Fréttablaðið - 28.04.2006, Side 4

Fréttablaðið - 28.04.2006, Side 4
4 28. apríl 2006 FÖSTUDAGUR LAGERSALA 50% AFSLÁTTUR AF ÖLLU ! OPIÐ 11-19 FELLSMÚLA 28 (GAMLA WORLD CLASS HÚSINU) 21. apríl kl. 0:00 23. apríl kl. 0:00 25. apríl kl. 0:00 27. apríl kl. 0:00 25 sm3 á sek. 629 sm3 á sek. HLAUP Rennsli í Eldvatn við Ása er enn ekki komið í sama horf og fyrir Jökulsárhlaupið. Á korti Vatnamælinga Orku- stofnunar sést að á mótum miðviku- og fimmtudags var rennslið í ána rúmir 56 rúmmetrar á sekúndu. Föstudaginn 21. apríl, daginn sem það hófst og tveimur og hálfum degi áður en hlaupið náði hámarki, var rennslið rúmir 25 rúmmetrar á sek- úndu. Rennslið náði mest tæpum 629 rúmmetrum á sekúndu. Hlaupið er hið fertugasta og annað síðan 1955 sem mælt er af Vatnamælingum Orkustofnunar, en þá hættu hlaupin að fara inn í Langa- sjó og bárust út í Skaftá. - gag Jökulsárhlaupi að ljúka: Ekki komin í sama horf MÆLINGAR VIÐ ELDVATN VIÐ ÁSA Hér sést rennsli í ána á vikutímabili. Sekt fyrir fíkniefni Bónda var í gær gert að greiða 45.000 króna sekt fyrir að hafa fíkniefni í fórum sínum. Lögreglan í Borgarnesi fann eitt gramm af hassi, 0,03 grömm af amfetamíni og 0,7 grömm af tóbaksblönduðu kannabisefni á heimili hans. DÓMSMÁL Íslenskur fulltrúi Svía Ása Jó- hannsdóttir verður fulltrúi Södertälje í landskeppni Svía um frumlegustu og efnilegustu nýju fyrirtækin í landinu síð- ustu þrjú árin. Ása hefur rekið fyrirtækið Ása Jóhannsdóttir grafisk design í tvö ár. SVÍÞJÓÐ DÓMSMÁL Maður var fundinn sekur og hlaut tveggja mánaða skilorðs- bundinn dóm fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur í gær vegna tilefnis- lausrar árásar á lögreglumann á Austurvelli fyrir ári. Hlaut lögreglumaðurinn nokk- ur meiðsl vegna átaka sinna við manninn en hann hafði áður haft í hótunum við lögreglumennina, sem fóru þess á leit að hann gerði grein fyrir sér þar sem hann lá á bekk á Austurvelli. Maðurinn hlaut skilorðsbundinn dóm þar sem hann hefur aðeins einu sinni áður komist í kast við lögin. Var hann einnig dæmdur til greiðslu miskabóta. - aöe Réðst á lögreglumann: Fékk tveggja mánaða dóm UMFERÐARMÁL Sérfræðingar í umferðarmálum hér á landi telja nauðsynlegt að opna svæði fyrir áhugamenn um akstursíþróttir til þess að draga úr hraðakstri innan bæjarmarka. Guðbrandur Sigurðsson, aðal- varðstjóri lögreglunnar í Reykja- vík, lýsti því yfir í viðtali við Fréttablaðið á dögunum að ofsa- akstur á götum innan bæjarmarka væri vaxandi vandamál sem þyrfti að bregðast við. Sigurður Helgason, forstjóri Umferðarstofu, telur opið aksturssvæði, þar sem ökumenn bifreiða og mótorhjóla gætu komið saman, vel til þess að fallið að draga úr ofsaakstri innan bæjar- marka. „Það þarf að skapa aðstöðu fyrir þá sem telja sig hafa þörf fyrir að aka hratt. Mikilvægt er að ökumenn fari að öllum reglum og að aðstæður á svæðinu séu allar hinar öruggustu.“ Ólafur Guðmundsson, sem á sæti í Umferðarráði, tekur undir þetta með Sigurði og telur glanna- legan akstur vera viðverandi vandamál. „Það eru ekki mörg lönd í Evrópu sem eru ekki með aksturssvæði fyrir ökumenn þar sem þeir geta sinnt áhugamáli sínu og þess vegna er nauðsynlegt að því verði fundinn góður staður. En svæðið er ekki allt, heldur þurfa ökumenn að tileinka sér aga og aksturslag sem samfélagið samþykkir.“ - mh Vilja koma upp svæði fyrir bílaáhugamenn: Hraðakstur af götum ÓLAFUR GUÐMUNDSSON Ólafur og Sigurð- ur Helgason, forstjóri Umferðarstofu, telja nauðsynlegt að akstursíþróttaáhugamenn fái svæði þar sem þeir geta sinnt áhugamáli sínu. Ólafur sést á myndinni við kappakst- ursbrautina í Monza. FRÉTTABLAÐIÐ/ÓLAFUR SVALBARÐI Norsku konungshjónin komu til Longyearbyen, höfuð- staðar Svalbarða, á miðvikudag til að hefja formleg hátíðarhöld í til- efni af 100 ára afmæli bæjarins. Bandaríkjamaðurinn John Monro Longyear hóf námugröft á þessum stað árið 1906, að því er fréttavefur Aftenposten greinir frá. Fyrstu áttatíu árin var bærinn lítið annað en búðir námuverka- manna, en á síðustu tveimur ára- tugum hafa vísindarannsóknir, menntun og ekki síst ferðaþjón- usta komið fleiri stoðum undir mannlíf á þessum ysta norður- hjara. Nærri 1.900 manns af ýmsum þjóðernum búa í bænum að stað- aldri, en stjórnsýslan þar heyrir undir Noreg. Þess er vænst að um 50.000 ferðamenn sæki Svalbarða heim í ár, flestir á skemmtiferða- skipum. - aa Tímamót á Svalbarða: 100 ára afmæli Longyearbyen LONGYEARBYEN Höfuðstaður Svalbarða- eyjaklasans. NORDICPHOTOS/AFP VERÐHÆKKUN Heimsferðir hafa hækkað verð á utanlandsferðum fyrir sumarið um tólf prósent. Við- skiptavinir fengu ekki færi á að greiða upp pantaðar ferðir fyrir verðbreytinguna. Ferð fyrir fjög- urra manna fjölskyldu til Mall- orca sem áður kostaði 201.580 krónur kostar nú 223.996. Munur- inn er 22.416. Aðar ferðaskrifstofur hækka einnig verðið. Bæði Plúsferðir og Úrval Útsýn, í eigu sömu aðila, hækka verðið um tíu prósent 3. maí. Ekki fengust handhægar upp- lýsingar um verðhækkanir hjá systurfélaginu Sumarferðum en því er neitað að ferðirnar hafi hækkað í tvígang um tíu prósent. Viðskiptavinum ferðaskrifstof- anna þriggja var öllum sent bréf á netinu og í pósti og gefið tækifæri á að greiða upp ferðir sínar fyrir verðhækkunina. Bjarni Hrafn Ingólfsson, mark- aðsstjóri Heimsferða, segir ferða- skrifstofuna fara að reglum sam- gönguráðuneytisins. „Við breytum verðinu nákvæmlega eins og allir hafa gert það hingað til.“ Hann viti ekki af hverju eigandi ferðaskrif- stofanna þriggja fari aðra leið í þetta sinn. „Gæfum við fólki færi á að greiða ferðina upp fyrir verð- hækkunina þýddi það að við tækj- um alla kostnaðaraukninguna á okkur. Einhvers staðar endar sá kostnaður sem aðrar ferðaskrifstof- ur taka á sig. Við vitum það öll að í viðskiptum er það hjá viðskiptavin- inum, þó síðar verði,“ segir Bjarni og bætir við: „Þetta er engin óska- staða fyrir okkur. Enginn er ánægð- ur með að borga meira.“ Heims- ferðir hugi vel að kostnaðarþættinum og nái þar með að vera samkeppnis- hæfar um verð. Laufey Jóhannsdóttir, fram- kvæmdastjóri Plúsferða, segir suma kjósa að greiða ferðirnar síðar þrátt fyrir hækkunina. Flest- ir borgi þó strax, jafnvel þó þeir fari ekki fyrr en í ágúst: „Hér var fjögurra manna fjölskylda sem greiddi um 190 þúsund fyrir sólar- landaferð. Hún ákvað að greiða ferðina upp, annars hefði ferðin hækkað um 24 þúsund krónur,“ segir Laufey: „Viðskiptavinurinn kann mjög vel að meta að fá að vita af verðhækkunum því þá á hann valið.“ Tómas Thor Tómasson, fram- kvæmdastjóri Apollo og Kuoni, segir verðið hjá ferðaskrifstof- unni í það minnsta haldast óbreytt fram í miðjan maí: „Mér sýnist stefna í um það bil fimm prósenta hækkun á ferðum til Búlgaríu. En nóg er að staðfesta ferðina og verðið breytist ekki hækki flug- félögin ekki sætaverðið.“ gag@frettabladid.is Sóldýrkendur borga tugþúsundum meira Sólarlandaferðir hækka í verði, flestar um tíu prósent. Rekstrarstjórar Kuoni og Apollo hafa þó ákveðið að hækka ekki verð í bili. Heimsferðir hækkuðu verð án fyrirvara. Ekki gafst færi á að greiða upp pantaðar ferðir fyrir hækkun. TÓMAS THOR TÓMASSON Fram- kvæmdastjóri Apollo og Kuoni. LAUFEY JÓHANNS- DÓTTIR Fram- kvæmdastjóri Plúsferða. GENGISBREYTINGIN KEMUR NIÐUR Á FERÐAÞYRSTUM ÍSLENDINGUM Fólk greiðir nú hjá flestum ferðaskrifstofum meira fyrir ferðirnar í sólina. Hjá Heimsferðum hækkaði veðrið um tólf prósent en um tíu prósent hjá Plúsferðum og Úrvali Útsýn. Ölvunarakstur í Keflavík Einn ökumaður var í nótt kærður fyrir meinta ölvun við akstur af lögreglunni í Keflavík. Sá var stöðvaður á Hafnargötu. Þrír ökumenn voru kærðir fyrir að nota ekki bílbelti, einn fyrir að tala í farsíma við akstur bifreiðar án handfrjáls búnaðar. LÖGREGLUFRÉTTIR Ók á 132 km hraða Fjórir ökumenn voru kærðir af lögreglunni í Keflavík fyrir of hraðan akstur í gær. Sá sem hraðast ók var mældur á 132 kílómetra hraða þar sem leyfður hraði er 90 kílómetrar. Einn ökumaður var stöðvaður á Grinda- víkurvegi og í ljós kom að hann var ekki með ökuleyfi. GENGIÐ GENGI GJALDMIÐLA 27.04.2006 Gengisvísitala krónunnar Bandaríkjadalur 73,81 74,17 Sterlingspund 131,67 132,31 Evra 91,68 92,2 Dönsk króna 12,29 12,362 Norsk króna 11,782 11,852 Sænsk króna 9,824 9,882 Japanskt jen 0,6438 0,6476 SDR 107,94 108,58 HEIMILD: Seðlabanki Íslands KAUP SALA 127,5226

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.