Fréttablaðið - 23.04.2006, Síða 76

Fréttablaðið - 23.04.2006, Síða 76
SÍMI 564 0000 SÍMI 551 9000 SÍMI 462 3500 THE HILLS HAVE EYES kl. 8 og 10.10 ICE AGE 2 kl. 4, 6 og 8 M/ENSKU TALI ÍSÖLD 2 kl. 2, 400 KR. 4 og 6 M/ÍSL. TALI DATE MOVIE kl. 2, 400 KR. WHEN A STRANGER CALLS kl. 10 B.I. 16 ÁRA THE HILLS HAVE EYES kl. 3, 5.30, 8 og 10.30 B.I. 16 ÁRA ICE AGE 2 kl. 3, 6, 8 og 10 M/ENSKU TALI LUCKY NUMBER SLEVIN kl. 3, 5.30, 8 og 10.30 B.I. 16 ÁRA WALK THE LINE kl. 3, 5.30, 8 og 10 THE HILLS HAVE EYES kl. 3, 5.30, 8 og 10.30 B.I. 16 ÁRA SÝND Í LÚXUS kl. 3, 5.30, 8 og 10.30 B.I. 16 ÁRA WHEN A STRANGER CALLS kl. 8 og 10 B.I. 16 ÁRA ICE AGE 2 M/ENSKU TALI kl. 2, 4, 6, 8 og 10 ÍSÖLD 2 M/ÍSLENSKU TALI kl. 2, 4, og 6 DATE MOVIE kl. 2, 4 6, 8, og 10 B.I. 14 ÁRA 400 kr. í bíó! Gildir á allar sýningar í Regnboganum merktar með rauðu PÁSKAMYNDIN 2006 SÝND MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI STÆRSTA MYND ÁRSINS - VJV, Topp5.is - HJ MBL RANGUR TÍMI, RANGUR STAÐUR, RANGUR MAÐUR 37.000 MANNS Á AÐEINS 15 DÖG UM! VINSÆLASTA MYNDIN Á ÍSLANDI Í DAG!- JÞP Blaðið ÓHUGNANLEGASTA MYND ÁRSINS! FÓR BEINT Á TOPPINN Í USA HVAÐ SEM ÞÚ GERIR, EKKI SVARA Í SÍMANN! - LIB, Topp5.is - Dóri DNA, DV - DÖJ, Kvikmyndir.com „MANNSKEMMANDI HRYLLINGSMYND“ K.M. - BIO.IS „HREINN VIÐBJÓÐUR“ H.Þ.A. - BIO.IS ,,HOSTEL ER EINS OG DRAUMALANDIÐ Í SAMANBURÐI VIÐ THE HILLS HAVE EYES” J.G.G. SENA STRANGLEGA BÖNNUÐ INNAN 16 ÁRA DYRAVERÐIR VIÐ SALINN! Í dag mætast tvö seinni ljóðin í fjögurra ljóða úrslitum Sigur- skádsins 2006, ljóðakeppni Fréttablaðsins og Eddu útgáfu. Að þessu sinni eru það ljóð Ástu Heiðrúnar Elísabetar Pétursdótt- ur og Hildar Lilliendahl Viggós- dóttur sem eru lögð í dóm les- enda sem eiga þess kost að velja á milli þeirra með SMS-kosn- ingu. Það er eins og í sálinni svamli óragrúi tilfinninga. Straumþungt stórfljót sem streymir í átt að ljóði. Ekki bara hvaða ljóði sem er heldur innihaldsríku og djúpu. En þar liggur vandinn ég er bara stelpugopi. Ég er hvorki ástfangin né í ástarsorg. Ég hef ekki skoðanir á varnarliði eða vatnalögum. Ég hef enga sérstaka innsýn í mannlegt eðli. Eða get skrifað á hnyttinn hátt um hátterni fólks. En ég veit að Marissa skaut Trey, í ðe ósí. Og Rory Gilmore svaf hjá Dean, þó hann væri giftur. Bara. Bara ef ég væri alvöru. Alvarleg með skoðanir á hreinu. Þá gæti ég kannski túlkað þessar tilfinningar sem krauma innra með mér. Sweet Jane Jane. Jane ég vil yrkja þér ljóð. Við eigum allskonar drasl sameiginlegt ég og þú Jane. Allavega þykja mér fatalufsurnar þínar með hlébarðamunstrinu helvíti töff og svo get ég vel skilið að þú skulir falla fyrir gæja eins og Tarzan. Það er eitthvað einkennilega eggjandi við menn sem sveifla sér hálfnaktir og vöðva- stæltir í trjám. Sveifla... hálf... naktir... stæltir... trjám... Það er tryllingurinn í augum ykkar Jane sem fær mig til að yrkja til þín ljóð. Sjáðu til Jane, ég hef aldrei verið sér- lega villt. Það er stafalogn í lífi mínu Jane og ekki endilega vegna þess að ég kæri mig ekki um rok, ekki endilega vegna þess að ég óttist storminn, heldur vegna þess Jane, að breytingar kosta fyrirhöfn. Tíma, orku, peninga. Þess vegna sit ég sem fastast í íbúð- inni minni á eylandinu mínu sem ég elska að hata og hata að elska Þess vegna hírist ég hér Jane og hlusta á vindinn fyrir utan gluggann minn. Svarið fýkur í vindinum sagði Dylan. Sennilega fæ ég aldrei að heyra það. Hálsinn á þér er einkennilega kynæs- andi Jane. Það er eins og hann biðji um að láta narta í sig. Rifbeinin þín eru rimlar í fangaklefa Jane og ég, ég er lokuð fyrir utan hann en ekki inni í honum. Hvað segirðu um það Jane, ha? Þokki konu í frumskógi er áreynslu- laus. Þú ert öfundsverð Jane. Ef þú bara vissir hvað vestræn nútíma- kona leggur á sig til að laða að sér sæmilegan karl- mann. Ég hef jafnvel heyrt að til séu konur sem geri sér upp kynferðislega fullnægingu! Hugsaðu þér Jane. Allt til þess að karl- manninum líði betur með frammistöðu sína í (þarna ætlaði ég að segja rúminu, en sennilega hefur það ekki merkingu fyrir þér, svo ég læt hér við sitja.) Seinni umferð fjögurra ljóða úrslita HILDUR LILLIENDAHL VIGGÓSDÓTTIR Fædd 1981. ÁSTA HEIÐRÚN ELÍSABET PÉTURSDÓTTIR Fædd 1984. Álit dómnefndar: Kristján Bjarki Jónasson: Sannleikurinn um okkur öll, sagður á umbúðalausan og glæsilegan hátt. Flott ljóð. Ragnheiður Eiríksdóttir: Raunsæi ungra kvenna í dag, þar sem raunverulegasti hlutur lífs þeirra er bandarískur sjónvarpsþáttur. Þráin eftir frekari dýpt verður sjálf dýptin. Þórarinn Þórarinsson: Afskaplega „ljóðalegt“ ljóð sem fangar vel angistina sem fylgir því að vera hugsandi manneskja í neyslusamfélagi. Ef þú kýst ljóð Atla sendir þú SMS skeytið JA L4 í númerið 1900*. Ef þú kýst ljóð Unnar sendir þú SMS skeytið JA L6 í númerið 1900*. * Hvert skeyti kostar 99 krónur. HVERNIG VELUR ÞÚ LJÓÐ? Til að kjósa þitt ljóð sendir þú einfaldlega SMS-skeyti, eitt eða fleiri. Dregið verður úr innsendum SMS skeytum á hverjum degi. Vinningshafi dagsins fær bókina Kertin brenna niður eftir Sándor Márai. Álit dómnefndar: Kristján Bjarki Jónasson: Nútímakonan hittir frumskógarkonuna. Fyndið en um leið tragískt ljóð um von okkar allra um frelsi. Ragnheiður Eiríksdóttir: Poppað ljóð, með titli úr popplagi og tilvísun í annað. Hér er hita, frum- skógi og ævintýraþrá stillt upp móti íslenskum kynkulda og afborgunum af íbúðarlánum. Sterkar andstæður. Þórarinn Þórarinsson: Rosa „kynjað“ ljóð með skemmtilegu andstæðupari sem virðist þó eiga ansi margt sameiginlegt. Skógarkonan býr með mannapa og borgardaman tekst á við menn sem eru hálfgerðir apar. Ég er hálf týndur í þessum skógi en flóran er vissulega fjölbreytt.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.