Fréttablaðið - 28.04.2006, Side 47

Fréttablaðið - 28.04.2006, Side 47
11 Það er gróðursæld í gluggakistunum hjá Aðal- fríði Pálsdóttur húsfreyju í Laugarnesinu. Þar for- ræktar hún sumarblóm með góðum árangri. „Ég er aðallega með tvær tegund- ir, bara af því að ég þekki þær og gengur svo vel að rækta þær inni. Það eru stjúpur og morgunfrúr,“ segir Aðalfríður sem kveðst sá fyrir stjúpunum í byrjun mars og morg- unfrúnum um páskaleytið. Hún er með einn bakka af hvoru í byrj- un. „Ég strái fræinu á moldina og klappa lauslega ofan á. Svo set ég plastpoka yfir og sting göt á hann því moldin vill mygla ef hún nær ekki til sín lofti. Ég hef plastið yfir rétt á meðan fræin eru að spíra, sem tekur svona viku. Þá fara litlir angar að myndast og ég passa að gefa þeim hæfilega mikla vökvun.“ Það er vika síðan Aðalfríður sáði fyrir morgunfrúnni sem er þegar farin að koma upp. En nú þarf hún að kaupa meiri mold og dreifa stjúpunum í stærra pláss. „Ég set þær í lítil box, ýmist eina eða tvær í hvert og þá tekur ræktunin meira pláss en ég fylli þau skot sem ég get. Manni finnst þetta ekkert alltaf sniðugt á meðan allt er úti um allt en það líður,“ segir hún brosandi. Til að blómin vaxi ekki upp í spír- ur hefur Aðalfríður þau í norður- glugga. „Svo set ég þetta út á svalir eins fljótt og ég get en kippi þeim inn ef kólnar um of. Ég er samt ekki byrjuð á því í vor því stjúpur eru viðkvæmar svona ungar, það eru svo fín á þeim blöðin.“ Aðalfríður kveðst ekki vera í vandræðum með að koma blóm- unum út því þau dreifist. Sum fari að sumarbústaðnum, sum upp í kirkjugarð, önnur kringum húsið og afkomendurnir fá afganginn. „Ég á gamansaman son og spurði hann hvort hann vildi ekki fá hjá mér fræ en hann var fljótur að svara: „Mér Með garð í glugganum „Ég hef oft hugsað að þetta geri ég ekki oftar en renn alltaf á rassinn með þá ákvörðun,“ segir Aðalfríður um ræktunina. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■ { hús & garðar } ■■■■ þykir nú skemmtilegra að fá hjá þér blóm!“„ segir hún og kveðst ánægð með að plönturnar hennar hafi ekki reynst síðri en þær sem eru keyptar. Hún segir blómin þurfa heilmikla umhirðu en ánægjan fylgi með. „Ég hef oft hugsað þegar ég er búin að fylla gluggana af bökkum að þetta geri ég ekki oftar en renn alltaf á rassinn með þá ákvörðun því mér finnst þetta svo gaman og byrja aftur að vori!“ segir þessi hressa kona að lokum. Sandkassar eru vinsælir hjá börn- um á öllum aldri. Því er einkar sniðugt að koma einum slíkum fyrir í garðinum. Ekki er því að neita að þeim fylgir nokkuð stúss. En það breytir því ekki að sandkassar eru skemmtileg leiktæki. Skipta þarf reglulega um sand í sandkössum. Þegar þörf er á hrein- um sandi í sandkassa í garðinum er þrennt til ráða: Fara á heimilisbíln- um og flytja hann heim í skottinu í pokum, útvega sér kerru eða pallbíl og ná í lausan sand, sem er mun ódýrara ef flutningstækið fæst frítt, eða í þriðja lagi að fá hann keyrð- an heim og annaðhvort láta sturta honum eða blása í kassann. Fyrir- tækin sem selja svona sand eru t.d. Björgun og BM Vallá. Hjá Björgun heitir hann sandkassasandur og BM Vallá pússningasandur. Sniðug lausn getur verið að fella sandkassa ofan í palla þá sem marg- ir hafa gert við hús sín. Þá er auð- velt að moka sandinum aftur ofan í kassann þegar leik er lokið. Gott er að hafa lok á sandköss- um. Kettir kunna vel við að gera þarfir sínar í sandkassa og því er snyrtilegra að loka þeim einfaldlega þegar farið er inn eftir góðan dag í kassanum. Sandkassinn Hér hefur sandkassi verið felldur ofan í pall. Villtar plöntur hafa verið í tísku í görðum undanfarin ár. Þar fer fremst í flokki margarítan (chrysanthem- um), sem minnir helst á baldursbrá. Hana má setja í beð og ker. Sumarblóm

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.