Fréttablaðið - 23.04.2006, Qupperneq 80
Rodney Odrick hét bandarískur leikmaður sem hóf keppnis-tímabilið 1998 með Njarðvík-
ingum. Odrick þessi stóð sig nokkuð
vel í fyrstu tveimur leikjum tíma-
bilsins, var með tæp 20 stig og 11
stoðsendingar að meðaltali í leik, en
hörmulegt bílslys sem fjölskylda
hans í Bandaríkjunum lenti í þar ytra
varð til þess að Odrick fékk sig leyst-
an undir samningi hjá Njarðvík.
Nú varð að hafa hraðar hendur.
Njarðvík átti, eins og ævinlega er á
þessum tíma, í hatrammri samkeppni
við granna sína í Keflavík, og því
nauðsynlegt að hafa góðan erlendan
leikmann í liðinu. Friðrik Ingi Rún-
arsson var þjálfari Njarðvíkur á
þessum tíma.
„Við þurftum að fá nýjan Kana
sem fyrst og mér barst í hendurnar
svokölluð „highlight“-spóla af Brent-
on frá
þeim tíma
sem hann var í
háskólaboltanum í Bandaríkjunum
og í Finnlandi. Þarna var um að ræða
hávaxinn bakvörð sem hafði allan
pakkann – frábær skytta, fór vel með
boltann og spilaði góða vörn. Við
ákváðum að fá hann til okkar, þó að
reynslan sanni að svona myndbönd
geti verið blekkjandi. En það er
skemmst frá því að segja að Brenton
féll inn í þetta samfélag hjá okkur í
Njarðvík um leið,“ segir Friðrik Ingi
þegar hann rifjar upp komu Brent-
ons.
Frábær fyrirmynd
Sjálfur man Brenton þetta eins og
það hafi gerst í gær. „Ég var á mála
hjá félagi á Kýpur þetta haust en
hlutirnir virtust ekki ætla að ganga
upp svo að ég bað um að fá
að fara. Ég var búinn að búa
hjá þáverandi unnustu minni í
um mánuð þegar umboðsmað-
urinn minn hringdi og sagðist
vera búinn að finna lið fyrir mig á
Íslandi. Ég stökk inn í næstu vél og
fór frá Ítalíu til New York, pakkaði
hlýjum fötum niður í ferðatösku og
hélt til Íslands. Ég var í flugvél í
tæpa 20 tíma og kom til Íslands
kvöldið eftir að símtalið barst.“
Flestir körfuboltaspekingar eru sam-
mála um að Brenton sé einhver albesti
erlendi leikmaður sem komið hefur
hingað til lands. Friðrik Ingi lýsir
Brenton sem „algjörum öðlingi“ og
segir hann vera frábæran fulltrúa
körfuboltans . „Menn tala gjarnan um
BRENTON SVÍFUR
VÆNGJUM ÞÖNDUM
Í október verða liðin átta ár síðan körfuboltamaðurinn Brenton Joe Birmingham
kom fyrst til Íslands. Hugmyndin var að spila körfubolta með Njarðvík, sem og
hann gerir enn, en Brenton varð svo hugfanginn af landi og þjóð að nú getur hann
hvergi annars staðar hugsað sér að vera. Vignir Guðjónsson ræddi við Brenton um
körfuboltann og íslenska fjölskyldulífið.
BRENTON BIR-
MINGHAM:
Hefur spilað
með Njarðvík
allan sinn feril á
Íslandi fyrir utan
eitt tímabil þar
sem hann var í her-
búðum Grindavíkur.
Það ár varð Brenton
bikarmeistari með
þeim gulklæddu og
hafnaði í 2. sæti í
Íslandsmótinu.
SUNNUDAGSVIÐTALIÐ BRENTON BIRMINGHAM
FÓTBOLTI Tottenham og Arsenal
gerðu 1-1 jafntefli á Highbury í
gær í stórleik helgarinnar í ensku
úrvalsdeildinni. Robbie Keane
kom Tottenham yfir í líflegum
leik liðanna sem hafði allt til alls
til að vera frábær knattspyrnu-
leikur. Thierry Henry, sem byrj-
aði óvænt á varamannabekknum,
jafnaði metin á lokamínútum
leiksins og þar við sat en Edgar
Davids var vikið af velli undir
lokin.
Arsene Wenger, stjóri Arsen-
al, var ekki sáttur við markið
sem Tottenham skoraði en þeir
hvítklæddu héldu áfram leik
þrátt fyrir að Emmanuel Eboue
lægi óvígur á vellinum. Wenger
varð æfur og lét öllum illum
látum á hliðarlínunni og hellti
sér yfir Martin Jol, kollega sinn
hjá Tottenham, og varamennina
á bekknum.
„Að mínu mati er hrein skömm
að þessu. Michael Carrick hikaði
þegar hann sá hvað var í gangi,
hann sá vel að tveir leikmenn
höfðu rekist saman og lágu eftir
á vellinum. Hann hefði getað sent
boltann út af. Hafi þeir sem voru
á varamannabekk Tottenham
virkilega ekki séð þetta, eða þá
að þeir séu að ljúga til um það, þá
eru það mér mikil vonbrigði,“
sagði Wenger.
Tottenham eru því með fjög-
urra stiga forystu á Arsenal og á
tvo leiki eftir en Arsenal á þrjá
leiki eftir. - hþh
Robbie Keane og Thierry Henry skoruðu sitt markið hvor í stórleik helgarinnar í ensku úrvalsdeildinni:
Jafntefli í stórorrustunni um Lundúnaborg
BARÁTTA UM BOLTANN Robbie Keane sleppur framhjá Robert Pires í leiknum í gær. Keane
skoraði mark Tottenham í leiknum. NORDICPHOTOS/AFP
FÓTBOLTI Rafael Benítez, knatt-
spyrnustjóri Liverpool, var í skýj-
unum yfir sigri sinna manna á
Chelsea í undanúrslitum ensku
bikarkeppninnar. John Arne Riise
kom Liverpool á bragðið með
marki úr aukaspyrnu á 21. mínútu
en veggur Chelsea opnaðist upp á
gátt og Norðmaðurinn læddi bolt-
anum framhjá Carlo Cudicini.
Luis Garcia skoraði glæsilegt
mark snemma í síðari hálfleik
þegar hann setti boltann skemmti-
lega í markvinkilinn utan víta-
teigs og stuðningsmenn Liverpool
á Old Trafford, sem voru í meiri-
hluta á heimavelli Manchester
United, ærðust úr fögnuði. Didier
Drogba minnkaði muninn fyrir
Chelsea eftir mistök hjá Riise og
Jose Reina markmanni Liverpool
og bæði lið hefðu getað skorað
fleiri mörk. Joe Cole brenndi af úr
sannkölluðu dauðafæri á mark-
teig Liverpool á 94. mínútu en
hann þrumaði boltanum yfir
markið og trúði vart sínum eigin
augum. Skömmu síðar var flautað
til leiksloka og 2-1 sigur Liverpool
var í höfn.
„Ég verð að hrósa leikmönnum
mínum en fyrst og fremst tel ég
að stuðningur áhorfenda hafi veitt
okkur innblástur til sigurs gegn
Chelsea í leiknum. Þessir stuðn-
ingsmenn eru þeir bestu í heimi
og voru stórfenglegir allan leik-
inn,“ sagði vígreifur Benítez eftir
leikinn.
„Mér fannst við eiga skilið að
sigra. Við vorum betri í fyrri hálf-
leiknum og í raun fyrsta klukku-
tímann. Sóknarlotur þeirra dundu
síðan á okkur, það var eitthvað
sem við bjuggumst við þar sem
þeir eru með frábært lið. Það var
svekkjandi að fá á okkur mark en
það gerði verkefnið enn erfiðara
fyrir vikið. Jamie Carragher öskr-
aði okkur áfram og við náðum að
hanga á sigrinum áður en allt varð
vitlaust,“ sagði Steven Gerrard
fyrirliði Liverpool glaðbeittur
eftir leikinn.
hjalti@frettabladid.is
Sigurinn var fyrir stuðningsmennina
Liverpool er komið í úrslitaleik ensku bikarkeppninnar eftir frækinn 2-1 sigur á Chelsea á Old Trafford í
gær. Liverpool mætir Middlesbrough eða West Ham í úrslitaleiknum á Þúsaldarvellinum í Cardiff 13. maí.
FYRSTA MARKIÐ John Arne Riise skorar hér
fyrsta markið í gær. NORDICPHOTOS/GETTY IMAGES
GRÍÐARLEGUR FÖGNUÐUR Stuðningsmenn Liverpool höfðu ríka ástæðu til að fagna í
leikslok eftir sigur gegn Chelsea. NORDICPHOTOS/AFP
Enska úrvalsdeildin:
ARSENAL-TOTTENHAM 1-1
0-1 Robbie Keane (65.), 1-1 Thierry Henry (83.)
BOLTON-CHARLTON 4-1
1-0 Rocardo Vaz Te (13.), 2-0 Kevin Davies (20.),
3-0 Jared Borgetti (30.), 3-1 Darren Bent (víti 73.),
4-1 Kevin Davies (88.)
NEWCASTLE-WEST BROM 3-0
1-0 Nolberto Solano (29.), 2-0 Shola Ameobi (víti
39.), 3-0 Shola Ameobi (90.)
PORTSMOUTH-SUNDERLAND 2-1
0-1 Tommy Miller (69.), 1-1 Svetoslav Todorov
(72.), 2-1 Matthew Taylor (víti 87.)
EVERTON-BIRMINGHAM 0-0
STAÐAN Í DEILDINNI:
1. CHELSEA 35 28 4 3 69:20 88
2. MAN.UTD. 35 24 7 4 68:31 79
3. LIVERPOOL 35 22 7 6 49:22 73
4. TOTTENHAM 36 17 11 8 51:36 62
5. ARSENAL 35 17 7 11 58:28 58
6. NEWCASTLE 36 16 6 14 46:42 54
7. BLACKBURN 35 16 6 13 46:42 54
8. BOLTON 35 14 10 11 47:39 52
9. WIGAN 35 15 6 14 42:45 51
10. WEST HAM 35 14 7 14 48:52 49
11. CHARLTON 36 13 8 15 41:49 47
12. EVERTON 36 13 7 16 31:47 46
13. BORO 34 12 7 15 47:55 43
14. MAN.CITY 34 12 4 18 40:41 40
15. ASTON VILLA 35 9 12 14 39:50 39
16. FULHAM 34 11 6 17 43:55 39
17. PORTSMOUTH 36 9 8 19 34:58 35
18. BIRMINGHAM 36 8 9 19 28:49 33
19. W.B.A. 36 7 8 21 29:55 29
20. SUNDERLAND 35 2 6 27 23:63 12
Markahæstu leikmenn:
THIERRY HENRY, ARSENAL 23
RUUD VAN NISTLEROOY, MAN UTD 21
DARREN BENT, CHARLTON 18
ROBBIE KEANE, TOTTENHAM 16
FRANK LAMPARD, CHELSEA 16
WAYNE ROONEY, MAN UTD 16
MARLON HAREWOOD, WEST HAM 14
CRAIG BELLAMY, BLACKBURN 13
AIYEGEBENY YAKUBU, BORO 13
DIDIER DROGBA, CHELSEA 12
HENRY CAMARA, WIGAN 11
Enska 1. deildin
CARDIFF-NORWICH 0-1
CRYSTAL PALACE-SOUTHAMPTON 2-1
HULL-PRESTON 1-1
IPSWICH-DERBY 2-0
LEEDS-CREWE 1-0
LECEISTER-PLYMOUTH 1-0
LUTON-SHEFFIELD UNITED 1-1
MILLWALL-BURNLEY 1-0
QPR-WATFORD 1-2
SHEFFIELD WED.-READING 1-1
STOKE-COVENTRY 0-1
WOLVES-BRIGTON 1-0
ÚRSLIT GÆRDAGSINS