Fréttablaðið - 28.04.2006, Blaðsíða 64
28. apríl 2006 FÖSTUDAGUR32
timamot@frettabladid.is
Tilkynningar um merkisatburði, stórafmæli,
andlát og jarðarfarir í smáletursdálkinn hér að
ofan má senda á netfangið
timamot@frettabladid.is.
Auglýsingar á að senda á
auglysingar@frettabladid.is eða
hringja í síma 550 5000.
ANDLÁT
Steinunn Jónsdóttir, til heimilis í
Lönguhlíð 3, lést á Landspítalan-
um í Fossvogi sunnudaginn 16.
apríl. Útförin fór fram í kyrrþey.
Gunnar Ásberg Helgason,
Lambhaga, Rangárvöllum, lést á
líknardeild Landspítalans í Kópa-
vogi mánudaginn 24. apríl.
Þuríður Þorsteinsdóttir, Vestur-
vallagötu 1, lést á Landspítalanum
í Fossvogi sunnudaginn 9. apríl.
Útförin fór fram í kyrrþey.
JARÐARFARIR
13.00 Ásta Antonsdóttir, Rjúpu-
felli 23, verður jarðsungin
frá Fossvogskirkju.
13.00 Guðmundur Guðmunds-
son prentari, Tjarnarbóli
14, Seltjarnarnesi, verður
jarðsunginn frá Dómkirkj-
unni í Reykjavík.
13.00 Jóhanna Þorgeirsdóttir
kennari, Hlunnavogi 3,
AFMÆLI
Gunnar Karlsson
myndlistarmaður er
47 ára.
Margrét J. Pálma-
dóttir kórstjóri er
fimmtug.
María Lovísa Ragn-
arsdóttir fatahönnuð-
ur er 51 árs.
Júlíus Brjánsson er
55 ára.
MERKISATBURÐIR
1789 Uppreisn er gerð á skipinu
Bounty.
1819 Tukthúsið í Reykjavík er
gert að embættisbústað
fyrir stiftamtmann. Þar er
stjórnarráðshúsið nú.
1923 Fyrsti knattspyrnuleikurinn
fer fram á Wembley-leik-
vanginum.
1938 Stefán Íslandi óperusöngv-
ari kemur fram í fyrsta sinn
í Konunglega leikhúsinu í
Kaupmannahöfn.
1947 Thor Heyerdahl leggur af
stað á Kon-Tiki flekanum frá
Perú til Pólínesíu.
1967 Muhammad Ali hunsar
herkvaðningu og er sviptur
meistaratitlinum í hnefa-
leikum.
1969 Charles de Gaulle segir af
sér sem forseti Frakklands.
Á þessum degi stóðu
skæruliðar á Norður-Ítalíu
fyrir aftöku Benito Mussolini.
Skæruliðarnir höfðu náð
einræðisherranum daginn
áður þar sem hann reyndi
að sleppa yfir landamærin til
Sviss en mjög stuttu seinna
náðu herir bandamanna
til Mílanó. Hann var í fylgd
með heitkonu sinni, Clarettu
Petacci, og sextán einstakling-
um sem voru hátt settir undir
hans fasísku stjórn.
Daginn eftir aftökuna voru
lík Mussolinis og fylgdarliðs
hans hengd öfug upp á kjöt-
króka á torgi í Mílanó. Var sagt
að þetta væri gert til að sýna
fólki fram á að Mussolini væri
allur, til að reyna að koma í
veg fyrir flótta annarra fasista
og sem hefnd fyrir fjölmarg-
ar hengingar sem stjórn
Mussolinis stóð fyrir. Þegar
bandamenn komu til Mílanó
voru líkin tekin niður og
Mussolini fundinn legstaður í
ómerktri gröf í Mílanó.
Á sjötta áratug síðustu
aldar var líkið svo flutt
á núverandi hvíldarstað
Mussolinis í Predappio. Þar
hefur það legið síðan ef frá
er talið stutt tímabil þegar
nýfasistar stálu líkinu.
ÞETTA GERÐIST: 28. APRÍL 1945
Benito Mussolini tekinn af lífi
BENITO MUSSOLINI
PENELOPE FITZGERALD (1916-2000)
LÉST ÞENNAN DAG
„Engir tveir sjá hinn ytri heim á
nákvæmlega sama hátt. Fyrir
hvern einstakling er hlutur það
sem viðkomandi hugsar að hann
sé, með öðrum orðum ekki
hlutur heldur hugsun.“
Breski rithöfundurinn Penelope Fitzgerald
skrifaði allt frá ljóðum til ævisagna.
Um helgina verður velt upp þeirri
spurningu hvort fimmtán þúsund trjá-
tegundir geta þrifist hér á landi. Trjá-
ræktarklúbburinn hefur að megin-
markmiði að fjölga trjátegundum hér
á landi og stendur hann að málþingi á
morgun um það efni. Axel Kristinsson,
ritari klúbbsins, hefur gríðarlega
gaman af því að reyna ræktun á nýjum
tegundum og elur draum um trjásafn
við Esjurætur.
„Trjáræktarklúbburinn var stofn-
aður í árslok 2004 og hefur það að meg-
inmarkmiði að fjölga tegundum trjá-
plantna í ræktun á Íslandi, hvort sem
er til skógræktar, garðræktar eða ann-
arrar trjáræktar. Einnig er á stefnu-
skránni að stofna trjásafn á höfuðborg-
arsvæðinu sem við sjáum fyrir okkur á
svæði við Mógilsá,“ segir Axel. Í trjá-
safninu yrði afrakstur tilrauna klúbb-
félaga til sýnis og fengju Íslendingar
þar tækifæri til að sjá framandi trjá-
tegundir og hugmyndir um hvað þeir
geta ræktað. „Ég hef nefnt töluna
fimmtán þúsund tegundir en auðvitað
með spurningamerki því það er ekkert
öruggt að það takist. Í heiminum eru til
um 150 þúsund trjátegundir og ég tel
ástæðu til að prófa ræktun að minnsta
kosti tíu prósent af þeim.“
Axel segir að ákveðins misskilnings
gæti meðal Íslendinga um að ekki sé
hægt að rækta nema fáar trjátegundir
hér á landi. „Reyndar vitum við ekki
hve margar tegundir hafa verið próf-
aðar í ræktun en þær eru fleiri en
margir halda. Aftur á móti eru mjög
fáar tegundir almennt notaðar, til
dæmis í skógrækt eða kannski fimm
eða sex. Óhætt er þó að fullyrða að
miklu fleiri tegundir geta þrifist hér á
landi og þá sérstaklega í garðrækt.“
Aðspurður um hvata sem liggja að
baki því að vilja fjölga trjátegundum
segir Axel að þar komi til nytsemi í
bland við hreinræktaða ánægju. „Meiri
fjöldi tegunda býður upp á fleiri mögu-
leika í ræktun auk þess að ákveðið
öryggi er í því að setja ekki öll eggin í
sömu körfuna ef einhver áföll verða.
Þegar upp er staðið er þó megin-
skýringin á því að fólk er að fást við
þetta að það hefur alveg óstjórnlega
gaman af því að prófa eitthvað nýtt
sem á kannski ekki að vera hægt.“
Málþingið hefst klukkan 13 á morg-
un í sal 101 í Odda, Háskóla Íslands.
Sérstakur gestur þess er Jukka
Reinikainen, forstöðumaður Mustilla
trjásafnsins í Finnlandi, sem Axel
segir að sé eitt það veglegasta í Finn-
landi. Að þinginu loknu verður haldinn
aðalfundur Trjáræktarklúbbsins og
eru nýir meðlimir boðnir sérstaklega
velkomnir. ■
TRJÁRÆKTARKLÚBBURINN: STENDUR FYRIR MÁLÞINGI Á MORGUN
Stefna að trjásafni við Esjurætur
AXEL KRISTINSSON MEÐLIMUR Í TRJÁRÆKTARKLÚBBNUM Ástæður þess að fólk hefur áhuga á því að rækta nýjar trjátegundir eru að sögn Axels nytsemis-
sjónarmið í bland við hreina ánægju sem fæst af því að reyna það sem margir telja ómögulegt. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
verður jarðsungin frá
Seljakirkju.
13.30 Kristján Jónsson, dvalar-
heimilinu Hlíð, Akureyri,
verður jarðsunginn frá
Akureyrarkirkju.
14.00 Guðmundur Jónsson,
Staðarhrauni 20, Grindavík,
verður jarðsunginn frá
Grindavíkurkirkju.
14.00 Guðrún Jóhanna
Ármannsdóttir, frá Nes-
kaupstað, verður jarðsungin
frá Keflavíkurkirkju.
15.00 Anna Eggertsdóttir, frá
Steðja, Álakvísl 27, verður
jarðsungin frá Digranes-
kirkju.
15.00 Elísabet María Kvaran
verður jarðsungin frá Dóm-
kirkjunni í Reykjavík.
15.00 Númi Ólafsson Fjeldsted,
Ljósheimum 10, Reykjavík,
verður jarðsunginn frá
Neskirkju við Hagatorg.
16.00 Jónína Jónsdóttir Brunnan
verður jarðsungin frá
Hafnarkirkju á Höfn.
Á FLÓTTA UNDAN SUMARHITANUM
Þessi glaðbeittu filippsínsku börn
reyndu að skola af sér bakandi
sumarhitann við heimili sitt í
Manila. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI
Ástkær eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir, afi og langafi,
Ágúst Kolbeinn Sigurlaugsson
Hornbrekkuvegi 12, Ólafsfirði,
lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri þann 23. apríl.
Útförin fer fram frá Ólafsfjarðarkirkju mánudaginn
1. maí kl. 14.00.
Olga Albertsdóttir
Albert Ágústsson Ragnhildur Gunnarsdóttir
Guðný Ágústsdóttir Ægir Ólafsson
Kolbeinn Ágústsson Jónína Guðbjartsdóttir
Ólöf Ágústsdóttir Marteinn Halldórsson
Sigurlaugur Valur Ágústsson Nanna Árnadóttir
Geir Hörður Ágústsson Anna Rósa Vigfúsdóttir
Elínborg Ágústsdóttir Kristinn Steingrímsson
Sæbjörg Ágústsdóttir Jóakim Freyr Ólafsson
afabörn og langafabörn.
Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur
samúð og hlýhug við andlát og útför
Gísla K. Sigurðssonar
bifreiðarstjóra, Mjósundi 15, Hafnarfirði.
Marta Ormsdóttir
Sigurður Gíslason Ásbjörg Joana Skorastein
Kristín Gísladóttir Ellert V. Harðarson
Júlíus Aron Ellertsson
Rakel Ósk Ellertsdóttir
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
Guðmundur Jónsson
Staðarhrauni 20, Grindavík,
sem andaðist á heimili sínu laugardaginn 22. apríl,
verður jarðsunginn frá Grindavíkurkirkju föstudaginn
28. apríl kl. 14.00.
Alda Bogadóttir
Kristján Karl Guðmundsson
Jón Fannar Guðmundsson Guðveig Sigurlaug Ólafsdóttir
Guðrún Helga Guðmundsdóttir Yngvi Páll Gunnlaugsson
Arnar Freyr Guðmundsson
og barnabörn.