Fréttablaðið - 28.04.2006, Blaðsíða 44
8
Í Húsasmiðjunni fást viðarpott-
ar sem hitaðir eru með eldi. „Við
höfum selt nokkra potta. Þetta er
ekki heitasta varan en þetta hent-
ar sumum,“ segir Bergur Hjaltason
innkaupastjóri og tekur sem dæmi
að potturinn henti vel fólki sem eigi
bústaði þar sem ekki er heitt vatn
eða rafmagn í miklu magni en nóg
af köldu vatni, runnum og skógi.
Potturinn er hringlaga úr viði og
um 120 sentimetrar á dýpt og tveir
metrar í þvermál. Ofan í honum er
skilrúm og þar er ryðfrír ofn. Pott-
urinn sjálfur er fylltur af vatni, en
hann tekur um 1.200 lítra af vatni.
Síðan er viður settur í ofninn og
kveikt í. Bergur segir að það taki
eingöngu þrjá
til fjóra tíma að
hita vatnið sem
er tiltölulega stutt
miðað við marga
aðra potta.
„Skilrúmið er
rimlagrind þannig
að vatnið á greið-
an aðgang að
ofninum en ver
jafnframt fólkið
fyrir því að brenna sig,“ segir Berg-
ur en hitinn á vatninu er stilltur
með trekkspjaldi á ofninum.
„Þeir sem hafa reynslu af pottin-
um segja að um einn svartan rusla-
poka af timburrusli þurfi til að hita
pottinn,“ segir Bergur og bætir við
að ekki skipti máli hvernig timb-
ur er notað svo lengi sem það sé
þurrt og brennanlegt. Þá þurfi ekki
að bæta á ofninn meðan verið sé
í pottinum enda sé fólk aldrei það
lengi í einu.
Slíkur viðarpottur kostar um 300
þúsund krónur í Húsasmiðjunni.
Venjuleg skel án hitunarbúnaðar
kostar 125 þúsund krónur en hins
vegar er hægt að fá heita potta alveg
upp í milljón krónur,
að sögn Bergs.
Þó að sala á pott-
unum sé ekki rífandi
eru alltaf einhverj-
ir sem sýna þeim
áhuga. „Það eru
einnig sumir sem
vilja heldur trépott-
inn því það er svo
n á t t ú r u l e g t , “
segir Bergur.
Eldhitaðan pott
í bústaðinn
Sumir sumarbústaðaeigendur hafa ekki aðgang að heitu
vatni eða rafmagni. Það er þó engin fyrirstaða til að
koma sér upp heitum potti.
Viðarpotturinn sem hægt er að kaupa í Húsamiðjunni hentar vel þeim sem hafa ekki
greiðan aðgang að hitaveitu.
Potturinn er náttúrulegur og fallegur og
sómir sér vel við bústaðinn.
■■■■ { hús & garðar } ■■■■■■■■■■■
Stjúpur eru vinsæl blóm hér á
landi enda harðgerar og henta
vel íslensku tíðarfari. Þó að enn
sé of snemmt að setja niður sum-
arblóm styttist í það. Stjúpur er
hægt að setja niður upp úr miðj-
um maí ef veður er gott. Ráð er
að byrja á því að setja stjúpur í
ker í stað beða, þá er hægt að
kippa kerinu inn ef útlit er fyrir
kalda nótt. Stjúpur eru til í öllum
litum og lífga því sannarlega upp
á garðinn og svalirnar.
Vorblóm
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI