Fréttablaðið - 23.04.2006, Page 73

Fréttablaðið - 23.04.2006, Page 73
SUNNUDAGUR 23. apríl 2006 29 LAGERSALA 50% AFSLÁTTUR AF ÖLLU ! OPIÐ 11-19 Í FELLSMÚLA 28 FYRSTA OPNUNARHELGIN ! (GAMLA WORLD CLASS HÚSINU) VIÐTALIÐ eftir Lailu Margréti Arnþórsdóttur Fimmtud. 27. apríl kl. 20.00 Edward Bond Leiksmiðja Breska leikskáldið Edward Bond stýrir leiksmiðju og flytur fyrir- lestur í Hafnarfjarðarleikhúsinu laugardaginn 28. apríl frá kl. 10 - 17. Áhugasamir velkomnir Sumargjöf Eddu útgáfu er vegleg í ár, því út er komin skáldsagan Minningar um döpru hórurnar mínar, nýjasta bók kólumbíska nóbelskáldsins Gabriels García Marques, í íslenskri þýðingu Kol- brúnar Sveinsdóttur. Marques má tvímælalaust kalla eina af kanónum samtímabók- menntanna, en hann hlaut nóbels- verðlaunin í bókmenntum árið 1982. Þekktustu verk hans hér á landi eru sjálfsagt Hundrað ára einsemd og Ástin á tímum kóler- unnar. Minningar um döpru hórurnar mína fjallar um þekktan pistlahöf- und og óforbetranlegan pipar- svein, sem á níræðisafmæli sínu ákveður að veita sér þann munað að verja nótt með hreinni mey á unglingsaldri. Nóttin verður að heilu ári, þar sem sögumaðurinn rifjar upp ævilöng kynni sín af konum og upplifir við lok lífs síns framandi kennd – hreina og óspillta ást. Bókin, sem er í styttri kantinum, hefur fengið góðan hljómgrunn meðal gagnrýnandi og kemst gagnrýnandi Los Angel- es Times svo að orði að hún sé meistaraverk „sem bæði heillar og truflar“. Sannarlega telst það til tíðinda að bók eftir höfund á borð við Marques skuli gefin út hér á landi að vori til en ekki fyrir jólin. „Marques er höfundur af slíkri vigt að við töldum að hann þyldi að koma út á þessum árstíma,“ segir Páll Valsson útgáfustjóri Eddu. -bs DÖPRU HÓRURNAR Fjallar um níræðan piparsvein sem kynnist óspilltri ást í fyrsta sinn. Ný bók Marques í íslenskri þýðingu 550 5000 AUGLÝSINGASÍMI HVAÐ? HVENÆR? HVAR? APRÍL 20 21 22 23 24 25 26 Sunnudagur ■ ■ TÓNLEIKAR  15.00 Árlegir vortónleikar harm- onikuleikarar verða haldnir í Ráðhúsinu. Þar munu koma fram flestir af betri harmonikuleikurum á Stór-Reykjavíkursvæðinu á aldrinum 12 - 70 ára.  16.00 Kór Langholtskirkju flyt- ur Petite Messe solenelle eftir Rossini ásamt einsöngvurum. Stjórnandi er Jón Stefánsson.  20.00 Katalin Kokas og Barnabás Kelemen fiðluleikarar halda tónleika í Salnum í TÍBRÁR tónleikaröðinni.  20.30 Alexandra Chernyshova heldur einsöngstónleika í Laugarborg í Eyjafjarðarsveit. ■ ■ SÝNINGAR  15.00 Listamennirnir Anna Jóelsdóttir og Ásta Ólafsdóttir ræða við gesti Listasafns ASÍ um sýningarnar heima? og Túbab, túbab sem þar standa yfir.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.