Fréttablaðið - 19.04.2006, Blaðsíða 58

Fréttablaðið - 19.04.2006, Blaðsíða 58
 19. apríl 2006 MIÐVIKUDAGUR42 VI N N IN G A R VE RÐ A A FH EN D IR H JÁ B T SM Á RA LI N D . K Ó PA VO G I. M EÐ Þ VÍ A Ð T A KA Þ ÁT T ER TU K O M IN N Í SM S KL Ú BB . 9 9 KR /S KE Y TI Ð . FÓTBOLTI Arsenal og Villarreal leiða saman hesta sína í meistara- deild Evrópu á Highbury í kvöld en þetta er í fyrsta skipti sem liðin mætast. Villarreal er að keppa í fyrsta skipti í meistaradeildinni og Arsenal hefur aldrei komist jafn langt í keppninni og nú. Vörn Arsenal og Thierry Henry eru lykillinn að frábærum árangri Arsenal. Liðið hefur aðeins fengið á sig tvö mörk í keppninni, og haldið marki sínu hreinu í átta leikjum í röð. Emmanuel Eboue, Philippe Senderos, Kolo Toure og Mathieu Flamini hafa myndað vörn Arsenal og er Arsene Weng- er stórhrifinn af fjórmenningun- um. „Efniviðurinn er til staðar, þeir hafa allt til að gera það sama og forverar þeirra. Það er gott for- dæmi sem þeir þurfa að fylgja eftir,“ sagði Wenger og minnti á Lee Dixon, Tony Adams, Steve Bould og Nigel Winterburn sem mynduðu eitt allra besta varnar- par í sögu Arsenal. Þeir fengu aðeins á sig átján mörk á tímabil- inu 1990/1991 þegar Skytturnar urðu enskir meistarar. Eboue og Flamini eru aðeins 22 ára gamlir og hafa fyllt vel í skörð Laurens og Ashleys Cole sem venjulega fylla bakvarðarstöðurn- ar. Að sama skapi hefur Senderos spilað í stað Sol Campbell en allir hafa þeir verið mikið meiddir. Þá hefur Toure stjórnað vörninni eins og herforingi en hann segir verk- efni Arsenal, að komast í úrslita- leik meistaradeildarinnar, alls ekki auðvelt. „Þetta er keppni sem Arsenal hefur ekki náð að setja mark sitt á. Við stefnum að sjálfsögðu á úrslitaleikinn og að reyna að vinna hann, en það verður alls ekki auð- velt þar sem við mætum mjög góðu liði í undanúrslitunum. Vill- arreal á skilið að vera komið í und- anúrslitin – en það eigum við líka,“ sagði Toure. - hþh Fyrri leikur Arsenal og Villarreal í undanúrslitum meistaradeildarinnar er í kvöld: Spútniklið meistaradeildarinnar mætast STANSLAUS GLEÐI Leikmenn Arsenal hafa fagnað mörgum góðum sigrinum í meistara- deildinni í vetur og eru nú aðeins einu skrefi frá sjálfum úrslitaleiknum. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY FÓTBOLTI Francesco Totti, fyrirliði Roma, er byrjaður að æfa aftur eftir að hafa brotið bein í ökklan- um á sér í leik gegn Empoli. Totti var borinn af velli þann 19. febrú- ar og var talið að hann yrði frá í þrjá til fjóra mánuði og jafnvel að hann yrði tæpur fyrir HM í sumar. Totti hefur bundið enda á allar þær martraðir Ítala en han er byrjaður að æfa aftur með Roma og sýndi gamalkunna takta á sinni fyrstu æfingu þegar hann lék við hvern sinn fingur. Totti verður að öllum líkindum til í slaginn eftir vikutíma og hefur því nægan tíma til að koma sér í sitt gamla góða form fyrir Heims- meistaramótið í Þýskalandi. - hþh Francesco Totti: Ótrúlega skjót endurkoma FRENCESCO TOTTI Verður til í slaginn fyrir HM. Hér er hann í leiknum gegn Empoli þar sem hann meiddist á ökkla. NORDICPHOTOS/GETTY IMAGES Fabio Aurelio mun líklega ganga til liðs við Liverpool í sumar. Þessi knáði vinstri bakvörður hefur ákveðið að yfirgefa Valencia, þar sem hann spilaði undir stjórn Rafael Benítez. „Ég mun fara frá Valencia í sumar. Ég hef ekki fengið að spila mína stöðu, sem er vinstri bakvörður og ég er orðinn langþreyttur á því. Ég hef ekki ákveðið hvaða lið ég mun ganga til liðs við,“ sagði Brasilíumaðurinn. Fimm þjóðir hafa sótt um að halda heimsmeistaramótið í handknattleik árið 2009. Á næsta ári fer mótið fram í mekka handboltans, Þýskalandi, en engu verður til sparað til að gera mótið það glæsilegasta í sögu íþróttarinnar. Alþjóða handknattleikssambandsins mun ákveða á fundi í ágúst hver hreppir hnossið. Króatía, Tékkland, Grikkland, Rúmenía og Danmörk sendu inn umsóknir um keppnishaldið. ÚR SPORTINU HANDBOLTI Grosswallstad burstaði Gummersbach í sannkölluðum Íslendingaslag sem fram fór í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í gærkvöldi. Groswallstad sigraði með 12 marka mun, 32-20, og lyfti sér upp í 7. sæti deildarinnar. Með tapinu eru möguleikar Gummers- bach á meistaratitlinum svo gott sem úr sögunni en liðið er með jafnmörg stig og Kiel og Flens- burg en hefur leikið þremur leikj- um meira. Einar Hólmgeirsson skoraði mest allra á vellinum í gær eða sjö mörk en Alexander Petterson skoraði fimm. Hjá Gummersbach skoraði Guðjón Valur Sigurðsson fimm mörk og Róbert Gunnarsson þrjú. Munurinn á liðunum í gær lá í markvörslunni en Chrischa Hannawald var með 21 skot varin hjá Grosswallstad á meðan mark- menn Gummersbach voru samtals með fjögur skot varin eða 11% markvörslu. - vig Þýski handboltinn í gær: Slæmt tap hjá Gummersbach EINAR HÓLMGEIRSSON Var markahæstur í leiknum í gær. FÓTBOLTI Alberto Gilardino hefur verið sterklega gagnrýndur fyrir slælega frammistöðu undanfarið og ekki mun gagnrýnin minnka eftir dauðafærið sem hann klúðr- aði í byrjun leiks. Gilardino fékk boltann óvænt í markteignum, dró hann til sín en þrumaði boltanum í stöngina og út og Börsungar sluppu þar með skrekkinn. AC Milan hringdi viðvörunar- bjöllum Barcelona hátt og vel með þessu og í næstu sókn tóku þær aukaslag þegar Clarence Seedorf átti frábæra sendingu á úkraínsku markamaskínuna Andryi Shevchenko sem skallaði boltann beint á Victor Valdez úr úrvals- færi. Eftir rólega byrjun jókst sóknarþungu heimamanna en þetta voru hættulegustu færi Milan í fyrri hálfleiknum. Á hinum enda vallarins þurfti Dida ekki að taka almennilega á stóra sínum. Ronaldinho var allt í öllu í sóknarleik Barcelona en komst lítið áfram gegn ógnar- sterki vörn Milan, sem þó var snauð af Paolo Maldini sem var lít- illega meiddur og því ekki í byrj- unarliðinu. Ronaldinho reyndi hvað hann gat en samherjar hans virtust ekki vera vel með á nótun- um. Knattspyrnan hefur oft sýnt að þar er skammt stórra högga á milli. AC Milan átti frábæra sókn snemma í síðari hálfleik þegar boltinn barst inn fyrir vörn Barce- lona á Kaká sem var einn gegn Valdez markmanni, en hann kaus að senda boltann á Gilardino sem áttaði sig ekki nógu fljótt á hlutun- um og færið rann út í sandinn. Skömmu síðar kom síðan stór- kostlegt mark hjá Barcelona. Það þarf engum að koma á óvart hver var arkitektinn að markinu, sjálf- ur Ronaldinho. Hann sýndi gríðar- legan styrk sinn og jafnvægi þegar hann hélt tveimur mönnum frá sér áður en hann sendi hárnákvæma sendingu inn í vítateiginn þar sem Ludovic Giuly stakk sér á milli tveggja varnarmanna og þrumaði boltanum upp í samskeytin. Glæsi- legt mark hjá Katalónunum. Færin voru Barcelona þrátt fyrir að heimamenn hafi haldið boltanum meira. Ronaldinho átti skot í innanverða stöngina og út eftir snarpa skyndisókn og Dida þurfti svo að hafa sig allan við til að halda skoti frá Andreas Iniesta. Massimo Ambrosini brenndi af úr dauðafæri og allt kom fyrir ekki hjá Milan. Þrátt fyrir að reyna sitt besta náðu Milan ekki að jafna metin. Vörn Barcelona var upp á sitt besta á meðan lykilmenn á borð við Shevchenko og Kaká náðu sér ekki almennilega á strik og eru Barcelona því í mjög góðum málum. hjalti@frettabladid.is Katalónsk afgreiðsla hjá Barcelona á San Siro Barcelona er í kjörstöðu eftir sigur gegn AC Milan í undanúrslitum meistara- deildar Evrópu á Ítalíu í gærkvöldi. Franski miðjumaðurinn Ludovic Giuly skor- aði eina mark leiksins með glæsilegum hætti eftir sendingu frá Ronaldinho. STÓRKOSTLEGUR Ronaldinho sýndi snilli sína enn og aftur í leiknum gegn Milan. Hann lagði upp sigurmarkið á einkar glæsilegum hátt.NORDICPHOTOS/AFP MAGNAÐ AFREK Sigur Barcelona á AC Milan, á San Siro, verður að teljast magnað afrek. Spænska liðið er í kjörtðu fyrir síðari leikinn sem fer fram á Nou Camp. NORDICPHOTOS/AFP Meistaradeildin: AC MILAN-BARCELONA0-1 0-1 Ludovic Giuly (57.). Þýski handboltinn: GROSSWALDSTADT-GUMMERSBACH32-20 Einar Hólmgeirsson var markahæstur í liði Gross- waldstadt með sjö mörk og Alexander Petterson skoraði fimm. Guðjón Valur Sigurðsson skoraði fimm mörk, og var markahæstur hjá Gummers- bach og Róbert Gunnarsson skoraði þrjú. Enska úrvalsdeildin: WIGAN-ASTON VILLA3-2 1-0 Jimmy Bullard (25.), 1-1 Juan Pablo Angel (53.), 2-1 - Henri Camara (56.), Henri Camara (60.), 3-2 Liam Ridgewell (67.). ÚRSLIT GÆRDAGSINS
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.