Fréttablaðið - 19.04.2006, Side 25
Smáauglýsingasími
550 5000
Auglýsingasími Allt
550 5880
Þú getur pantað
smáauglýsingar á visir.is
FASTEIGNIR HEIMILI HEILSA HÚS BÖRN NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR TÍSKA ATVINNA BRÚÐKAUP TILBOÐ O.FL.
Útivist gengur Ólafsskarðsveg
sunnudaginn 23. apríl. Brottför
verður frá BSÍ klukkan hálf ellefu.
Ferðin er tveggja skóa ferð.
Gengnir verða 198 kílómetrar
á sex til sjö klukkustundum.
Hækkun er 200 metrar.
Fuglaflensa.is er góður vefur fyrir
þá sem vilja kynna sér sjúk-
dóminn og
varúðarráð-
stafanir gegn
honum. Á
vefnum má
finna allt milli
himins og jarðar
um fuglaflensu og
hentar vefurinn vel
fyrir þá sem huga á
ferðalag til landa þar
sem sjúkdómurinn hefur
greinst.
Mímir - símenntun býður upp
á skemmtilegt vornámskeið í
japönsku þar sem farið verður í
grundvallaratriði í japanskri mál-
fræði og orðaforða. Námskeiðið
hefst 10. maí og
kennari er Yukiko
Koshizuka.
Nagladekkin
ættu nú að vera
farin af bílunum
enda er notkun
þeirra ekki heimil
frá 15. apríl til 1.
nóvember.
ALLT HITT
[ HEILSA FERÐIR NÁM BÍLAR ]
GÓÐAN DAG!
Í dag er miðvikudagur-
inn 19. apríl, 109. dagur
ársins 2006.
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík 5.42 13.27 21.14
Akureyri 5.19 13.11 21.07
Heimild: Almanak Háskólans
KRABBAMEINSFÉLAGIÐ
HEFUR GEFIÐ ÚT NÝTT
FRÆÐSLURIT UM REYKINGAR.
Krabbameinsfélag Íslands
gaf nýlega út ritið Hættu fyrir
lífið, sem hjálpa á fólki sem
vill hætt að reykja. Bækling-
urinn heitir á frummálinu,
Giving up for life, og er
saminn af Jennifer Percival
hjúkrunarfræðingi og ráðgjafa
í tóbaksvörnum hjá Royal
College of Nursing í Bret-
landi. Bæklingurinn er þýddur
og staðfærður af Krabba-
meinsfélagi Reykjavíkur með
góðfúslegu leyfi National
Health Service (NHS).
Í bæklingnum, sem skipt er
niður í nokkra kafla, er svarað
nokkrum algengum spurning-
um. Til dæmis: hvers vegna
reyki ég, hvernig get ég hætt,
hvernig losna ég við löng-
unina, hvernig tekst ég á við
fyrstu dagana, hvernig forðast
ég fall og hvaða áhætta fylgir
því að halda áfram að reykja.
Hægt er að nálgast bækling-
inn á heilsugæslustöðvum og
apótekum. Einnig er hægt að
panta eintök hjá Lýðheilsu-
stöð og skoða hann á vefsíðu
Krabbameinsfélagsins.
Hættu
fyrir lífið
Hættu fyrir lífið, er fræðslurit
sem hjálpa á fólki að hætta að
reykja.
Júlía Sigurðardóttir lauk BA-prófi í
mannfræði og sálfræði frá Háskóla
Íslands haustið 2004. Núna er hún
að klára diplómanám í uppeldis- og
kennslufræði frá sama skóla.
Uppeldis- og kennslufræði er eitt ár eftir
BA-próf og Júlía byrjaði í náminu síðasta
haust. „Ég hafði val um að taka bara fimmt-
án einingar og vera í hálfu námi en þá hefði
ég einungis haft kennsluréttindi á fram-
haldsskólastigi svo ég ákvað að taka frekar
þrjátíu einingar því þá fæ ég líka réttindi
til að kenna á barna- og unglingastigi í
grunnskóla,“ segir hún.
Hluti af uppeldis- og kennslufræðinám-
inu er starfsþjálfun. „Ég fékk Fjölbrauta-
skólann í Ármúla sem heimaskólann minn
og starfsþjálfunin er allan veturinn sam-
hliða fyrirlestrum í háskólanum. Fyrir-
lestrarnir eru samkvæmt stundatöflu en
starfsþjálfunin er skipulögð í samráði við
leiðbeinanda sem hver nemandi fær og svo
er skyldumæting á fyrirlestra í heimaskól-
anum einu sinni í viku.“
Júlía er mjög ánægð með að hafa ákveð-
ið að fara í kennslufræði. „Þetta er ótrú-
lega skemmtilegt nám. Starfsþjálfunin er
náttúrlega langskemmtilegust en mér
finnst allir kúrsarnir mjög áhugaverðir
líka.“
Júlía segir að það hafi komið henni mest
á óvart hvað námið er persónulegt. „Við
þurfum að halda dagbók og skila feril-
möppu svo við erum í mikilli sjálfsskoðun
og sjálfsgagnrýni.“
Júlía segir að ýmislegt komi til greina
þegar hún er búin með þetta nám. „Ég gæti
til dæmis tekið master í kennslufræði en
það er líka margt annað sem mig langar til
þess að læra. Mér finnst leikhúsfræði mjög
spennandi og svo langar mig til þess að
læra brúðuleikhúsgerð og glerblástur.“
emilia@frettabladid.is
Í mikilli sjálfsskoðun
í kennslufræðinni
Júlía Sigurðardóttir hefur nóg að lesa í uppeldis- og kennslufræðinni. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
SÍÐAST EN EKKI SÍST...
Óvenjumikið var um for- og frumsýn-
ingar á bílasýningunni í New
York á dögunum.
BÍLAR 2
FERÐALANGUR Á
HEIMASLÓÐ
Ferðalangur á Heimaslóð er
sannkölluð hátíð fyrir ferða-
fíkla. Þar geta þeir kynnt sér
þá fjölbreyttu möguleika sem
íslensk ferðaþjónusta hefur
upp á að bjóða.
FERÐIR 5