Fréttablaðið - 19.04.2006, Side 50
19. apríl 2006 MIÐVIKUDAGUR34
Jazzhátíð Garðabæjar
verður nú haldin í fyrsta
sinn með formlegum hætti
og hefst með tónleikum að
kvöldi sumardagsins fyrsta.
Garðabær hefur fóstrað marga af
þekktari djasstónlistarmönnum
þjóðarinnar um lengri eða skemmri
tíma og munu níu fornir og nýir
Garðbæingar verða í forgrunni á
hátíðinni, þar á meðal Björn Thor-
oddsen, Haukur Gröndal, Óskar
Guðjónsson og Sigurður Flosason.
Sá síðastnefndi er núverandi bæj-
arlistamaður Garðabæjar og einn
af skipuleggjendum dagskrárinnar.
„Þetta er fyrsta reglulega djasshá-
tíðin í Garðabæ sem síðan verður
vonandi vísir að árvissum við-
burði,“ segir Sigurður en hann er
sjálfur aðfluttur Garðbæingur.
Hann segir að tónlistarlífið sé gott í
bænum. „Hér er gróskumikið
mannlíf og það koma margir góðir
tónlistarmenn úr Garðabæ,“ útskýr-
ir Sigurður og áréttar að hátíðin
gangi nú út á að stefna þessu góða
fólki saman hvort sem það er inn-
fætt eða aðflutt.
„Áherslan á hátíðinni er á nýja
Garðbæinga og á fjölbreytta djass-
tónlist. Djasstónlist hefur mjög
breitt svið og það ættu allir að geta
fundið eitthvað við sitt hæfi. Við
erum til dæmis með mjög hefð-
bundna og aðgengilega tónlist en
líka ansi framsækna og fríska
músík og allt þar á milli.“
Alls verða sex tónleikar haldnir,
tvennir hvern dag og fara þeir allir
fram í sal Tónlistarskólans í Garða-
bæ í Kirkjulandi 11. Að kvöldi sum-
ardagsins fyrsta ríður Kvartett
Sigurðar Flosasonar á vaðið ásamt
Kristjönu Stefánsdóttur söngkonu
og fagnar útkomu nýs geisladisks,
Hvar er tunglið?, en þar má finna
frumsamin lög eftir Sigurð við
texta Aðalsteins Ásbergs Sigurðs-
sonar. Að þeim tónleikum loknum
munu systkinin Ragnheiður og
Haukur Gröndal flytja íslensk
þjóðlög í nýjum útsetningum.
Á föstudaginn verður dagur gít-
arsins en kl. 20 hefjast sólótónleik-
ar Hilmars Jenssonar þar sem
hann leikur eigin tónsmíðar á
kassagítar. Síðan munu þeir Björn
Thoroddsen og Jón Rafnsson taka
við og leika ásamt sveiflukóngi
danska klarinettsins, Jörgen
Svare.
Dagskránni lýkur á laugardag
með kokteil af slagverksspuna og
leikhústónlist þar sem Matthías
Hemstock og Pétur Grétarsson
troða upp kl. 15.00 og flytja ófyrir-
sjáanlega slagverks- og raftónlist-
arblöndu en bræðurnir Óskar og
Ómar Guðjónssynir fylgja þeim
síðan eftir með þjóðlegri leikhús-
tónlist úr leikritinu um Sölku Völku
kl. 16.15.
Forsala miða á dagskrána er í
útibúi Glitnis í Garðabæ en almenn
miðasala verður við inngang
klukkustund fyrir tónleika.
kristrun@frettabladid.is
Hátíðardjass í Garðabæ
KVARTETT SIGURÐAR FLOSASONAR OG KRISTJANA STEFÁNSDÓTTIR SÖNGKONA Útgáfutónleikar í Tjarnarsal Ráðhússins í kvöld og opnun
Jazzhátíðar Garðabæjar á morgun. FRÉTTABLAÐIÐ/ GVA
Menn eiga það til að leita langt yfir
skammt því oft virðist grasið
grænna í næstu sýslu eða nágranna-
landi þegar kemur að skipulagi
ferða og frítíma. Höfuðborgarstofa
og Ferðamálasamtök höfuðborgar-
svæðisins taka nú höndum saman í
þriðja sinn og kynna ferðatengda
þjónustu á höfuðborgarsvæðinu á
sumardaginn fyrsta. Fjölmörg fyr-
irtæki og stofnanir munu opna sínar
dyr í tilefni dagsins og kynna þá
afþreyingu sem í boði er í borginni
og nágrenni hennar en dagskrárliðir
eru ýmist ókeypis eða með veruleg-
um afslætti.
Á og við höfuðborgarsvæðið má
til dæmis velja á milli þriggja
stuttra kynnisferða með hópbílum
og leiðsögn á íslensku út fyrir borg-
ina en einnig verður boðið upp á
skipulagðar gönguferðir, til dæmis
Laugavegsgöngu hina skemmri úr
þvottalaugunum og niður Laugaveg-
inn í boði Ferðafélags Íslands, göngu
á Hengilinn, álfagöngu og miðborg-
argöngu. Í dagskrárliðunum „Á ferð
og flugi“ og „Sigldur, ferðalangur“
er boðið upp á stutt útsýnisflug,
hestaferðir, kajaksiglingu, sjóst-
angaveiði og hvalaskoðun og mun
hafnarsvæðið í miðborg Reykjavík-
ur verða með líflegasta móti.
Margt fleira er í boði og dag-
skrána hægt að nálgast á www.fer-
dalangur.is en henni verður að auki
dreift í öll hús á höfuðborgarsvæð-
inu í dag. - khh
VIÐEYJARSIGLINGAR Á SUMARDAGINN
FYRSTA Það er margt í boði innan borgar-
markanna.
Lítum okkur nær
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
APRÍL
16 17 18 19 20 21 22
Miðvikudagur
■ ■ TÓNLEIKAR
20.00 Kvartett Sigurðar
Flosasonar heldur útgáfutónleika í
Tjarnarsal Ráðhúss Reykjavíkur
ásamt Kristjönu Stefánsdóttur
söngkonu.
20.00 Marilee Williams, Haukur
Páll Haraldsson og Donald Wages
flytja amerískar söngperlur í Salnum
í Kópavogi.
■ ■ SKEMMTANIR
23.00 Upplyfting spilar á
Kringlukránni.
■ ■ FYRIRLESTRAR
12.15 Guðmundur A.
Guðmundsson , fuglafræðingur
Náttúrufræðistofnun Íslands,
flytur fræðsluerindi: „Margæsir
á ferð og flugi“ á Hrafnaþingi
Náttúrufræðistofnunar, í sal
Möguleikhússins við Hlemmtorg í
Reykjavík.
■ ■ FUNDIR
12.00 Opinn hádegisfundur
Vísindafélags Íslendinga og
Reykjavíkurborgar um fuglaflensu í
Tjarnarsal Ráðhúss Reykjavíkur.
■ ■ DANSLIST
20.00 DANSleikhúsið
sýnir Fallinn engil eftir Irmu
Gunnarsdóttur og I’m FINE eftir
Höllu Ólafsdóttur og Nödju
Hjorton. Sýnt er í Borgarleikhúsinu.
■ ■ UPPÁKOMUR
21.00 Söngkonan Margrét
Sigurðardóttir syngur og bregður
á leik í margmiðlunarsýningunni
The Big Cry í Kassanum við
Lindargötu.
Upplýsingar um viðburði og sýningar
sendist á hvar@frettabladid.is ekki
síðar en sólarhring fyrir birtingu.
SUMARGJAFIR
FYRIR BÖRNIN
20%
AFSLÁTTUR AF
BARNASETTUM
VERÐ: 5.520,-
BARNASETT 4-7 ÁRA
VERÐ ÁÐUR: 6.900,-
HOLE IN ONE • BÆJARLIND 1-3 • SÍMI: 577 4040 • WWW.HOLEINONE.IS
VERÐ: 7.120,-
BARNASETT 7-10 ÁRA
VERÐ ÁÐUR: 8.900,-
VERÐ: 10.320,-
BARNASETT 10-12 ÁRA
VERÐ ÁÐUR: 12.900,-
ka
ld
al
jó
s
20
06
10 - 18
10 - 16
12 - 16
Opnunartími:
Mán - fös...................
Laugardaga...............
Sunnudaga................
[TÓNLIST]
UMFJÖLLUN
Það er alltaf hálfgert ævintýri að
hlusta í fyrsta skipti á plötur The
Flaming Lips. Þetta er svo vand-
virk sveit að bara það að fá disk-
inn sjálfan í hendurnar er spenn-
andi. Svo, áður en maður setur
sjálfan diskinn í, er það ágætis
fimm mínútna veisla að lesa yfir
lagaheitin. Hvaða sveit önnur
kemst upp með það að kalla lögin
sín My Cosmic Autumn Rebellion
eða The Wizard turns on the giant
silver flashlight and puts on his
werewolf moccasins?
Tónlistin er alveg í takt við
þessi súru lagaheiti. Mig grunar
að liðsmenn The Flaming Lips
eigi sér lítið líf utan tónlistarinn-
ar. Það kæmi mér ekkert á óvart
ef þeir byggju allir saman í hljóð-
verinu og litu ekki dagsins ljós
fyrr en þeir hefðu klárað plötu.
Þessi tók tvö ár í vinnslu og er
framúrskarandi í útsetningum og
vinnslu. The Flaming Lips er
gædd þeim einstaka hæfileika að
geta gefið hverju lagi líf fyrir sig.
Það er að segja, nánast hvert ein-
asta lag er í öðrum hljóðheimi en
það sem á undan var. Þannig
hljómar upphafslagið, The Yeah
yeah yeah song, eins og The Boy
least likely to á sýru og The Sound
of failure minnir mig alltaf á und-
arlegan hátt á Led Zeppelin lagið
frábæra No quartet.
Önnur lög eru nokkuð beint
áframhald af síðustu plötu
Flaming Lips, Yoshimi battles the
pink robots. Nokkuð daðrað við
fönk og elektróník hér og þar en
alltaf ofan á þann rokkgrunn sem
sveitin hefur. Lagasmíðar eru
nokkuð svipaðar, undarlega lag-
lausar laglínur ofan á nýstárleg-
an hrærigraut hljóða frá annarri
plánetu þar sem öllum reglum
hefur verið hent út um gluggann.
Textarnir eru svo kafli út af
fyrir sig. Sérvitringurinn Wayne
Coyne býður upp á heimsspeki-
legar vangaveltur um eðli manns-
ins, eins og í fyrsta útvarpsslag-
aranum, eða heilabrot um tilvist
guðs. Allt þetta með grípandi
popptóna sveimandi undir. Hér
og þar er svo minnst á dægur-
hetjur á borð við Britney Spears,
Gwen Stefandi eða Donald Trump.
Textarnir eru reyndar líka góð
lesning yfir róandi tebolla.
The Flaming Lips hefur aldrei
fengið þá virðingu meðal almenn-
ings sem hún eiga skilið að fá. Ég
leyfi mér að efast um að það séu
margar jafnháþróaðar sveitir og
þessi að æla út jafn mögnuðum
plötum með nokkurra ára milli-
bili. Ég er byrjaður að trúa því að
liðsmenn The Flaming Lips séu
ekki mennskir. Að minnsta kosti
ekki lengur. Þetta hljómar stund-
um of fullkomið. Vélmennin hafa
tekið hetjur okkar yfir og stjórna
núna ferðinni. Ég kvarta ekki, því
þetta er eðalplata. Ef þetta væri
fyrsta plata hljómsveitar, hefði
sú sveit getað íhugað heimsyfir-
ráð. Birgir Örn Steinarsson
Geimóperan heldur áfram
THE FLAMING LIPS:
AT WAR WITH THE MYSTICS
Niðurstaða: Enn önnur frábær plata frá The
Flaming Lips. Þó þessir menn þrammi sinn stíg
ekki varlega virðast þeir ekki getað misstigið
sig. Álíka súr og síðasta plata með nokkrum
popplögum á milli.