Fréttablaðið - 28.04.2006, Blaðsíða 77
FÖSTUDAGUR 28. apríl 2006
���������
��������� ��������
Leikkonan Teri Hatcher slasaðist
við tökur á þáttunum Desperate
Housewives nýlega. Hún varð fyrir
því óhappi að fá glerbrot í augað
þegar pera sprakk. Fjarlægja
þurfti brotið úr hægra auga hennar
með aðgerð og hún mun ekki halda
áfram að leika í þáttunum fyrr en
henni er alveg batnað. „Það skaust
glerbrot í augað á mér og rispaði
hornhimnuna. Það var farið með
mig til dásamlegs augnlæknis og
nú er ég með afar glæsilegan lepp
yfir hálfu andlitinu,“ sagði leikkon-
an. „Það er best að horfa bara á
björtu hliðarnar og góðu fréttirnar
eru þær að hornhimnan grær hrað-
ar en nokkuð annað í líkamanum.“
Fékk glerbrot í
augað við tökur
FRÉTTIR AF FÓLKI
Tom Cruise segist ætla að leika í
kvikmynd með unnustu
sinni, Katie Holmes.
„Ég get ekki beðið eftir
að gera mynd með
Kate. Ég tel ekki að
það sé slæm hugmynd
að vinna saman. Sam-
band getur vel gengið
undir slíkri pressu ef
fólk er nógu hrifið hvort
af öðru,“ sagði Tom,
sem lék í myndunum Days of Thunder,
Far and Away og Eyes Wide Shut með
fyrri eiginkonu sinni, Nicole Kidman.
Framleiðandi grínþátta segir
Mick Jagger vera
kláran og fyndinn
gaur en Jagger kemur
fram í fyrsta þættinum,
sem kallast Let‘s Rob
Mick Jagger. „Margt af
því fyndnasta í þessum
fyrsta þætti kom frá
honum. Hann er
einfaldlega klár og
fyndinn gaur,“ sagði
Rob Burnett, fram-
leiðandi þáttanna.
Þessi fyrsti þáttur
fjallar um húsvörð í New
York sem hyggst ræna Mick Jagger. Ef
þátturinn gengur vel mun Jagger koma
reglulega fram í þáttunum en þó ekki í
hverjum einasta þætti.
Robbie Williams stendur í leynimakki um að taka
upp dansplötu undir dul-
nefni. Hann hefur verið
í stúdíói með William
Orbit úr Pet Shop
Boys. „Síðasta plata
Robbies, Intensive
Care, var mun
rokkaðri en þessi og
fannst mörgum hún
ekki höfða nógu mikið
til poppaðdáenda hans.
Því ákvað hann að gera
dansplötu og hefur nú
þegar tekið upp nokkur
lög. „Hann vildi að platan innihéldi
nokkur danslög eins og Kylie var með á
Fever,“ sagði heimildarmaður The Sun.
Öryggisverðir Brads Pitt og Angelinu Jolie hafa verið gagnrýndir fyrir
harkalega framkomu í Namibíu. „Bæði
lífverðir og öryggisverðir leikaranna
og menn í lögreglunni í Namibíu
hafa ráðist inn á heimili ljósmyndara
og blaðamanna án heimildar. Við
fordæmum aðgerðir öryggisvarðanna
gagnvart namibískum sem og útlendum
blaðamönnum,“ var sagt í tilkynningu frá
alþjóðlegri mannréttindastofn-
un. Þremur frönsk-
um ljósmyndurum
og einum frá
Suður-Afríku var
skipað að
fara úr landi
eftir að þeir
reyndu að
taka myndir
af Jolie.
TERI HATCHER
Hún varð fyrir því
á dögunum að
pera sprakk við
tökur á Despe-
rate Housewives
og fékk hún við
það lítið glerbrot
augað.