Fréttablaðið - 23.04.2006, Side 8
23. apríl 2006 SUNNUDAGUR
Navision Small Business er öflugur viðskiptahugbúnaður
sem heldur utan um allar viðskipta- og fjárhagsupplýs-
ingar fyrirtækisins og gefur þér skjótan aðgang að öllu
sem þú þarft að vita til þess að hámarka framlegð og ná
fram hagræðingu í rekstri.
• Fjárhagsgrunnur
• Fjárhagsbókhald
• Viðskiptamenn
• Sölureikningar
• Lánardrottnar
• Birgðir
Maritech er eitt stærsta hugbúnaðarfyrirtæki landsins með skrifstofur í Kópavogi
og á Akureyri. Hjá okkur starfar stór hópur vel menntaðra sérfræðinga sem notar
upplýsingatæknina til þess að hjálpa þér að ná betri árangri. Maritech hefur þróað
fjölda viðbóta við Navision viðskiptahugbúnaðinn sem eru lagaðar að þörfum
íslenskra fyrirtækja.
Einfalt og þægilegt viðmót
Einföld uppsetning
Íslenskar handbækur
Staðlaðir bókhaldslyklar
Miklir stækkunarmöguleikar
Tenging við aðrar lausnir
Fjöldi viðbótarlausna
Microsoft samhæft
Aðgangur að þjónustuborði
Fjöldi námskeiða í boði
Hringdu núna í síma 545-3200
Fjárfesting til framtíðar
Þú þarft að
þekkja eigin rekstur
til að geta keppt við aðra
Verð frá kr. 130.900*
Öll verð eru án vsk. *Verð miðast við einn notanda
Flokkur Innlausnartímabil
Lokagjaldagi
Innlausnarverð*
1995 1.fl. B 10 ár 2.5.2006 146.582kr.
Auglýsing um innlausnarverð
verðtryggðra spariskírteina ríkissjóðs
Innlausnarverð er höfuðstóll og verðbætur.*
Reykjavík, 22. apríl 2006
Innlausn spariskírteina ríkissjóðs fer fram hjá Lánasýslu ríkisins, Borgartúni 21, 2. hæð,
hjá Seðlabanka Íslands, Kalkofnsvegi 1 Reykjavík, og bönkum og sparisjóðum um land allt.
1995 1.fl. B 10 ár 2.5.2006 73.291kr.
1995 1.fl. B 10 ár 2.5.2006 1.465.824kr.
Árgreiðslumiði
nafnverð
100.000
50.000
1.000.000
kr.
kr.
kr.
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI
INNFLYTJENDAMÁL Stjórnmálamenn
telja að litla hættu á að þjóðernis-
sinnaður stjórnmálaflokkur fái
hljómgrunn meðal þjóðarinnar.
Arnbjörg Sveinsdóttir, formaður
þingflokks sjálfstæðismanna, ótt-
ast ekki gettómyndun og telur að
það sé enginn grundvöllur fyrir
stjórnmálaflokk. Hún segir að
málefni innflytjenda séu alltaf til
umræðu og stefnumótunar gæti á
ýmsum stöðum í löggjöfinni.
„Ég veit ekki hvað menn eiga
við þegar þeir tala um stefnuleysi
í innflytjendamálum. Ég veit ekki
hvort það er hægt segja að það sé
stefnuleysi þegar menn móta ýmis
mál í löggjöfinni þó að það sé ekki
með stórum og digrum yfirlýsing-
um. Þetta eru almennar yfirlýs-
ingar um að við viljum taka vel á
móti því fólki sem vill búa með
okkur.“
„Það eru gagnkvæmir hags-
munir í því að fólk fái fræðslu og
geti talað tungumálið og það er
ákveðin hætta á gettóum og ein-
angrun ef fólk flytur hingað og
fær ekki fræðslu um tungumálið,
menningu og samfélagið. Ég held
að menn þurfi að taka þetta mál
upp og gera það án fordóma og án
þess að vera stimplaðir „rasistar“.
Mér hefur stundum fundist keim-
ur af því,“ sagði Magnús Stefáns-
son, formaður þingflokks Fram-
sóknarflokksins.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir,
formaður Samfylkingarinnar,
telur ekki óeðlilegt að fólk leiti
saman sem eigi sameiginlegt þjóð-
erni og menningu. Ekkert slæmt
þurfi að vera við það ef fólkið ein-
angrast ekki. „Það þarf líka gæta
að því að hlutfall nýbúabarna í
skólum og leikskólum fari ekki
yfir ákveðið mark og að það sé
sæmilega góð blöndun í skólum og
leikskólum.“
Steingrímur J. Sigfússon, for-
maður vinstri-grænna, telur
Íslendinga þurfa á öllu öðru að
halda en að stofna sérstakan
stjórnmálaflokk til að ala á andúð
og óvild í garð útlendinga. „Það
væri sorgardagur á Íslandi ef slíkt
gerðist,“ segir hann.
„Á Íslandi eiga innflytjenda-
vandamál sér ekki nokkra hlið-
stæðu við það sem má sjá í Noregi.
Ég sé ekki að þetta sé neitt vanda-
mál hér. Útlendingar standa sig
vel hérna og hafa komið með
margt gott inn í íslenskt samfélag.
Ég sé enga þörf fyrir að stofna
sérstakt framboð erlendra ríkis-
borgara,“ segir Magnús Þór Haf-
steinsson, formaður þingflokks
frjálslyndra. ghs@frettabladid.is
Lítil hætta á
rasistaflokki
Fulltrúar stjórnmálaflokkanna telja innflytjenda-
mál í ágætum farvegi hér á landi og óttast ekki að
þjóðernissinnaður stjórnmálaflokkur fái stuðning.
STEFNUMÓTUN Í INNFLYTJENDAMÁLUM Stjórnmálamennirnir taka lítt undir það að stefnu-
mótun vanti í innflytjendamálum. Hennar gæti víða, til dæmis í löggjöfinni. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
BRETLAND Óánægja með ráðandi
stjórnmálaflokka hefur valdið því
að allt að fjórðungur breskra kjós-
enda íhugar að kjósa Breska þjóð-
ernisflokkinn, BNP, en eitt aðal-
baráttumál þessa jaðarflokks á
hægri vængnum er að stöðva
straum innflytjenda til Bretlands.
Þessar eru niðurstöður rannsóknar
sem gerð var á vegum Joseph
Rowntree Charitable Trust, stofn-
unar sem veitir fé til ýmissa verk-
efna í félagsmálum í Bretlandi.
Í rannsóknarskýrslunni er
greint frá því að allt að 25 prósent
breskra kjósenda segi það koma
til greina fyrir sig að kjósa BNP.
Fréttavefur breska ríkisút-
varpsins BBC hefur eftir tals-
manni BNP að niðurstöður skýrsl-
unnar endurspegluðu „spennu“ í
röðum kjósenda vegna fjölmenn-
ingarsamfélagsins svonefnda.
En Andy Burnham, talsmaður
breska innanríkisráðuneytisins,
sagðist telja stuðninginn við BNP
mjög bundinn við einstök kjör-
dæmi, og hann væri að sínu viti að
miklu leyti óánægjufylgi.
En skýrslan endurómar þann
ótta sem atvinnumálaráðherrann
Margaret Hodge hefur lýst af því
að allmargir kjósendur kynnu að
freistast til að kjósa BNP í sveitar-
stjórnarkosningum sem fram fara
í Englandi í maí. - aa
Fjórðungur Breta íhugar að kjósa þjóðernisflokk:
Óánægja með flokka
ÓÁNÆGJUFYLGI Nick Griffin, leiðtogi BNP,
flokks breskra þjóðernissinna. Eins og fram
kemur í frétt hér á síðunni getur fjórðungur
breskra kjósenda hugsað sér að styðja
flokk hans. NORDICPHOTOS/AFP