Fréttablaðið - 19.04.2006, Blaðsíða 48
19. apríl 2006 MIÐVIKUDAGUR32
menning@frettabladid.is
Kl. 20.00
Halla Steinunn Stefánsdóttir
barokkfiðluleikari og Karl Nyhlin
lútuleikari leika barokktónlist í
Norræna húsinu. Á efnisskránni
verða meðal annars hermiverk
eftir Biber, Schmelzer, Pandolfi
og Farina.
!
> Ekki missa af...
Leikritinu Forðist okkur í
Borgarleikhúsinu, síðustu
sýningar á merku verki
Hugleiks Dagssonar og
leikhópsins Common
Nonsense.
Galakvöldi Óperukórs Hafn-
arfjarðar í Gullhömrum í
Grafarholti í kvöld. Glitrandi
stemning og góðir gestir.
Tónleikum Skagfirsku
Söngsveitarinnar í Reykjavík
í Langholtskirkju á morgun
kl. 17.00. Einsöng syngja
Jóhann Friðgeir Valdimars-
son og Baldvin Júlíusson.
Leikritið Íslenski fjölskyldusirkus-
inn sem Leikfélag Menntaskólans
við Hamrahlíð sýnir hefur hlotið
frábærar viðtökur áhorfenda og
nú hefur félagið ákveðið að bæta
við sýningum. Aðeins þrjár auka-
sýningar verða haldnar, allar í
þessari viku en sú fyrsta verður
annað kvöld.
Sýningin hefur vakið mikla
athygli fyrir sérstaka nálgun á
leikhúsformið, og efni hennar
þykir stinga á mörgum kýlum sem
leynast undir fallegu yfirborði
íslensks fjölskyldulífs. Verkið er
allt samið í spuna á æfingatíman-
um, undir handleiðslu leikstjórans
Sigrúnar Sólar Ólafsdóttur og
skapar hver leikari sínar persónur
sjálfur.
Sýnt er í Verinu í Loftkastalan-
um við Seljaveg og er hægt að
panta miða í síma 848 5448 eða
með tölvupósti midasala@gmail.
com.
- khh
FRÁBÆRAR VIÐTÖKUR Ýmislegt gengur á hjá íslenskum fjölskyldum. FRÉTTABLAÐIÐ/ E.ÓL
Sirkusinn áfram
Vika bókarinnar hefst í dag og munu bókaormar
vísast fagna því með margvíslegum hætti. Í tilefni
þessa mun Félag bókaútgefenda
senda 1000 króna bókaávísun inn
á hvert íslenskt heimili sem lands-
menn geta nýtt upp í bókakaup sín.
Benedikt Kristjánsson, framkvæmda-
stjóri Félags bókaútgefenda, segir að
engin formleg dagskrá verði á þeirra
vegum þetta árið en ávísunin sé gjöf
þeirra og Glitnis til lesenda. Síðustu ár
hefur félagið staðið að útgáfu gjafa-
bókar sem fylgt hefur með kaupum á
íslenskum bókum en þetta árið geta
lesendur valið sjálfir hvernig þeir nýta
sér þessa kjarabót en ávísunin er gild
til 3. maí. „Með þessu móti erum
hvorki við né bóksalar að ákveða fyrir
lesendur hvað þeir eiga að kaupa eða lesa. Við
vonum eins og ætíð að þetta verði nýtt, til dæmis
til hagsbóta fyrir börnin,“ segir Benedikt og áréttar
að margoft hafi komið fram að lengi búi að fyrstu
gerð þegar kemur að börnum og
lestri. „Ef við berum gæfu til þess
að byrja snemma að lesa fyrir
börn, helst strax í móðurkviði,
þá gengur þeim börnum yfirleitt
betur í lífinu sem alast up við
lestur. Lesturinn eykur til dæmis
málþroska, tjáningu og skilning,“
segir Benedikt
Næstkomandi sunnudag er
dagur bókarinnar samkvæmt
UNESCO en hérlendis er heilli
bókaviku fagnað því dagurinn
skarast oft á við aðra frídaga og
segir Benedikt að bókavikan sé
kjörin afsökun til að minna enn
frekar á gildi lesturs og kærkomið tækifæri til þess
að fjalla um bækur frá öllum sjónarhornum. -khh
Ávísun á meiri lestur
BENEDIKT KRISTJÁNSSON
Átaksverkefni í Viku bókar-
innar
ALLT SEM fiIG VANTAR
ER Á VISIR.IS/ALLT
n‡ vöru- & fljónustu-
skrá á visir.is
Auður Jónsdóttir, rithöfundur,
hefur fært sig frá Máli og menn-
ingu yfir til JPV útgáfu sem mun
framvegis gefa bækur hennar út.
„Það er ekkert dramatískt við
þessi umskipti, þetta var algjör-
lega að mínu frumkvæði,“ segir
Auður sem er búsett í Kaup-
mannahöfn. „Ég hef verið hjá
Eddunni síðan 1998 eða frá því ég
var unglingur og nú er ég einfald-
lega að leggja í nýtt ferðalag,“
segir Auður og líkir umskiptun-
um við það að fá sér nýja skó eða
fara í klippingu. Slíkt sé öllum
hollt.
„Það er búið að vera yndislegt
að vera hjá Eddunni og ég á eftir
að sakna fólksins þar. Það má eig-
inlega segja að Mál og menning
hafi verið minn menntaskóli og
nú er ég að útskrifast,“ segir
Auður sem segist þó hlakka mikið
til þess að vinna með Jóhanni Páli
og það sé aldrei að vita nema hún
verði eilífðarstúdent hjá honum.
Auður hefur búið í Kaup-
mannahöfn undanfarin ár ásamt
eiginmanni sínum, Þórarni Leifs-
syni myndlistarmanni, og unir
hag sínum vel þar. Hún vinnur nú
að nýrri skáldsögu þar sem aðal-
sögusviðið er stórborg. „Ég veit
ekki hvenær hún verður tilbúin,
líklega ekki fyrir næstu jól, ég
tek mér þann tíma sem þarf,“
segir Auður sem hyggur á ferða-
lag til Barcelona í sumar ásamt
eiginmanni og stjúpdóttur í leit
að innblæstri í mannþrönginni.
Jóhann Páll Valdimarsson,
útgáfustjóri JPV, er hæstánægð-
ur með að hafa fengið Auði í sínar
raðir og segir það mikið fagnað-
arefni að fá jafn góðan höfund og
Auði í þann öfluga hóp rithöfunda
sem útgáfan hefur á sínum snær-
um. JPV mun einnig sinna erlend-
um réttindamálum Auðar en JPV
hefur náð góðum árangri erlendis
undanfarið og er skemmst að
minnast sölu á Öxinni og jörðinni,
eftir Ólaf Gunnarsson og Valkyrj-
um Þráins Bertelssonar til stórra
evrópskra forlaga auk þess sem
Tími Nornar-
innar eftir
Árna Þórarins-
son var á dög-
unum seld til
Hollands fyrir
hærri upphæð-
ir en áður hafa
sést í kaupum
á íslenskum
reyfurum.
Auður er
fædd árið 1973
og hefur þegar
sent frá sér
þrjár skáldsög-
ur, Fyrsta
skáldsaga hennar, Stjórnlaus
lukka, var á sínum tíma tilnefnd
til Íslensku bókmenntaverðlaun-
anna og síðasta skáldsaga hennar,
Fólkið í kjallaranum, hlaut
Íslensku bókmenntaverðlaunin
árið 2004 og var ennfremur til-
nefnd til Bókmenntaverðlauna
Norðurlandaráðs árið 2005.
Auður hefur einnig sent frá
sér þrjár barnabækur en ein
þeirra, Skrýtnastur er maður
sjálfur, er bók fyrir börn um Hall-
dór Laxness, afa Auðar. Hún var
kosin besta barnabókin í kosn-
ingu íslenskra bóksala 2002 og
hlaut viðurkenningu Upplýsing-
ar, félags bókasafns- og upplýs-
ingafræðinga, sem besta fræði-
bókin handa börnum 2002 og var
tilnefnd til Íslensku bókmennta-
verðlaunanna.
-snæ/þþ
Engin dramatík
í vistaskiptum Auðar
AUÐUR JÓNSDÓTTIR Hefur sagt skilið við Eddu útgáfu og fært sig yfir til JPV-útgáfunnar sem
mun héðan í frá gefa út bækur hennar.
JÓHANN PÁLL VALDI-
MARSSON Tekur Auði
Jónsdóttur fagnandi
en rithöfundurinn
hefur ákveðið að færa
sig frá Máli og menn-
ingu yfir til JPV.
Kvikmyndin A Little Trip to Hea-
ven eftir Baltasar Kormák vann til
verðlauna á hinni árlegu spennu-
myndahátíð í Cognac í Frakklandi.
The Cognac International
Thriller Film Festival er ein af
helstu kvikmyndahátíðum sem
haldnar eru í Frakklandi ár hvert.
Lauk henni sunnudagskvöldið 10.
apríl með verðlaunaafhendingu
þar sem A Little Trip to Heaven
hlaut alþjóðlegu gagnrýnenda-
verðlaun hátíðarinnar (FIPRES-
CI). Þess má geta að myndin vann
einnig til alþjóðlegra gagnrýn-
endaverðlauna á kvikmyndahátíð-
inni í Gautaborg í febrúar.
Baltasar vann frönsk verðlaun
A LITTLE TRIP TO HEAVEN Kvikmynd
Baltasars Kormáks vann verðlaun á franskri
kvikmyndahátíð.