Fréttablaðið - 28.04.2006, Blaðsíða 67
[ TÓNLIST ]
UMFJÖLLUN
Fyrir mér var síðasta plata
Morrissey, You Are the Quarry,
meistarastykki hans og án efa það
besta sem hann hefur látið frá sér
síðan The Smiths splundraðist í
einingar. Þar vann hann líka í
fyrsta skiptið með nýjum lagahöf-
undi, gítarleikaranum Alan Whyte.
Afbragðs gítarleikari sem virðist
hafa gott eyra fyrir grípandi lag-
bútum. Þar með hefur Morrissey
loksins náð að búa til svipað kraft-
mikla efnablöndu og gerði The
Smiths svo sérstaka. Hann gat þar
einungis einbeitt sér að laglínum
og frábærri textagerð. Þetta sam-
starf virðist vera komið til að
vera, því Alan Whyte semur flest
lögin með honum á þessari nýju
plötu.
Það er ekki nóg með það, því
sjálfur Ennio Morricone sér um
strengjaútsetningar í laginu Dear
God Please Help Me. Morrissey
virðist fullur af sjálfsöryggi þessa
dagana og er langt frá því að missa
niður um sig buxurnar á þessari
nýju plötu.
Morrissey virðist vera að færa
sig yfir í heimspekilegri umfjöll-
unarefni með aldrinum. Guð
almáttugur kemur töluvert fyrir í
textum, en einnig tilvist mann-
skepnunnar á plánetunni jörð.
Auðvitað eru allar þessar vanga-
veltur séðar frá hans eigin sjónar-
horni, enda fáir menn á þessari
plánetu sem virðast vera jafn upp-
teknir af sjálfum sér og list sinni.
Held að ég viti bara ekki um lista-
mann sem virðist jafn einmana og
Morrissey er í textunum. Til allrar
lukku er hann hæfileikaríkur og
hljómar enn alveg merkilega heið-
arlegur í sköpun sinni.
En hafið engar áhyggjur,
Morrissey er langt frá því að vera
hamingjusamur þó að honum
gangi sérstaklega vel þessa dag-
anna. Það hvílir falleg og einmana-
leg depurð yfir allri plötunni. Í
laginu Life Is a Pigsty hljómar t.d.
virkilega flott slagverk sem herm-
ir eftir regni og þrumum. Svo virð-
ist sem Morrissey sé að leyfa sér
að sletta aðeins úr klaufunum.
Hann minnist líka á það í texta
eins lagsins að hann gangi með
sprengikúlur á milli fótanna.
Hljómar eins og Morrissey sé
reiðubúinn til þess að dreifa sæði
sínu yfir hvern þann akur sem
hann kemst yfir.
Þessi plata á aðeins eftir að
auka hróður söngvarans. Hlust-
endahópurinn verður bara breið-
ari með hverri útgáfu, þar sem
honum virðist takast ágætlega að
yngja þann hóp upp. Ef eitthvað er
að marka texta kappans gengur
honum sjálfum enn verr að finna
einhvern sem hann getur elskað
og gefist. Hann gefur og gefur af
sjálfum sér, tæmir sig líklegast
endanlega. Þess vegna eru þau
mörg þúsund hjörtun sem hafa
pláss fyrir hann, að minnsta kosti
ef hann heldur áfram að gera
svona fínar plötur.
Birgir Örn Steinarsson
Elskuleg sjálfsþjáning
MORRISSEY:
RINGLEADER OF THE TORMENTORS
Niðurstaða: Morrissey fylgir bestu plötu
sinni til þessa eftir með annarri ágætisplötu.
Kappinn er fullur af sjálfsöryggi þessa dagana,
og virðist njóta þess að vera til... en er samt
auðvitað ennþá á bláu nótunum.
13:00 Opnun hátíðarinnar
Kristinn R. Þórisson, dósent,
stjórnandi Gervigreindarseturs HR
13:20 Kristinn R. Þórisson,
Gervigreindarsetri HR
Björt framtíð gervigreindar fyrr og nú
13:35 Helga Waage, tæknistjóri, HEX
Að vera eða ekki vera - vitvera
13:50 Halldór Fannar Guðjónsson,
tæknistjóri, CCP
Íslenskur sýndarveruleiki
14:05 Hlé
14:20 Hrafn Þorri Þórisson
ásamt stjórn ISIR
Stofnun ISIR og kynning á félaginu
14:35 Tónlistaratriði
Frumflutningur verks nemenda
Listaháskóla Íslands
Frumflutningur gervigreindaróperu
meðlima Gervigreindarseturs HR
15:05 Hátíðin færist yfir í gamla
Morgunblaðshúsið
15:10 Sýning og veitingar
Þátttakendur í bílskúrsgervigreind
Básasýningar fyrirtækja og háskóla:
CCP
ISIR
Tungutæknisetur
HEX
HAFMYND / GAVIA
VDO
Spurl
Gervigreindarsetur HR
IT-CONS
Rannís
16:40 Verðlaunaafhending
Bílskúrsgervigreindarkeppnin
17:10 Dagskrárlok
Aðgangur ókeypis
D
A
G
S
K
R
A
����������������������������������������������������������
���������������������������
Heimasíðan kvikmynd.is, sem
hefur notið mikilla vinsælda
undanfarin ár, hefur fengið nýtt
útlit og aðgengilegra snið.
Á síðunni er samsafn af ýmiss
konar sniðugum myndskeiðum,
þar á meðal tónlistarmyndbönd-
um, sýnishornum úr kvikmynd-
um, auglýsingum og atvikum úr
íþróttaheiminum.
„Það var kominn tími til að
breyta útlitinu og það þarf að gera
reglulega,“ segir Þóroddur Bjarna-
son, annar af stofnendum síðunn-
ar. „Það er reyndar áhugavert að
New York Times á vefnum www.
nyt.com var að breyta sínu útliti
og það er mjög áþekkt nýja útlit-
inu okkar, þ.e. ef maður horfir á
grafísku þættina eins og umbrot-
ið, teikningu, letur, liti og svo
framvegis,“ segir hann.
Alls voru 45 þúsund heimsókn-
ir á síðuna tvær vikur í röð á dög-
unum þegar myndband Silvíu
Nætur við lagið Til hamingju
Ísland var nýkomið út.
Í síðustu viku var kvikmynd.is í
9. sæti yfir vinsælustu síður lands-
ins á teljari.is.
Aðgengilegra útlit
UMSJÓNARMENN Þóroddur Bjarnason, til
hægri, og Sindri Bergmann eru stofnendur
heimasíðunnar kvikmynd.is.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
FÖSTUDAGUR 28. apríl 2006 35
������� �
����������
�����������
������������
��������
��������
������������������������������
������������������������������
��������������
�������
����������
����