Fréttablaðið - 28.04.2006, Side 64

Fréttablaðið - 28.04.2006, Side 64
 28. apríl 2006 FÖSTUDAGUR32 timamot@frettabladid.is Tilkynningar um merkisatburði, stórafmæli, andlát og jarðarfarir í smáletursdálkinn hér að ofan má senda á netfangið timamot@frettabladid.is. Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is eða hringja í síma 550 5000. ANDLÁT Steinunn Jónsdóttir, til heimilis í Lönguhlíð 3, lést á Landspítalan- um í Fossvogi sunnudaginn 16. apríl. Útförin fór fram í kyrrþey. Gunnar Ásberg Helgason, Lambhaga, Rangárvöllum, lést á líknardeild Landspítalans í Kópa- vogi mánudaginn 24. apríl. Þuríður Þorsteinsdóttir, Vestur- vallagötu 1, lést á Landspítalanum í Fossvogi sunnudaginn 9. apríl. Útförin fór fram í kyrrþey. JARÐARFARIR 13.00 Ásta Antonsdóttir, Rjúpu- felli 23, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju. 13.00 Guðmundur Guðmunds- son prentari, Tjarnarbóli 14, Seltjarnarnesi, verður jarðsunginn frá Dómkirkj- unni í Reykjavík. 13.00 Jóhanna Þorgeirsdóttir kennari, Hlunnavogi 3, AFMÆLI Gunnar Karlsson myndlistarmaður er 47 ára. Margrét J. Pálma- dóttir kórstjóri er fimmtug. María Lovísa Ragn- arsdóttir fatahönnuð- ur er 51 árs. Júlíus Brjánsson er 55 ára. MERKISATBURÐIR 1789 Uppreisn er gerð á skipinu Bounty. 1819 Tukthúsið í Reykjavík er gert að embættisbústað fyrir stiftamtmann. Þar er stjórnarráðshúsið nú. 1923 Fyrsti knattspyrnuleikurinn fer fram á Wembley-leik- vanginum. 1938 Stefán Íslandi óperusöngv- ari kemur fram í fyrsta sinn í Konunglega leikhúsinu í Kaupmannahöfn. 1947 Thor Heyerdahl leggur af stað á Kon-Tiki flekanum frá Perú til Pólínesíu. 1967 Muhammad Ali hunsar herkvaðningu og er sviptur meistaratitlinum í hnefa- leikum. 1969 Charles de Gaulle segir af sér sem forseti Frakklands. Á þessum degi stóðu skæruliðar á Norður-Ítalíu fyrir aftöku Benito Mussolini. Skæruliðarnir höfðu náð einræðisherranum daginn áður þar sem hann reyndi að sleppa yfir landamærin til Sviss en mjög stuttu seinna náðu herir bandamanna til Mílanó. Hann var í fylgd með heitkonu sinni, Clarettu Petacci, og sextán einstakling- um sem voru hátt settir undir hans fasísku stjórn. Daginn eftir aftökuna voru lík Mussolinis og fylgdarliðs hans hengd öfug upp á kjöt- króka á torgi í Mílanó. Var sagt að þetta væri gert til að sýna fólki fram á að Mussolini væri allur, til að reyna að koma í veg fyrir flótta annarra fasista og sem hefnd fyrir fjölmarg- ar hengingar sem stjórn Mussolinis stóð fyrir. Þegar bandamenn komu til Mílanó voru líkin tekin niður og Mussolini fundinn legstaður í ómerktri gröf í Mílanó. Á sjötta áratug síðustu aldar var líkið svo flutt á núverandi hvíldarstað Mussolinis í Predappio. Þar hefur það legið síðan ef frá er talið stutt tímabil þegar nýfasistar stálu líkinu. ÞETTA GERÐIST: 28. APRÍL 1945 Benito Mussolini tekinn af lífi BENITO MUSSOLINI PENELOPE FITZGERALD (1916-2000) LÉST ÞENNAN DAG „Engir tveir sjá hinn ytri heim á nákvæmlega sama hátt. Fyrir hvern einstakling er hlutur það sem viðkomandi hugsar að hann sé, með öðrum orðum ekki hlutur heldur hugsun.“ Breski rithöfundurinn Penelope Fitzgerald skrifaði allt frá ljóðum til ævisagna. Um helgina verður velt upp þeirri spurningu hvort fimmtán þúsund trjá- tegundir geta þrifist hér á landi. Trjá- ræktarklúbburinn hefur að megin- markmiði að fjölga trjátegundum hér á landi og stendur hann að málþingi á morgun um það efni. Axel Kristinsson, ritari klúbbsins, hefur gríðarlega gaman af því að reyna ræktun á nýjum tegundum og elur draum um trjásafn við Esjurætur. „Trjáræktarklúbburinn var stofn- aður í árslok 2004 og hefur það að meg- inmarkmiði að fjölga tegundum trjá- plantna í ræktun á Íslandi, hvort sem er til skógræktar, garðræktar eða ann- arrar trjáræktar. Einnig er á stefnu- skránni að stofna trjásafn á höfuðborg- arsvæðinu sem við sjáum fyrir okkur á svæði við Mógilsá,“ segir Axel. Í trjá- safninu yrði afrakstur tilrauna klúbb- félaga til sýnis og fengju Íslendingar þar tækifæri til að sjá framandi trjá- tegundir og hugmyndir um hvað þeir geta ræktað. „Ég hef nefnt töluna fimmtán þúsund tegundir en auðvitað með spurningamerki því það er ekkert öruggt að það takist. Í heiminum eru til um 150 þúsund trjátegundir og ég tel ástæðu til að prófa ræktun að minnsta kosti tíu prósent af þeim.“ Axel segir að ákveðins misskilnings gæti meðal Íslendinga um að ekki sé hægt að rækta nema fáar trjátegundir hér á landi. „Reyndar vitum við ekki hve margar tegundir hafa verið próf- aðar í ræktun en þær eru fleiri en margir halda. Aftur á móti eru mjög fáar tegundir almennt notaðar, til dæmis í skógrækt eða kannski fimm eða sex. Óhætt er þó að fullyrða að miklu fleiri tegundir geta þrifist hér á landi og þá sérstaklega í garðrækt.“ Aðspurður um hvata sem liggja að baki því að vilja fjölga trjátegundum segir Axel að þar komi til nytsemi í bland við hreinræktaða ánægju. „Meiri fjöldi tegunda býður upp á fleiri mögu- leika í ræktun auk þess að ákveðið öryggi er í því að setja ekki öll eggin í sömu körfuna ef einhver áföll verða. Þegar upp er staðið er þó megin- skýringin á því að fólk er að fást við þetta að það hefur alveg óstjórnlega gaman af því að prófa eitthvað nýtt sem á kannski ekki að vera hægt.“ Málþingið hefst klukkan 13 á morg- un í sal 101 í Odda, Háskóla Íslands. Sérstakur gestur þess er Jukka Reinikainen, forstöðumaður Mustilla trjásafnsins í Finnlandi, sem Axel segir að sé eitt það veglegasta í Finn- landi. Að þinginu loknu verður haldinn aðalfundur Trjáræktarklúbbsins og eru nýir meðlimir boðnir sérstaklega velkomnir. ■ TRJÁRÆKTARKLÚBBURINN: STENDUR FYRIR MÁLÞINGI Á MORGUN Stefna að trjásafni við Esjurætur AXEL KRISTINSSON MEÐLIMUR Í TRJÁRÆKTARKLÚBBNUM Ástæður þess að fólk hefur áhuga á því að rækta nýjar trjátegundir eru að sögn Axels nytsemis- sjónarmið í bland við hreina ánægju sem fæst af því að reyna það sem margir telja ómögulegt. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA verður jarðsungin frá Seljakirkju. 13.30 Kristján Jónsson, dvalar- heimilinu Hlíð, Akureyri, verður jarðsunginn frá Akureyrarkirkju. 14.00 Guðmundur Jónsson, Staðarhrauni 20, Grindavík, verður jarðsunginn frá Grindavíkurkirkju. 14.00 Guðrún Jóhanna Ármannsdóttir, frá Nes- kaupstað, verður jarðsungin frá Keflavíkurkirkju. 15.00 Anna Eggertsdóttir, frá Steðja, Álakvísl 27, verður jarðsungin frá Digranes- kirkju. 15.00 Elísabet María Kvaran verður jarðsungin frá Dóm- kirkjunni í Reykjavík. 15.00 Númi Ólafsson Fjeldsted, Ljósheimum 10, Reykjavík, verður jarðsunginn frá Neskirkju við Hagatorg. 16.00 Jónína Jónsdóttir Brunnan verður jarðsungin frá Hafnarkirkju á Höfn. Á FLÓTTA UNDAN SUMARHITANUM Þessi glaðbeittu filippsínsku börn reyndu að skola af sér bakandi sumarhitann við heimili sitt í Manila. FRÉTTABLAÐIÐ/AP 550 5000 AUGLÝSINGASÍMI Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, Ágúst Kolbeinn Sigurlaugsson Hornbrekkuvegi 12, Ólafsfirði, lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri þann 23. apríl. Útförin fer fram frá Ólafsfjarðarkirkju mánudaginn 1. maí kl. 14.00. Olga Albertsdóttir Albert Ágústsson Ragnhildur Gunnarsdóttir Guðný Ágústsdóttir Ægir Ólafsson Kolbeinn Ágústsson Jónína Guðbjartsdóttir Ólöf Ágústsdóttir Marteinn Halldórsson Sigurlaugur Valur Ágústsson Nanna Árnadóttir Geir Hörður Ágústsson Anna Rósa Vigfúsdóttir Elínborg Ágústsdóttir Kristinn Steingrímsson Sæbjörg Ágústsdóttir Jóakim Freyr Ólafsson afabörn og langafabörn. Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför Gísla K. Sigurðssonar bifreiðarstjóra, Mjósundi 15, Hafnarfirði. Marta Ormsdóttir Sigurður Gíslason Ásbjörg Joana Skorastein Kristín Gísladóttir Ellert V. Harðarson Júlíus Aron Ellertsson Rakel Ósk Ellertsdóttir Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, Guðmundur Jónsson Staðarhrauni 20, Grindavík, sem andaðist á heimili sínu laugardaginn 22. apríl, verður jarðsunginn frá Grindavíkurkirkju föstudaginn 28. apríl kl. 14.00. Alda Bogadóttir Kristján Karl Guðmundsson Jón Fannar Guðmundsson Guðveig Sigurlaug Ólafsdóttir Guðrún Helga Guðmundsdóttir Yngvi Páll Gunnlaugsson Arnar Freyr Guðmundsson og barnabörn.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.