Fréttablaðið - 19.04.2006, Page 31

Fréttablaðið - 19.04.2006, Page 31
Einelti er nú orðið æði algengt á netinu og gegnum farsíma. Einelti hefur þróast með tækninni gegnum árin og nú verða börn ekki aðeins fyrir aðkasti á skólalóðinni heldur einnig í gegnum internetið og gegnum farsímana sína. Gerð var skoðanakönnun á Bretlandi sem birtist á fréttavef BBC. Sýndu niðurstöður hennar að um fimmtán prósent barna hefðu fengið ógnandi og meiðandi skila- boð í tölvupósti eða með smáskila- boðum í síma. Stúlkur áttu auð- veldara með að viðurkenna að hafa lent í slíku einelti og því álykta rannsakendur að hlutfall stráka sem orðið hafa fyrir einelti gegn- um síma eða tölvu geti verið mun hærra en fimmtán prósent. Mikilvægt er að foreldrar og yfirvöld séu meðvituð um þetta form eineltis. Þar sem eineltið er óbeint getur það dreifst hratt um skólann, jafnvel út fyrir hann, enda er mörgu af því sem sett er inn á netið tekið sem sannleika. Breska skoðanakönnunin stóð yfir í fjögur ár og náði til ellefu þúsund barna. Niðurstöðurnar sýndu ótvírætt að þessi tegund eineltis færðist sífellt í aukana. ■ Einelti á tækniöld Einelti hefur tekið á sig nýja og alvarlegri mynd. NORDICPHOTOS/GETTYIMAGES Á fyrsta fjórðungi ársins hafa þrettán greinst með lekanda. Þetta bendir til að tilfellum sé að fjölga. Þrettán sjúklingar greindust með lekanda á fyrstu þremur mánuð- um ársins. Alls greindust nítján manns með lekanda allt árið 2005. Þetta kemur fram í farsóttarfrétt- um Landlæknisembættisins og bendir til áframhaldandi fjölgunar tilfella sjúkdómsins á Íslandi. Milli áranna 2004 og 2005 fjölg- aði greindum tilfellum lekanda einnig mikið; tvöfaldaðist á milli ára. Karlmenn hafa verið meiri- hluti sjúklinga síðustu tvö ár, flest- ir á aldrinum 20 til 29 ára. Nánast allir sem greinast búa á höfuð- borgarsvæðinu og flestir eru greindir á húð- og kynsjúkdóma- deild Landspítala - háskólasjúkra- húss sem annast meðferð og rekur smitleiðir. Helstu einkenni lekanda eru sviði við þvaglát og útferð frá þvagrás og/eða leggöngum. Algengara er að konur beri ein- kennalausa sýkingu en mestur hluti karla fær einkenni. Lekandi smitast við samfarir, munnmök og samfarir um endaþarm og geta einkennin því verið hálssærindi eða útferð og eymsli í endaþarmi. Sýkingin getur leitt til ófrjó- semi ef meðferðar er ekki leitað. Bakterían getur einnig borist út í blóðið og í önnur líffæri. Í Farsóttarfréttum er einnig rætt um mikilvægi þess að fólk verndi sig gegn smiti og fari reglu- lega í eftirlit. ■ Tilfellum lekanda fjölgar Mikilvægt er að verja sig gegn smiti á kynsjúkdómum. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA Krabbameinsfélag Reykjavík- ur hjálpar fólki að hætta að reykja. Krabbameinsfélag Reykjavíkur hefur um árabil haldið námskeið fyrir einstaklinga eða hópa sem vilja hætta að reykja. Næsta reyk- bindindisnámskeið hefst miðviku- daginn 26. apríl 2006. Þar fá þátt- takendur fræðslu og ráðgjöf til að hætta að reykja ásamt stuðningi til að takast á við reyklausa framtíð. Leiðeinandi er Halla Grétarsdóttir hjúkrunarfræðingur hjá félaginu. Hægt er að skrá sig á hallag@krabb. is eða í síma 540 1900. ■ Reykbindind- isnámskeið Það getur verið gott að fá aðstoð við að drepa í síðustu sígarettunni. Næstu námskeið hjá Maður lifandi 25. apríl Er heilsan í fyrirrúmi? Örn Jónsson. 26. apríl Heilbrigði og hamingja. Benedikta Jónsdóttir. 27. apríl Rope yoga 27. - 30. apríl. 02. maí Sætuefnið Aspartam - Er Diet kók betra en venjulegt kók? Haraldur Magnússon. 09. maí Kennsla í notkun jurta og fæði við gigt. Kolbrún Björnsdóttir. 550 5000 AUGLÝSINGASÍMI N† VÖRU- OG fiJÓNUSTUSKRÁ Á VISIR.IS/ALLT F í t o n / S Í A ALLT FYRIR HEILSUNA ALLT er n‡ vöru- og fljónustuskrá á visir.is. Ef flú ert a› breyta um lífsstíl er gott a› hafa ALLT vi› höndina flví flar finnur flú ALLT sem flú flarft til a› ö›last hraustan líkama og heilbrigt útlit. ALLT er líka a› finna í fljónustunúmerinu 1850 og í vor ver›ur ALLT bókinni dreift til allra landsmanna. fiú finnur ALLT á visir.is! ... sem flig vantar til a› hefja n‡tt líf MIÐVIKUDAGUR 19. apríl 2006 31

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.