Fréttablaðið - 23.04.2006, Blaðsíða 86

Fréttablaðið - 23.04.2006, Blaðsíða 86
 23. apríl 2006 SUNNUDAGUR42 Hvað er að frétta? Skæruliðarnir hafa umkringt Vatna- skóg. Augnlitur? Grænn eða brúnn; það er álitamál. Starf? Dagskrárgerðarmaður á Rás 1 og svo hef ég tekið að mér stundakennslu við Háskóla Íslands. Ég vildi að ég gæti sagt að ég hefði atvinnu af skáldskap og ljóðagerð en trúlega flokkast það frekar sem dýrt áhuga- mál. Fjölskylduhagir? Þeir eru mjög einfaldir. Hvaðan ertu? Karlar eru frá Mars, konur eru frá Venus. Um þetta þarf enginn að efast. Ertu hjátrúarfull/ur? Já; ég er alltaf í sömu sokkunum - alltaf. Uppáhaldssjónvarpsþáttur? Dolph&Wulff Uppáhaldsmatur? Spaghetti. Fallegasti staður? Reykjafjörður á Norður-Ströndum. ipod eða geislaspilari? ipod innanhúss; geislaspilari utan- húss − að vera með ipod innanhús er eins og að vera með sólgleraugu á skemmtistað. Hvað er skemmtilegast? Það er skemmtilegast en um leið hættulegast þegar eitthvað nær algjöru kverkataki á manni og maður gleymir öllu öðru; þetta getur gerst á tónleikum, á ferðalagi, við lestur góðra bóka, þegar maður á í skemmtilegum samræðum o.s.frv. Hvað er leiðinlegast? Útrásar- og efnahagsfréttir. Helsti veikleiki? Ég er mjög veikur fyrir bulli. Helsti kostur? Ég svara þessari þegar ég fer í þátt- inn hjá Opruh. Helsta afrek? Og þessari þegar ég fer til dr. Phils. Mestu vonbrigði? Þegar tilkynnt var að herinn væri á förum. Hver er draumurinn? Sharab. Hver er fyndnastur/fyndn- ust? Ég á mjög erfitt með að gera upp á milli danska, fasíska, geðsjúka, bláa flóðhestsins Dolphs og samstarfs- manna minna þeirra Guðna Tómassonar og Eiríks Guðmundssonar. Ef Guðni og Eiríkur töluðu dönsku myndu þeir trú- lega hafa vinninginn. Á hvað trúirðu? Ég trúi á meira og minna á allt sem John Lennon segist ekki trúa á í laginu God. En ég trúi ekki á Yoko Ono. HIN HLIÐIN HAUKUR INGI INGVARSSON, DAGSKRÁRGERÐARMAÐUR Á RÁS 1 Alltaf í sömu sokkunum 12.02.79 Ljósmyndarinn Hákon Pálson leggur þessa dagana lokahönd á blóðugar ljósmyndir sem hann hefur verið að taka að undanförnu en laugardaginn 29. apríl mun hann opna sýningu á myndunum í Gallarí Geli við Hverfisgötu. Myndirnar eiga það allar sameig- inlegt að vera af tónlistarfólki og blóð kemur við sögu á flestum þeirra. „Tónlistarmenn eru skemmtilegt fólk sem auðvelt er að mynda því það vill láta sjá sig,“ segir Hákon. Myndirnar eru tekn- ar í Reykjavík og New York og segir ljósmyndarinn að þó mynd- irnar séu blóðugar þá séu þær fyrst og fremst fallegar enda geti blóð verið mjög fallegt. Hákon, sem er 21 árs, hefur undanfarið tekið tískuljósmyndir fyrir Sirk- usblaðið en hyggur á mótorhjóla- ferðalag um Bandaríkin með haustinu og þá verður myndavélin að sjálfsögðu með í farteskinu. -snæ Blóðugar ljósmyndir FALLEGT BLÓÐ Tónlistarfólkið sem situr fyrir á myndum Hákons er bæði íslenskt og erlent. „Ég hef haft áhuga á Jóni Ara- syni í mörg ár,“ segir Sigurjón Sighvatsson kvikmyndaframleið- andi sem tryggði sér á dögunum kvikmyndaréttinn á sögulegri skáldsögu Ólafs Gunnarssonar um örlög biskupsins sem almennt er talinn síðasti miðaldahöfðing- inn á Íslandi. „Ég hef lesið margt annað um Jón en Öxina og jörðina, bæði sögulegar heimildir og bók Gunn- ars Gunnarssonar. Þegar ég las bók Ólafs mundi ég eftir því að þetta var eitthvað sem mig hafði alltaf langað til að gera og tók mér smá tíma í að móta þessa hugsun mína og velta fyrir mér hvernig mynd ég vildi gera.“ Sigurjón segir að þegar hann hafi fyrst íhugað að gera kvik- mynd um Jón Arason hafi hann hugsað sér hana sem venjulega íslenska bíómynd en nú komi varla annað til greina en að gera „ameríska stórmynd“ byggða á Öxinni og jörðinni. „Ég hef rætt þetta við Ólaf sem er mikill spek- úlant og áhugamaður um kvik- myndir og hann hefur ekki síst áhuga á amerískum bíómyndum og við erum sammála um að það sé rétt nálgun að gera ameríska stórmynd með amerískum stjörn- um, þó hún gerist auðvitað á Íslandi.“ Sigurjón segir að þetta hefði ekki verið hægt fyrir nokkrum árum án þess að eiga það á hættu að þetta yrði „ægilega hallæris- legt“ og nefnir sem dæmi The Viking Sagas sem Íslendingar hafa hlegið að allt frá því hún var tekin upp hér á landi árið 1995. Forsendurnar séu hins vegar gjörbreyttar og „í dag er hægt að gera þetta á mun áhugaverðari hátt“. Sigurjón hefur þegar fært hug- myndina í tal við handritshöfund myndanna K-19: The Widow- maker og Alexander sem Oliver Stone kvikmyndaði fyrir tveimur árum. „Næsta skref er að láta þýða bókina á ensku og sjá hver viðbrögð handritshöfundarins verða við henni.“ Sigurjón segir þó enn langt í land enda taki það nokkur ár að undirbúa gerð stórmynda af þessu tagi. „Ég er til dæmis búinn að vera með aðra sögu- lega mynd í vinnslu í nokkur ár. Þetta er mynd sem byggir á bókinni The Devil in the White City sem fjall- ar um H. H. Holmes, fyrsta raðmorð- ingja Bandaríkj- anna. Tökur á henni geta von- andi hafist í haust en allur undir- búningurinn tekur sinn tíma.“ Sigurjón hefur búið í Los Ang- eles undanfarin 28 ár en hyggst nú færa sig nær heimahögunum og hefur komið sér upp heimili í Kaupmannahöfn þótt hann verði enn með annan fótinn í kvik- myndaborginni vestra. „Ég hef eytt mun meiri tíma í Skandinavíu undanfarin ár enda eru umsvifin þar að aukast. Ég þarf því að hafa aðstöðu í Kaupmannahöfn. Sonur minn býr líka í Danmörku og dótt- ir mín er jafnvel að íhuga nám þar þó ekkert sé ákveðið þannig að það liggur beint við að hafa fasta setu þar. Það er ekkert laun- ungarmál ég hef aldrei ætlað mér að vera í Bandaríkjunum til eilífð- ar þannig að það má segja að þetta sé fyrsta skrefið í að flytja sig yfir. Aðspurður segir Sigur- jón þó að lífið í Los Angeles sé alltaf jafn ljúft. „Það er kannski gallinn,“ svarar hann og hlær, „en kvikmyndabransinn hefur breyst svo mikið, bæði með tilkomu internetsins og nýrrar kvik- myndatækni að maður þarf ekki að vera hér öllum stundum eins og áður. Ég verð auðvitað helst að hafa skrifstofu hérna en föst búseta er ekki nauðsynleg.“ thorarinn@frettabladid.is SIGURJÓN SIGHVATSSON: ÆTLAR SÉR STÓRA HLUTI MEÐ JÓN ARASON Öxin og jörðin verður stórmynd SIGURJÓN SIGHVATSSON Stefnir að því að eyða meiri tíma á Norðurlöndum en í Los Angeles í framtíðinni. „Sonur okkar býr í Danmörku og þar eigum við barnabarn og það er ekkert eðlilegra en að maður reyni að færa sig nær fjölskyldunni þegar hún er að stækka og heimurinn að minnka.“ HRÓSIÐ ... fær Indriði klæðskeri fyrir að ætla sér að klæða danska karlmenn upp á og veita persónu- lega þjónustu. FRÉTTIR AF FÓLKI Jón Ársæll Þórðarson tekur hús á kraftajötninum Hjalta Úrsus Árnasyni í þætti sínum Sjálfstætt fólk á Stöð 2 í kvöld. Hjalti er eins og alþjóð veit annálað ljúfmenni en það breytir því ekki að Jón Ársæll gekk lemstraður af fundi hans, þarfnaðist aðhlynningar og gengur nú með hönd í fatla. Ekki var þó um nein illindi að ræða en Jón vildi endilega reyna sig í aflraunum við Hjalta og kraftakarlana félaga hans og þeir fóru í sjómann. Einn þeirra tók frekar harkalega á sjónvarpsmanninum margverðlaunaða, rétt svona til þess að tryggja það að máttur hans og yfirburð- ir færu ekki milli mála, og viður- eigninni lauk því þannig að Jón þurfti að láta binda um lúkuna. Söngvarinn Garðar Thor Cortes held-ur tónleika ásamt Katherine Jenkins, einhverri vinsælustu sópransöngkonu Bretlands, í Laugardalshöll þann 29. apríl. Allt útlit er fyrir að framhald verði á samvinnu Garðars og Jenkins en hún og hennar fólk hefur boðið Garðari að vera sérstakur gestur á tónleikaferð hennar um Bretland í haust en þá eru fyrirhugaðir hvorki meira né minna en 38 tónleikar. Þá hefur útgáfurisinn EMI falast eftir þriggja til fimm plötu samn- ingi við Garðar. Garðar og umboðsmað- ur hans, Einar Bárðarson, hafa setið nokkra fundi hjá EMI í London vegna þessa en hafa enn ekki gefið lokasvar og að sögn Einars hafa þeir ekki tekið neina ákvörð- un í þessum efnum. -þþ Garðar Thor Cortes ÓLAFUR GUNNARSSON Getur vel hugsað sér Jón Arason í amerískri stórmynd.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.