Fréttablaðið - 19.04.2006, Blaðsíða 12
12 19. apríl 2006 MIÐVIKUDAGUR
REGNDANSARAR Þessar glæsilegu stúlkur
sýndu dans í Búddahofi í Bandaríkjunum
á sunnudag, á hátíð sem haldin var til að
marka upphaf nýs árs samkvæmt tímatali
búddista. Dansinn er jafnframt beiðni til
máttarvaldanna um regn.FRÉTTABLAÐIÐ/AP
SAMEINUÐU ÞJÓÐRINAR, AP Erfitt
reynist að finna land sem vill taka
við Charles Taylor, fyrrverandi
forseta Líberíu, verði hann fund-
inn sekur um stríðsglæpi fyrir
stríðsglæpadómstól í Hollandi, að
sögn talsmanna Bandaríkjanna
og Bretlands innan Sameinuðu
þjóðanna fyrir helgi.
Verið er að rétta yfir Taylor í
Síerra Leóne, en beðið hefur verið
um flutning réttarhaldanna til
Evrópu í því skyni að koma í veg
fyrir hugsanlegar óeirðir í
Afríkuríkjum. Hollandsstjórn
hefur sagst tilbúin til að heimila
að réttarhöldin fari fram í Haag,
svo lengi sem einhver önnur þjóð
sé tilbúin til að fangelsa Taylor,
verði hann sakfelldur.
Stjórnvöld í Austurríki og Sví-
þjóð voru beðin um að taka við
Taylor en færðust undan því, að
sögn talsmanns Bandaríkjanna
innan SÞ.
Taylor er sakaður um stríðs-
glæpi svo sem kynlífsþrælkun,
limlestingar og að hafa sent börn
í bardaga. Hann lét af embætti
forseta árið 2003 og fór í útlegð til
Nígeríu, en með því lauk fjórtán
ára borgarastyrjöld í Líberíu.
Taylor er fyrsti Afríkuleiðtoginn
sem alþjóðlegir dómstólar rétta
yfir vegna stríðsglæpa.
- smk
CHARLES TAYLOR Fyrrverandi forseti Líber-
íu, sem ákærður er fyrir stríðsglæpi.
Erfitt reynist að finna land sem er tilbúið til að hafa í haldi fyrrverandi Afríkuleiðtoga:
Engin þjóð vill hýsa Taylor
GEIMRANNSÓKNIR, AP Vísindamenn í
stjórnstöð Evrópsku geimferða-
stofnunarinnar (ESA) í Darmstadt í
Þýskalandi fögnuðu í síðustu viku
er könnunarfarið Venus Express
komst klakklaust á sporbaug um
Venus eftir fimm mánaða ferðalag
um geiminn.
Markmið leiðangursins er að
safna betri upplýsingum en hægt
hefur verið til þessa um þá reiki-
stjörnu sólkerfisins sem næst er
jörðinni.
Strax á fimmtudag, skírdag,
voru fyrstu nærmyndirnar af
Venusi farnar að berast til jarðar.
Myndirnar eru af suðurpól reiki-
stjörnunnar og gáfu óvænta
mynd af gormlaga skýjamynd-
unum, sem vísindamenn höfðu
ekki vitað af.
Á næstu vikum verða starfs-
menn stjórnstöðvarinnar upp-
teknir við að prófa þann búnað
sem er um borð í könnunarfar-
inu. Þegar komið verður fram í
júní er gert ráð fyrir að hægt
verði, með hjálp þessa búnaðar,
að byrja að safna upplýsingum um
það hvernig Venus endaði uppi með
svo brennheitan og brennisteins-
sýrumettaðan lofthjúp og raun ber
vitni, þrátt fyrir að vera svipuð að
stærð og jarðfræðilegri samsetn-
ingu og jörðin.„Við viljum læra af
mistökum Venusar sem víti til varn-
aðar jörðinni,“ sagði David South-
wood, sem stýrir verkefninu fyrir
hönd Evrópsku geimferðastofnun-
arinnar. - aa
Evrópskt rannsóknageimfar komið á sporbaug um Venus:
Mistök Venusar víti til
varnaðar fyrir jörðina
SUÐURSKAUT VENUSAR Þessi samsetta
mynd af suðurskauti Venusar er meðal
fyrstu myndanna sem bárust frá könnun-
arfarinu eftir að það komst á sporbaug í
síðustu viku. FRÉTTABLAÐIÐ/AP/ESA
BRETLAND Sextugur maður sem lá á
bresku sjúkrahúsi vegna húðsjúk-
dóms brann til bana á mánudag,
kemur fram á fréttavef breska rík-
isútvarpsins, BBC.
Búið var að bera eldfimt hlaup á
húð mannsins þegar hann laumaðist
fram í neyðarútgang Doncaster
Royal Infirmary-sjúkrahússins til
að kveikja sér í sígarettu, með þeim
afleiðingum að það kviknaði í
honum. Maðurinn var fluttur í
skyndi á sjúkrahús í Sheffield, en
lést af brunasárum sínum skömmu
síðar. Að sögn yfirvalda gerði
starfsfólk sjúkrahússins ekkert
rangt og málið er höndlað sem sorg-
legt slys. - smk
Banvænar reykingar:
Sjúklingur
brann til bana
ATVINNUMÁL „Ég er vongóður um
það að Byggðastofnun ætli að
koma að uppbyggingu Bílddæl-
ings,“ segir Guðmundur Guðlaugs-
son, bæjarstjóri Vesturbyggðar.
Nýlega fundaði hann með fulltrú-
um Byggðastofnunar og Atvinnu-
þróunarfélags Vestfjarða ásamt
forsvarsmönnum Bílddælings.
Í næstu viku mun Atvinnuþró-
unarfélagið ljúka við viðskipta-
áætlun sem rekstur Bílddælings
mun byggja á og þá mun framtíð
fyrirtækisins skýrast segir Guð-
mundur.
Sigurjón Þórðarson, þingmað-
ur Frjálslynda flokksins, gagn-
rýnir sjávarútvegsráðherra harð-
lega fyrir að hafa ekki brugðist
við en um fimmtíu manns hafa
verið atvinnulausir á Bíldudal frá
því Bílddælingur lokaði í júní á
síðasta ári. - jse
Uppbygging Bílddælings:
Byggðarstofn-
un líklega með