Fréttablaðið - 19.04.2006, Side 52
19. apríl 2006 MIÐVIKUDAGUR36
Kristján B. Jónasson:
Útþurrkun samfélagsins eins og
við þekkjum það í sterku ljóði.
Segir meira en allar fuglaflensu-
fréttir samanlagðar.
Þórarinn Þórarinsson:
Skemmtilega bölsýnn drungi svífur
yfir vötnum og er dregin upp sterk
mynd í flottum heimsósóma enda
segir það sig sjálft að það er fokið
í flest skjól þegar afarnir farga sér.
Ragnheiður Eiríksdóttir:
Þegar afarnir fyrirfara sér
Þetta er eins og lokakafli í mjög
sorglegu lagi, þar sem endurtekn-
ingarnar rífa dramatíkina upp.
Heimsendaljóð sem framkallar
gæsahúð.
Þegar afarnir fyrirfara sér
Þegar mistökin verða ekki tekin
aftur. Þegar ömmurnar gráta.
Þegar afarnir fyrirfara sér. Það
hjálpar okkur enginn. Þetta verður
ekki aftur tekið. Við fengum okkar
tækifæri. Þegar heimurinn hrynur.
Þegar gráturinn er einn eftir. Þú
heyrir öskur, sérð fólk á hlaupum.
Hvert ætlið þið að hlaupa? Þegar
plánetan verður þögul. Þegar
mistökin verða ekki aftur tekin.
Þegar ömmurnar gráta. Þegar
afarnir fyrirfara sér.
[UMFJÖLLUN]
TÓNLIST
Það virðist vera að mótast hefð í
indírokkinu fyrir því að tvær eða
þrjár súpergrúbbur skjótast fram
á sjónarsviðið, fastmótaðar og
óvenjulega þróaðar á ári hverju.
Þannig buðum við velkomnar
nokkrar frábærar sveitir inn á
iPod-ana okkar, á borð við Interpol,
Arcade Fire og nú síðast Clap Your
Hands Say Yeah. Næsta unga
undur er þessi sveit hér, Tapes
N´Tapes. Þessi frumraun þeirra,
The Loon, er hreint afbragð.
Mig grunar að við eigum örri
tæknibyltingu í hljóðupptökum
síðustu árin að þakka fyrir þetta.
Nú geta rokksveitir gert plötur í
hæsta gæðaflokki sjálfar, inni í
stofu hjá sér ef þær vilja, án
afskipta frá smeykum útgáfu-
stjórnum plötufyrirtækja sem
þora ekki að taka áhættu af ótta
við að standa ekki við fjárhagsá-
ætlun ársins. Þetta þýðir að það er
ekki búið að vatnsblanda afurðina
áður en hún ratar til eyrna okkar.
Því ef plata hljómsveitarinnar er
góð, eiga plötufyrirtækin eftir að
keppast um hana, og samþykkja
þannig hæstu kröfur hljómsveit-
arinnar. Það er langt síðan hljóm-
sveitir höfðu svona gott tækifæri
til þess að gera nákvæmlega það
sem þeim sýnist og ekkert annað.
Það er ekkert nýtt við hljóm
Tapes N´Tapes. Örlítið af Pixies
hér, smá af Modest Mouse eða
Talking Heads þar og hugsanlega
örlítill keimur af The Shins. Þetta
er nýbylgjurokktónlist, þar sem
kassagítarinn sér um að hamra
hljómum á hlustandann í stað rif-
inna rafmagnsgítara. Lögin eru
það fáránlega grípandi og elsku-
leg að það hljóta að vera örlög
þessarar sveitar að verða risastór.
Þessi frumraun þeirra verður að
minnsta kosti ein af plötum ársins,
sama hversu fínt ár er framundan.
Ég trúi ekki öðru.
Frábær flutningur, frábær lög,
frábær söngur og textar. Frábær
partíplata, indírokk gerist ekki
mikið betra en þetta. Þefið uppi
eintak, strax! Ef plötubúðirnar
eru ekki að standa sig, mæli ég
með iTunes. Skemmtið ykkur vel.
Birgir Örn Steinarsson
Fyrsta undur ársins
TAPES N´TAPES: THE LOON
Niðurstaða: Loksins skilar árið af sér plötu
sem maður heldur varla vatni yfir. Frumraun
Tapes N´Tapes er afbragð, tært og fullkomið
indírokk!
���������
��������� ��������
Í dag birtast næstu tvö ljóðin í
Sigurskáldinu 2006, ljóðakeppni
Fréttablaðsins og Eddu útgáfu,
og lýkur þar með annari umferð.
Í gær fengu lesendur tækifæri
til að gera upp á milli ljóða Fjöl-
listahópsins Pjöllu og Ástu Heiðr-
únar Elísabetar Pétursdóttur en
nú stendur valið á milli ljóða Ótt-
ars Martins Norðfjörð og Atla
Bollasonar en það er á valdi les-
enda hvor þeirra kemst áfram í
undanúrslit keppninnar um Sig-
urskáldið. Þó svo að ummæli
dómnefndar fylgi með, er það á
ykkar valdi lesendur góðir að
velja það ljóð sem ykkur þykir
skara fram úr.
Í kvöld standa eftir fjögur ljóð
sem keppa í undanúrslitum á
fimmtudag og föstudag. Úrslita-
slagurinn fer svo fram um helg-
ina og sjálft Sigurskáldið verð ur
krýnt í lok Viku bókarinnar.
Leitin að Sigurskáldinu heldur áfram
ATLI BOLLASON
Fæddur 1983.
ÓTTAR MARTIN NORÐFJÖRÐ
Fæddur 1980.
HVERNIG VELUR
ÞÚ LJÓÐ?
Til að kjósa þitt ljóð sendir þú ein-
faldlega SMS skeyti, eitt eða fleiri.
Ef þú kýst ljóð Óttars sendir þú
SMS skeytið JA L3 í númerið
1900*.
Ef þú kýst ljóð Atla sendir þú SMS
skeytið JA L4 í númerið 1900*.
* Hvert skeyti kostar 99 krónur.
Dregið verður úr innsendum SMS
skeytum á hverjum degi. Vinnings-
hafi dagsins fær bókina Skuggi
vindsins eftir Carlos Ruiz Zafón.
[án titils]
í dag
er himinninn vatn
og skýin spegilmyndir snævi þakinna fjalla.
mér sýndist ég sjá
engil á skíðum.
Kristján B. Jónas-
son:
Skýr mynd sem lýkur
upp þeim dásemdum
sem blasa við þegar
maður horfir á
heiminn og uppgötv-
ar að hann er fyrst og
fremst fallegur.
Þórarinn Þórarins-
son:
Ósköp fallegt en
dæmigert ljóð en
einhverra hluta vegna
skíðaði engillinn fram
hjá mér án þess að
ég áttaði mig á hvert
hann væri að fara.
Ragnheiður
Eiríksdóttir:
Náttúrufegurð með
tilkomumiklum
lýsingum í bland við
eitthvað yfirnáttúru-
legt. Saman myndar
þetta eitthvað hreint,
mjúkt og umfaðm-
andi.
Nýverið lauk upptökum á mynd-
bandi við lagið Þorkell eftir hljóm-
sveitina Mammút. Tökur fóru fram
á umferðareyju við tjörnina í mið-
bænum.
„Það gekk ágætlega. Við náðum
að taka upp áður en það byrjaði að
rigna,“ segir Guðrún Ísaksdóttir,
bassaleikari Mammút. Myndbandið
er væntanlegt til sýningar í næsta
mánuði.
Fyrsta plata Mammút, sem er
samnefnd sveitinni, kom út á dög-
unum á vegum Smekkleysu. Sveit-
in, sem var stofnuð í lok ársins
2003, varð í fyrsta sæti í Músíktil-
raunum árið 2004 og hefur vakið
sívaxandi athygli allar götur síðan.
Hún hefur hlotið einróma lof gagn-
rýnenda fyrir tónleika sína, meðal
annars frá David Fricke hjá tíma-
ritinu Rolling Stone, hinu breska
tónlistartímariti Music Week og
bresku heimasíðunni playlouder.
com.
Guðrún segir einfalda ástæðu
fyrir því að sveitin hafi ekki gefið
út plötu strax að loknum Músíktil-
raunum. „Við vorum með svo lítið
af efni og það var eiginlega enginn
tími. Það var ágætt að bíða bara,“
segir hún og bætir því við að efnið
á nýju plötunni sé mjög fjölbreytt
og spanni undanfarin tvö ár. Liðs-
menn sveitarinnar semja lögin í
sameiningu.
Útgáfutónleikar sveitarinnar
voru haldnir í byrjun þessa mánað-
ar og gengu frábærlega að sögn
Guðrúnar. Næsta haust eru síðan
fyrirhugaðir tónleikar erlendis og
eru New York, London og Skandin-
avía líklegir ákvörðunarstaðir.
Þeim sem vilja kynnast sveit-
inni nánar er bent á heimasíðuna
www.myspace.com/mammut.
Myndband á umferðareyju
MAMMÚT Hljómsveitin Mammút
hefur gefið út sína fyrstu plötu.