Fréttablaðið - 23.04.2006, Side 27
Prooptik opnar á næstunni þrjár verslanir með betri
þjónustu, traustari vöruábyrgð og á lægra verði en áður
hefur þekkst á Íslandi.
Prooptik er gleraugnakeðja með 168 verslanir um allt
Þýskaland sem nemur nú loks land á Íslandi. Prooptik
býður upp á mikið úrval hágæða gleraugnaumgjarða
frá þekktum framleiðendum. Gucci, Armani, Karen
Millen,Titan Flex, David Aimes, Joe´s, Gasoline og Air
weight titanium eru aðeins brot af því mikla úrvali sem
Prooptik verslanirnar hafa upp á að bjóða.
Hátt þjónustustig er eitt af samræmdum einkennum
Prooptik gleraugnaverslana. Þessi nýjung ætti að gleðja
alla gleraugnanotendur á Íslandi sem eiga nú kost á
þriggja ára vöruuábyrgð, ókeypis gleraugnatryggingu,
verðvernd og fríum gleraugum fyrir börn og unglinga
til 18 ára aldurs.
Hefur
þú
það
sem
til þarf?
Við leitum að Sjóntækjafræðingum og
afgreiðslufólki með áhuga og metnað.
Umsókn ásamt starfsferilsskrá óskast skilað
í afgreiðslu Fréttablaðsins, Skaptahlíð 24,
105 Reykjavík fyrir 28. apríl merkt “Prooptik”
Samvinna - Ábyrgð - Tillitssemi - Traust
Áslandsskóli byggir á fjórum hornstoðum
menntunar. Vinnu með allar dygðir, hnattrænan
skilning, þjónustu við samfélagið og að gera allt
framúrskarandi vel. Í skólanum er lögð mikil áhersla á
góðan námsárangur, vönduð vinnubrögð og vellíðan
nemenda. Frá upphafi skólagöngu er áhersla á
lífsleikni nemenda með morgunstundum og
bekkjarfundum í tengslum við dygð hvers mánaðar.
Kennsla í ensku hefst strax í 1. bekk og í dönsku í
5. bekk og tengjast slíkar áherslur tungumálanáms
alþjóðlegum samskiptum skólans.
Í Áslandsskóla er unnið með PMT foreldrafærni og
SMT skólafærni við að móta gott andrúmsloft.
Við skólann starfar metnaðarfullt og framsækið
starfsfólk sem hefur það eitt að markmiði að gera
góðan skóla enn betri.
Auglýst er eftir fólki í eftirfarandi stöður:
Deildarstjóra í 1.-6. bekk
Deildarstjóra í 7.-10. bekk
Tungumálakennslu í unglingadeild
Almenna kennslu í yngri og miðdeild
Heimilisfræði
Skólaliða
Nánari upplýsingar gefa Leifur S. Garðarsson, skólastjóri
í leifur@aslandsskoli.is / 664 5501 eða Unnur Elfa
Guðmundsdóttir, aðstoðarskólastjóri í
ueg@aslandsskoli.is
ÁSLANDSKÓLI
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI
ATVINNA
SUNNUDAGUR 23. apríl 2006 5