Fréttablaðið - 23.04.2006, Blaðsíða 15
Dagur B. Eggertsson
33 ára læknir & borgarstjóraefni
Samfylkingarinnar. Býr í miðbænum,
uppalinn í Árbænum.
Stefán Jón Hafstein
51 árs formaður borgarráðs.
Uppalinn í Vogunum, býr í miðbænum.
Steinunn Valdís Óskarsdóttir
41 árs borgarstjóri í Reykjavík.
Uppalin í Laugarnesi og býr í Laugarnesi.
Sigrún Elsa Smáradóttir
33 ára markaðsstjóri. Fædd og uppalin
í Vestmannaeyjum, býr í Fossvogi.
Dofri Hermannsson
36 ára leikari og meistaranemi
í hagvísindum. Hefur búið í Grafarvogi
síðan 1984.
Oddný Sturludóttir
29 ára píanókennari
& rithöfundur. Uppalin í
Árbænum, býr í miðbænum.
Björk Vilhelmsdóttir
42 ára félagsráðgjafi & formaður
Velferðarráðs Reykjavíkur. Uppalin
á Blönduósi, býr í Breiðholti.
Stefnuskrána má lesa
í heild sinni á
www.xsreykjavik.is.
Þjónustutrygging fyrir aldraða
– þjónustuna heim
Við viljum að öll málefni aldraðra verði færð til sveitarfélaganna. Við viljum
halda áfram að efla heimaþjónustu og heimahjúkrun, byggja fleiri hjúkrunar-
heimili og tryggja örugg úrræði þegar á þarf að halda. Allir eldri borgarar eiga
rétt á þjónustu, og því boðum við svokallaða þjónustutryggingu sem þýðir:
Ef þjónustan dregst óeðlilega skapast réttur til greiðslu.
Kraftmikil uppbygging
– 6000 íbúðir
Lykilatriðið er fjölbreytt val um framtíðarhúsnæði. Við viljum vinna að því að
6000 íbúðir og sérbýli af öllum stærðum og gerðum rísi í Reykjavík á næstu
árum á Slippasvæðinu, í miðborginni, við Elliðaárvog, í Úlfarsársdal, Vatnsmýri
og við Hlemm. Við viljum að allir geti fundið sér húsnæði við hæfi.
Byggðar verði 800 íbúðir fyrir stúdenta, 500 fyrir eldri borgara og að
öflugur leigumarkaður verði valkostur fyrir einstaklinga og fjölskyldur
í leit að þaki yfir höfuðið.
Íþróttir, tómstundir og listnám
standi öllum börnum til boða
Við viljum að öll börn fái tækifæri til að þroska hæfileika sína. Samfylkingin vill
auka styrki til frístundastarfs barna til að auka þátttöku og tryggja jöfn tækifæri.
Við viljum færa íþróttir, tómstundir og listnám inn í skólana og að starfsemin
standi öllum áhugasömum börnum til boða. Við viljum að allir foreldrar eigi
val um fjölbreytt tómstundaúrræði fyrir börn sín að loknum hefðbundnum
skóladegi. Þannig verður skóladagurinn innihaldsríkari. Skutl foreldra vegna
tómstunda barna minnkar og mikilvægar samverustundir fjölskyldna aukast
eftir að skóladegi lýkur.
Sérstakt átak í uppbyggingu
grænna svæða og skólalóða
Við höfum byggt upp grunnskóla, leikskóla og stórbætt starfsaðstöðu íþrótta-
félaga. Nú viljum við gera stórátak við fegrun umhverfisins og byggja upp
fyrirmyndaraðstöðu til útivistar og afþreyingar um alla borg. Við leggjum
sérstaka áherslu á uppbyggingu skólalóða, opinna svæða og almenningsgarða.
Við viljum fleiri sparkvelli, hverfatorg, leiksvæði, bekki og borð.
Aukin samkeppnishæfni
– skapandi atvinnulíf
Við viljum efla Reykjavík í alþjóðlegri samkeppni um fólk og fyrirtæki.
Við leggjum áherslu á öryggi, lífsgæði, framúrskarandi menningarlíf og ríka
vaxtarmöguleika atvinnulífs sem byggist á sambýli við vaxandi háskóla.
Við viljum hlúa að ferðaþjónustu, fjármálastarfsemi og þekkingariðnaði og
skapa kjörskilyrði til að stofna og reka fyrirtæki af öllum stærðum og gerðum.
Uppbygging atvinnulífs og framtíðarbyggðar í Vatnsmýri er lykilatriði til að
bæta samkeppnisstöðu Reykjavíkur.
Sjálfstæðir skólar
– framúrskarandi nám
Við viljum tryggja jöfn tækifæri barna til að njóta sín í námi. Við viljum draga
enn frekar úr miðstýringu í menntakerfinu og auka sjálfstæði einstakra skóla
til að móta eigin aðferðir og áherslur. Aukinn sveigjanleiki í skólastarfi er
lykilatriði. Við viljum að námið taki mið af ólíkum þörfum einstaklinga og
að samstarf skóla og foreldra verði aukið.
Framtíðarland í Vatnsmýri
– félag um þróun flugvallarsvæðisins
Við viljum hefja undirbúning að flutningi flugvallarins úr Vatnsmýri á næsta
kjörtímabili. Taka á af skarið um framtíðarstaðsetningu í kjölfar úttektar á
álitlegum kostum sem nú stendur yfir. Samfylkingin leggur til að Reykjavíkur-
borg og ríkið stofni sameiginlegt félag um flutning flugvallarins og þróun
Vatnsmýrarinnar þar sem byggt verði á niðurstöðum yfirstandandi hugmynda-
samkeppni um heildarskipulag svæðisins. Félagið fái hluta tekna af löndum
og lóðum ríkis og borgar á flugvallarsvæðinu til að fjármagna verkefni sín
samkvæmt nánara samkomulagi. Til að tryggja fjölbreytta uppbyggingu
svæðisins verði að minnsta kosti fjórðungur íbúða í Vatnsmýri leiguíbúðir
og stúdentagarðar.
Gjaldfrjáls leikskóli og val um þjónustu fyrir
börn frá lokum fæðingarorlofs
Leikskólabyltingin hefur gjörbreytt lífsskilyrðum fjölskyldna í borginni.
Við viljum tryggja örugg úrræði fyrir börn frá lokum fæðingarorlofs og nýta
þjónustumiðstöðvar borgarinnar í því skyni að aðstoða foreldra við að finna
úrræði við hæfi. Við viljum gjaldfrjálsan leikskóla í áföngum, fjölga leikskóla-
plássum fyrir yngsta aldurshópinn og efla dagforeldrakerfið. Vannýtta gæslu-
velli má nýta til að hýsa samrekstur áhugasamra dagforeldra.
Betri samgöngur
– örugg umferð
Við viljum að Reykjavík verði slysaminnsta höfuðborg Evrópu árið 2012. Þetta
er raunhæft því nú þegar hefur slysum fækkað um helming frá árinu 1998.
Við viljum fjölga samgönguæðum til borgarinnar og frá með Öskjuhlíðar-
göngum og Sundabraut alla leið upp á Kjalarnes. Við viljum öflugar almennings-
samgöngur, setja Miklubraut í stokk og tryggja öruggar göngu- og hjólaleiðir
í öllum hverfum. Tími stórra hraðbrauta í íbúðahverfum er liðinn.
Sterk hverfi
– öflug nærþjónusta
Reykjavíkurborg hefur lagt áherslu á hverfaþjónustu og tekið forvarnarstarf
föstum tökum með góðum árangri. Forvarnir eiga alltaf að vera forgangs-
verkefni. Við viljum öfluga hverfaþjónustu í alhliða þjónustumiðstöðvum og
leggjum áherslu á samvinnu við íþróttafélög, samtök foreldra og félagasamtök
til að gera hverfin sterkari. Við viljum sýnilega hverfalöggæslu í öll hverfi.
Nútíma borg
– einfaldar lausnir
Reykjavík á að vera nútímaleg og þjónustan einföld. Við viljum gera klinkið
óþarft með því að bjóða fólki upp á kortalausnir og farsímagreiðslur
í stöðumæla og strætó. Við viljum rafræna valkosti í þjónustu borgarinnar.
Þetta er í takt við umbætur síðustu ára; einfaldari þjónusta, styttri boðleiðir,
helmingsfækkun nefnda, endurbættur vefur og eitt símanúmer fyrir
Reykjavíkurborg – allan sólarhringinn.
Fólk sem getur,
kann og vill