsta fíkniefnamáls
sem upp hefur komið á Íslandi. Þrír menn eru í gæsluvarðhaldi. Einn þeirra
hlaut níu ára fangelsisdóm árið 2000 fyrir þátt sinn í stóra fíkniefnamálinu.
SÉRSVEITIN AÐ STÖRFUM Sérsveit ríkislögreglustjóra aðstoðaði lögregluna í Reykjavík þegar
þrír menn voru handteknir við að losa fíkniefnin úr bifreið við Krókháls. FRÉTTABLAÐIÐ/HARI
HÖRÐUR
JÓHANNESSON
Í GEYMSLU LÖGREGLU Rúmlega 22 kíló af
fíkniefnum fundust við hefðbundið eftirlit.
hjá Tollgæslunni fyrir þremur vikum.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
VINNUMARKAÐUR Búist er við tíðind-
um af samningaviðræðum Eflingar
stéttarfélags vegna starfsmanna
Orkuveitu Reykjavíkur á næstu
dögum, tilboð verði lagt fram en
ella verði málinu vísað til ríkissátta-
semjara.
Sigurður Bessason, formaður
Eflingar, segir að fulltrúar viðsemj-
endanna hafi tilkynnt að þeir hygð-
ust boða til fundar og leggja fram
tilboð fyrir helgi.
Lítið hafi gengið í samningavið-
ræðunum hingað til en vonandi
skýrist staðan fyrir helgi. - ghs
Samningar hjá OR:
Skýrist fyrir
næstu helgi
RÁN Maðurinn sem framdi vopnað
rán í Happdrætti Háskóla Íslands
fyrr í vetur er enn ófundinn.
Maðurinn komst undan með
um hundrað þúsund krónur í pen-
ingum.
Hann ógnaði starfsfólki í mót-
töku höfuðstöðva Happdrættis
Háskóla Íslands með skotvopni
og hljóp inn í Grjótaþorpið þar
sem hann losaði sig við samfest-
ing sem hann klæddist þegar
hann framdi ránið.
Lögreglan í Reykjavík er enn
að rannsaka ránið en þeir sem
telja sig geta veitt upplýsingar
eru beðnir um að snúa sér til
rannsóknardeildar lögreglunnar í
Reykjavík. -mh
Ránið í Happdrætti Háskólans:
Enn leitað að
ræningjanum
Sækist ekki eftir endurkjöri
Carlo Azeglio Cimapi Ítalíuforseti lét svo
um mælt í blaðaviðtali í gær að hann
hygðist ekki sækjast eftir endurkjöri, en
sjö ára kjörtímabili hans lýkur nú í maí.
Þetta kann að valda frekari töfum á
því að ný ríkisstjórn verði mynduð eftir
þingkosningarnar nýafstöðnu.
ÍTALÍA
STJÓRNMÁL Efstu menn á listum
Framsóknarflokks og Samfylking-
ar fyrir komandi borgarstjórnar-
kosningar gagnrýna harðlega orð
Vilhjálms Þ. Vilhjálmssonar odd-
vita Sjálfstæðisflokksins sem birt-
ust í Fréttablaðinu í gær. Vilhjálm-
ur var spurður álits á því hvort
rétt væri að fresta lagningu Sunda-
brautar vegna þenslu í þjóðfélag-
inu. Þar segir Vilhjálmur ljóst að
framkvæmdir við Sundabraut
verði ekki á dagskrá fyrr en í fyrsta
lagi síðla árs 2008 eða 2009 vegna
seinagangs R-listans og að þeim sé því
sjálfhætt fram að þeim tíma.
Björn Ingi Hrafnsson, Fram-
sóknarflokki, lýsir furðu sinni á
ummælum Vilhjálms. „Það sætir
undrun að oddviti Sjálfstæðis-
manna skuli ekki meta þessa mik-
ilvægu samgöngubót meira en
raun ber vitni. Það er áleitin
spurning hvort hann telji virki-
lega að engar aðrar framkvæmdir
á vegum ríkisins ættu frekar að
bíða.“
Dagur B. Eggertsson, Samfylk-
ingunni, segir að flokkurinn vilji
Sundabraut alla leið, án tafar.
„Mér finnst algerlega fráleitt af
oddvita Sjálfstæðisflokksins að
slá Sundabraut út af borðinu þegar
okkur hefur loksins tekist að fá
fjármagn frá ríkinu til fyrsta
áfanga verkefnisins. Það væri því
miklu nær að hann legðist á árarn-
ar með okkur til að tryggja fjár-
magn fyrir Sundabraut alla leið í
stað þess að gefast upp á miðri
leið.“ - shá
Orð Vilhjálms Þ. Vilhjálmssonar í Fréttablaðinu í gær gagnrýnd:
Sundabrautin veldur titringi
DAGUR B.
EGGERTSSON
BJÖRN INGI
HRAFNSSON
STJÓRNMÁL Borgarstjórnarflokkur
sjálfstæðismanna sendi frá sér til-
kynningu í gærkvöldi vegna gagn-
rýni B-listans í Reykjavík á orð
oddvita flokksins um Sundabraut í
Fréttablaðinu í gær.
Þar segir að dapurlegt sé þegar
frambjóðendur kjósi að rangtúlka
orð pólitískra andstæðinga sinna í
leit að athygli. Ljóst sé að Sjálf-
stæðisflokkurinn hafi stutt lagn-
ingu Sundabrautar og að hún verði
lögð í einum áfanga upp á Kjalar-
nes. Það sé Framsóknarflokkurinn
sem beri megin ábyrgð á þessum
silagangi ásamt meðreiðarflokkn-
um, R-listanum fyrrverandi.
- shá
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson:
Segir orð sín
rangtúlkuð
WASHINGTON, AP Donald H. Rums-
feld, varnarmálaráðherra Banda-
ríkjanna, sagðist í gær ekki hafa
hugleitt að segja af sér þrátt fyrir
að sex fyrrverandi herforingjar
hafi krafist þess. Hann sagði það
alfarið í höndum George W. Bush
forseta hvort hann sæti áfram í
ráðherraembættinu.
Fyrr um daginn hafði Bush
ítrekað stuðning sinn við Rums-
feld. „Ég er sá sem ákveð, og ég
ákveð hvað er best, og það sem er
best fyrir Don Rumsfeld er að vera
áfram varnarmálaráðherra.“ -gb
Rumsfeld fastur fyrir:
Ætlar ekki að
segja af sér
DONALD H. RUMSFELD Segir að Bush
forseti ráði því hvort hann hætti.
ÞJÓÐKIRKJAN Björn Bjarnason,
dóms- og kirkjumálaráðherra, skip-
aði í gær séra Skúla Sigurð Ólafs-
son í embætti sóknarprests í Kefla-
víkurprestakalli.
Ekki var sam-
staða í valnefnd um
skipun séra Skúla
en meirihlutinn
mælti með honum.
Þar sem ekki náðist
samstaða var mál-
inu vísað til biskups
Íslands sem mælti
upphaflega með séra Skúla við ráð-
herra, en hann skipar í embættið til
fimm ára í senn. Valnefnd skipuðu
fimm fulltrúar úr prestakallinu auk
vígslubiskupsins í Skálholti. Tíu
umsækjendur voru um embættið.
- shá
Keflavíkurprestakall:
Séra Skúli skip-
aður í embætti
SR. SKÚLI S.
ÓLAFSSON