Fréttablaðið - 23.04.2006, Qupperneq 22
23. apríl 2006 SUNNUDAGUR22
Það er nokk sama hvar borið er niður. Í sjávarútvegi, flug-rekstri, almenningssam-
göngum eða hjá þorra almennings.
Síhækkandi eldsneytisverð hefur
mikil áhrif haft hérlendis. Útgerð
togara sem sækir sömu mið ár
eftir ár greiðir í dag 25 milljónum
króna meira fyrir olíu á ársgrund-
velli en fyrir fjórum árum. Jeppa-
eigandi sem ekur um 20 þúsund
kílómetra á ári greiðir tæplega
250 þúsund krónum meira fyrir
keyrsluna í dag en hann gerði árið
2002. Eldsneytiskostnaður hvers
strætisvagns í höfuðborginni
hefur hækkað um rúmar sjö millj-
ónir á sama tímabili.
Úttekt Fréttablaðsins á áhrif-
um hækkunar eldsneytisverðs síð-
ustu fjögurra ára sýnir að þær
hækkanir hafa sannarlega haft
gríðarleg áhrif víða í þjóðfélag-
inu. Vert er að geta þess að elds-
neytisverð fór að hækka verulega
fyrir þann tíma en mestar hafa
hækkanirnar orðið síðan þá og er
eldsneytisverð í dag hærra en
nokkru sinni.
Svör manna þar sem leitað var
fanga voru á einn veg. Kostnaður
einstaklinga og fyrirtækja hefur á
síðustu fjórum árum því sem næst
tvöfaldast. Kostnaður íslensku
flugfélaganna tveggja, Icelandair
og Iceland Express, hefur tvöfald-
ast eins og sjá má á meðfylgjandi
töflu. Hefur verð á mörkuðum
erlendis hækkað um 23,4 prósent
á síðustu tólf mánuðum eingöngu.
Birgir Jónsson, forstjóri Iceland
Express, segir að þegar fyrirtæk-
ið hóf starfsemi hafi tonnið af
þotueldsneyti kostað 430 dollara
en sé nú vel yfir 700 dollurum.
Samkeppni bæði hérlendis og
erlendis sé þó það mikil að flugfé-
lög eiga óhægt um vik að fleyta
þessum auknakostnaði áfram á
viðskiptavini í formi hækkunar á
fargjöldum. „Það er ómögulegt að
heita og við höfum hingað til tekið
þennan kostnaðarauka alfarið á
okkur. Við þetta bætist nú að krón-
an er að veikjast gagnvart dollar-
anum og það gerir málið enn erfið-
ara, segir Birgir“
Sé litið til sjávarútvegsins hafa
kostnaðartölur þar hækkað um
tæpan helming hvort sem um tog-
ara eða trillu er að ræða. Eldsneyt-
iskostnaður togarans Gullvers
sem gerður er út frá Seyðisfirði
hefur hækkað úr 38,5 milljónum
árið 2002 og stefnir í að vera í
kringum 63 milljónir króna í ár. Er
það hækkun um 6,2 milljónir hvert
einasta ár. Árlegur eldsneytis-
kostnaður smábáta var algengur
um og yfir 300 þúsund krónur
fyrir fjórum árum en er
vart minni en 600 þúsund
í dag. Landssamband
íslenskra útvegsmanna
áætlar að útgerðin í heild
greiði alls 6,4 milljarða
hærra verð fyrir skipa-
olíu nú en 1. janúar árið
2002.
Almenningssam-
göngufyrirtæki fara ekki
varhluta af dýru olíu-
verði heldur. Hjá Strætó
bs. er áætluð meðal-
keyrsla hvers strætis-
vagns á dag um 600 kíló-
metrar. Stórir
viðskipta vinir fá eðlilega
afslátt frá uppgefnu
verði hjá olíufélögunum en burt-
séð frá slíkum boðum hefur dag-
legur eldsneytiskostnaður eins
strætisvagns hækkað um 21.990
krónur frá árinu 2002. Þá kostaði
lítri af díselolíu 47,90 en sama
magn kostar í dag 121,20 krónur.
Kostnaður Strætó vegna vagnsins
árið 2002 var því á ársgrundvelli
rúmar 4,7 milljónir króna en yrði í
dag tæpar tólf milljónir.
Margir landsmenn eiga jeppa-
bifreiðar sem verður óvinsælli
kostur dag hvern sem olíuverð
hækkar samkvæmt upplýsingum
frá bílasölum. Helena Sigurbergs-
dóttir, félagi í jeppaklúbbnum 4x4,
segir upphæðirnar sem um ræðir
vegna eldsneytis mun
meiri en margur geri sér
grein fyrir. „Miðað við 20
þúsund kílómetra keyrslu
árið 2002 var eldsneytis-
kostnaðurinn alls 408 þús-
und krónur og er þáver-
andi þungaskattur
meðtalinn. Sama keyrsla
miðað við kostnað á olíu
um þessar mundir er 631
þúsund krónur. Þetta hefur
orðið til þess að fleiri og
fleiri eru að fjárfesta í
bensínbílum í stað dísel-
bíla enda eru þeir ódýrari
og lítraverð á eldsneytinu
svipað.“ Undir þetta tekur
Guðmundur Ólafsson, hag-
fræðingur, sem átt hefur jeppa um
langt árabil. „Hér áður en olíu-
gjaldið tók gildi þá fyllti ég bílinn
fyrir þrjú þúsund krónur en í dag
kostar það mig um tíu þúsund
krónur. Ég veit ekki nákvæmlega
hversu mikill kostnaðaraukinn er
en hann kemur vissulega við budd-
una.“
Best koma þeir út sem eiga
smábíla en kostnaður þeirra hefur
þó aukist. Inga Sigrún Kristins-
dóttir ekur um á Toyota Prius sem
notast bæði við bensín og raf-
magn. „Ég keypti bílinn ekki til að
spara elds-
neyti heldur
vegna
umhverfisins,
en finn samt
mikinn mun.
Ég fer mun
sjaldnar á
bensínstöð
enda eyðir
bíllinn ekki
nema rúmlega
5 lítrum á
hundraðið. Ég
gæti trúað að
ég spari rúm-
lega 5000
krónur á mán-
uði miðað við
bílinn sem ég
átti áður.“
Unnsteinn
Jóhannsson, bóndi í Laxárholti á
Mýrum, er einn þeirra sem kyndir
hús sitt með olíu fyrir utan aðra
notkun á vélar sínar og tæki.
Kostnaður hans hefur hækkað um
300 þúsund á síðustu fjórum árum.
„Olíuhækkanir koma ekki síst
niður á bændum. Þetta er að vísu
árstíðaskipt en olíunotkunin er til
dæmis mjög mikil á þeim þungu
tækjum sem bændur nota í hey-
skap yfir sumartímann.“
albert@frettabladid.is
svavar@frettabladid.is
Vagnhöfða 23 - Sími 590 2000
BFG All Terrain
35x12,5 R15
16.870,- stgr.
Seltjarnarnesi
35”
Gerið
verðsamanburð
margar stærðir
KT verslun Akureyri
Njarðarnesi S. 466 2111
1. JANÚAR 2002
Bensín 95 okt. 92,20
Díselolía 47,90
1. JÚLÍ 2002
Bensín 95 okt. 97,00
Díselolía 46,40
1. JANÚAR 2003
Bensín 95 okt. 98,20
Díselolía 46,10
1. JÚLÍ 2003
Bensín 95 okt. 97,60
Díselolía 44,30
1. JANÚAR 2004
Bensín 95 okt. 100,90
Díselolía 45,80
1. JÚLÍ 2004
Bensín 95 okt. 109,90
Díselolía 52,10
1. JANÚAR 2005
Bensín 95 okt. 104,60
Díselolía 51,60
1. JÚLÍ 2005
Bensín 95 okt. 114,10
Díselolía (ólituð) 114,00
1. JANÚAR 2006
Bensín 95 okt. 114,80
Díselolía (ólituð) 112,80
1. APRÍL 2006
Bensín 95 okt. 124,40
Díselolía (ólituð) 120,50
TOGARINN GULLVER Olíukostnaður útgerðar skipsins hefur aukist um rúmar sex milljónir
króna á ári síðustu árin. MYND/ADOLF
BOEING ÞOTA ICELANDAIR Hver floginn kílómetri á þotueldsneyti kostar 233 krónur í dag
en kostaði 93 krónur 2002. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
UNNSTEINN BÓNDI Ekki nóg með að tæki og tól bóndans séu olíufrek heldur þarf hann að
kynda hús sitt með olíu. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Tvöfalt dýrara á tankinn
janúar
2002
apríl
2006
4.
55
0
kr
ón
ur
11
.5
14
kr
ón
ur
Fullur tankur á
Nissan Patrol
20 þús
.
km. ke
yrsla
105,3
80 kr
.
20 þús
.
km. ke
yrsla
266.6
40 kr
.
janúar
2002
apríl
2006
4.
74
2.
10
0
kr
ón
ur
11
.9
98
.8
00
kr
ón
ur
Eldsneytis-
kostnaður
strætisvagns á
ársgrundvelli:
Mismunur
7,256.700
krónur
38,5
milljónir
32,7
milljónir
49,1
milljón
*62-63
milljónir
* Áætlun
2001 2006
ELDSNEYTISKOSTNAÐUR
TOGARANS GULLVERS NS 12
2001 2005
93
krónur
140
krónur
233
krónur
187
krónur
ELDSNEYTISKOSTNAÐUR
BOEING 757-200 ÞOTU
verð pr. floginn kílómetra
ELDSNEYTISNOTKUN MEÐAL-
BÓNDABÝLIS Á LANDINU
* Áætlun446.836
krónur
625.454
krónur
*750.000
krónur
2001 2006
HÆKKANIR Á ELDSNEYTISVERÐI
INGA SIGRÚN KRISTINSDÓTTIR
Eigandi Toyota Prius 2005
„Ég keypti bílinn ekki upphaflega til að spara eldsneyti heldur
vegna umhverfisins, en finn samt mikinn mun. Ég finn fyrir því
hvað ég fer mun sjaldnar á bensínstöð enda eyðir bíllinn ekki
nema rúmlega 5 lítrum á hundraðið. Ég gæti trúað að ég spari
rúmlega 5000 krónur á mánuði miðað við bílinn sem ég átti þó ég
noti bílinn ekki mikið af því að ég bý stutt frá vinnunni.“
janúar
2002
apríl
2006
4.
14
9
kr
ón
ur
5.
44
9
kr
ón
ur
Fullur tankur á
Toyota Prius
Mismunur
1.300
krónur
Miðað við verð flotaolíu 1. janúar árið 2002 og 3.
apríl 2006 sem er 56,90 þá eru þetta 6,4 milljarðar
sem útgerðin borgar meira fyrir olíuna en þá. Við not-
um það sem þumalputtareglu að fyrir hverja krónu
sem olían hækkar þá borgar útgerðin í landinu 300
milljónum meira en hún gerði áður.
UNNSTEINN
JÓHANNSSON,
bóndi í Laxár-
holti á Mýrum,
er með 120 til
130 gripi í húsi.
Hann heyjar
um 1000 rúllur
árlega.
„Þessar sífelldu olíuhækk-
anir koma ekki síst niður á
bændum. Þetta er að vísu
árstíðaskipt en olíunotkunin
er til dæmis mjög mikil á
þeim þungu tækjum sem
bændur nota í heyskap yfir
sumartímann.“