Fréttablaðið - 28.04.2006, Blaðsíða 83
FÖSTUDAGUR 28. apríl 2006 51
UEFA bikarinn:
MIDDLESBROUGH-STEAUA BÚKAREST 4-2
0-1 Nicalae Dica (16.), 2-0 Dorin Goian (24.), 1-2
Massimo Maccarone (33.), 2-2 Mark Viduka (64.),
3-2 Chris Riggott (73.), 4-2 Massimo Maccarone
(89.).
Middlesbrough komst áfram, 4-3 samanlagt.
Deildarbikar kvenna:
STJARNAN-ÍBV 15-21
Mörk Stjörnunnar: Rakel Dögg Bragadóttir 6,
Kristín Clausen 3, Jóna Margrét Ragnarsdóttir 2,
Sólveig Kjærnested 1, Elísabet Gunnarsdóttir 1,
Harpa Sif Eyjólfsdóttir 1, Tamuna Archaia 1.
Varin skot: Jelena Jovanovic 7, Helga Dóra Magn-
úsdóttir 2.
Mörk ÍBV: Pavla Plaminkova 6 (2), Simona Vintila
5, Ingibjörg Jónsdóttir 4, Ragna Karen Sigurðar-
dóttir 3, Ester Óskarsdóttir 2, Renata Horvadt 1.
Varin skot: Florentina Grecu 17 (3).
HAUKAR-VALUR 27-30
ÚRSLIT GÆRDAGSINS
HANDBOLTI „Þetta var hrein hörm-
ung frá upphafi til enda og sex
marka tap gefur ekki rétta mynd
af þessum leik, við hefðum átt að
tapa mun stærra. Florentina átti
einnig frábæran leik og sýndi það
af hverju önnur lið hafa áhuga á
henni en sóknarleikur okkar var
algjör skandall,“ sagði Aðalsteinn
Eyjólfsson, þjálfari Stjörnunnar,
eftir leikinn.
Eyjastúlkur svöruðu fyrir sig
strax í upphafi leiks þegar þær
komust í 5-0 en Stjörnustúlkur
höfðu betur í fyrstu viðureign lið-
anna, 24-20 í Eyjum. Þær juku við
forskot sitt og höfðu 6-13 yfir í
hálfleik. Þær tvöfölduðu síðan for-
skot sitt jafnt og þétt og höfðu 21-
11 yfir en Stjörnustúlkur náðu að
klóra í bakkann með þremur síð-
ustu mörkunum en lokatölur í
Garðabænum í gær voru 15-21,
Eyjastúlkum í vil.
„Við áttum fá svör eftir slaka
byrjun, það var sama hvað við
gerðum. Hugarfarið var ekki í
lagi, við vorum ennþá í skýjunum
yfir því að vinna í Eyjum og höfð-
um ekki viljann í leikinn,“ bætti
Aðalsteinn við að lokum.
Valur vann Hauka 30-27 í hinum
leiknum og er þar með komið í
úrslitaleikinn en hvort Valur
mætir ÍBV eða Stjörnunni kemur í
ljós eftir þriðja leik þeirra í Vest-
mannaeyjum um helgina.
- hþh
ÍBV hefndi ófaranna gegn Stjörnustúlkum í Eyjum:
Þetta var hörmung
TEKIN FÖSTUM TÖKUM Sóknarleikur Stjörnu-
stúlkna var ekki beysinn í leiknum í gær og
þær komust hvorki lönd né strönd gegn
sterkri vörn ÍBV. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
FÓTBOLTI Enska liðið Middles-
brough komst á ótrúlegan hátt í
úrslit UEFA-bikarkeppninnar í
knattspyrnu í gær eftir frækinn 4-
2 sigur á Steaua frá Búkarest.
Boro tapaði fyrri leiknum 1-0 á
útivelli og þurfti því að vinna leik-
inn með tveimur mörkum.
Það byrjaði ekki vel og eftir 24.
mínútna leik var Boro lent 2-0
undir, 3-0 samanlagt í einvíginu.
Liðið klóraði í bakkann þegar
Massimo Maccarone minnkaði
muninn. Mark Viduka jafnaði
metin í síðari hálfleik og Chris
Riggott kom Boro síðan yfir.
Það hefði ekki dugað Boro til að
komast áfram en ítalski framherj-
inn Maccarone skoraði sigurmark
Boro á lokamínútunni og kom liðið
þannig í úrslitaleikinn. - hþh
UEFA-bikarkeppnin:
Boro í úrslitin