Fréttablaðið - 28.04.2006, Qupperneq 68
68 28. apríl 2006 FÖSTUDAGUR
menning@frettabladid.is
������������
�������������������
������������
����������������������������������������������������������
���������������������������
F
A
B
R
IK
A
N
2
0
0
6
�����������������������������������
�������������������������
�������������������
�������������
�������������
�������������
�������������
����������
��������������������������������������
�������������������������������
���������������������������������
Kl. 16.00
Hláturtíð verður sett með formleg-
um hætti í Borgarleikhúsinu. Allra
handa uppákomur fyrir húmorista á
öllum aldri, leiklist, tónlist, myndlist
og gamanmál. Húmorslausir geta
fengið tilsögn og hjálp frá fagaðilum.
Allur ágóði opnunarhátíðarinnar
rennur til Umhyggju, félags lang-
veikra barna.
!
> Ekki missa af...
stórsveitamaraþoni á morgun.
Átta stórsveitir af höfuðborg-
arsvæðinu feykja þakinu af
Ráðhúsi Reykjavíkur með
þéttri dagskrá frá kl. 13-16.30.
Aðgangur ókeypis.
opnun í Listasafni Reykjanes-
bæjar þar sem sex færeyskir
frændur okkar opna málverka-
sýningu kl. 18. Sýningin ber
heitið „Í eygsjón“ en myndefnið
er færeysk náttúra. Sýningin er
opin alla daga frá 13-17.30.
andspyrnuhreyfingu ljóta fólks-
ins (AFL). Leikfélag Kópavogs
sýnir óhuggulega fyndið og
blóðugt leikrit um valdatog-
streitu fallega fólksins og þess
sem er aðeins óheppnara í
framan.
Listakonan og rithöfundurinn
Björg Örvar opnar málverka-
sýninguna „barnasaga/
fiskisaga“ í galleríi Animu í
Ingólfsstræti í dag. „Þetta eru
tvær myndaseríur sem ég
nefni þessum nöfnum, þetta
urðu vinnuheiti þegar á leið,“
segir Björg. Hún kveðst yfirleitt
vinna út frá eins konar núll-
punkti þegar hún málar.
„Oftast þegar ég byrja hef
ég bara í huga einhver form
og liti eða myndbyggingu
en svo fæ ég hugmyndir um
hverju þau tengjast þegar ég
mála. Ég byrja eins og það sé
í fyrsta skipti sem ég mála.“
Myndirnar eru ávallt tengdar
upplifunum hennar og
tilfinningum en í verkunum
vísar hún til óskilgreindra
náttúruþátta. „Ég er ekki
beint að færa land og líkama
í mynd heldur upplifun mína
af hvoru tveggja, hvaða
tilfinningu það vekur hjá mér
þegar náttúran fer að manni
og frá manni um stund.“
Þetta er sautjánda einka-
sýning Bjargar en hún hefur
tekið þátt í fjölda samsýn-
inga bæði hér heima og
erlendis auk þess sem hún
fæst við ritstörf.
Sýningin verður opnuð kl.
17 í dag og stendur til 21.
maí en gallerí Anima er opið
fimmtudaga til föstudaga frá
12-17. - khh
BJÖRG ÖRVAR SÝNIR TVÆR MYNDASERÍUR
Listakonan málar óhlutbundnar náttúruupp-
lifanir.
Sporðaköst atómanna
Píanóleikarinn Laufey Sigrún Har-
aldsdóttir heldur tónleika í Salnum
í Kópavogi í kvöld en tónleikarnir
eru liður í útskriftartónleikaröð
tónlistardeildar Listaháskóla
Íslands. Laufey hóf nám í LHÍ
haustið 2003 og lærði hjá Halldóri
Haraldssyni og síðar hjá Peter
Máté, hún hefur og tekið þátt í fjöl-
mörgum masters-námskeiðum hjá
ýmsum erlendum gestakennurum.
Síðasta sumar spilaði hún með
tríóinu Drýas sem starfaði á
vegum Hins hússins og hélt tón-
leika í Reykjavík og á Ísafirði.
Laufey Sigrún leikur verk eftir
Ludwig van Beethoven, Fréderic
Chopin, Franz Liszt, Sjostakovítsj
og Bach á tónleikunum auk
fimmtán ungverskra bændadansa
sem meistari Bartók byggði á safni
ungverskra þjóðlaga.
Aðgangur að tónleikana er
ókeypis en þeir hefjast kl. 20.00.
- khh
Ungverskir dansar
LAUFEY SIGRÚN HARALDSDÓTTIR PÍANÓ-
LEIKARI
Á næstu dögum verða fjöl-
breyttar uppákomur og list-
viðburðir úti um borg og bý
á vegum hátíðar sem nefnist
List án landamæra. Þátttak-
endur á hátíðinni koma úr
ýmsum áttum en eiga það
sameiginlegt að hafa ríka
sköpunarþörf, frumleika og
framkvæmdagleði.
Að hátíðinni standa Fjölmennt,
fullorðinsfræðsla fatlaðra, Átak,
félag fólks með þroskahömlun,
Hitt húsið og Landssamtökin
Þroskahjálp en þau hafa fengið til
samstarfs við sig fjölbreyttan
hóp af listamönnum úr ólíkum
listgreinum. „Markmið hátíðar-
innar er að fella niður landamæri
og vinna á þeim ósýnilegu múrum
sem víða eru uppi og þá sér í lagi
um menningu og listir,“ segir
Margrét M. Norðdahl, fram-
kvæmdastýra hátíðarinnar, og
áréttar að það sé hægt að njóta
ólíkra hluta, sköpunin þarfnist
ekki alltaf einhverra formerkja
eða samhengis til þess að fólk geti
notið hennar. „Sýnileiki ólíkra
einstaklinga í menningu og list-
um er mikilvægur, bæði fyrir
samfélagið í heild sem og fyrir
jaðarhópa sem einnig þurfa að
eiga sér fyrirmyndir.“
Dagskráin í ár er með vegleg-
asta mót en yfir tuttugu viðburðir
verða skipulagðir víðs vegar um
höfuðborgarsvæðið og einnig á
landsbyggðinni en uppákomur
verða á Selfossi, Akureyri, Egils-
stöðum, Neskaupstað og Ísafirði.
„Eiginleg dagskrá hófst á
þriðjudaginn með málþingi sem
gekk ofsalega vel,“ segir Margrét
en fjölmargir fluttu erindi og
sköpuðust að sögn líflegar
umræður um landamæri menn-
ingar og viðhorfa á þinginu. Á
næstu dögum verða síðan margs
konar uppákomur um allan bæ og
úti á landsbyggðinni þar sem leik-
list, myndlist, tónlist og bók-
menntaviðburðir munu skipa
stóran sess. „Í dag verður líka
boðið upp á blint kaffihús í Hinu
húsinu og síðar mun Hugarafl
standa fyrir geðveiku kaffihúsi,
en þar verður boðið upp á klikk-
aðar kökur og brjálaða uppákomu,
svona karnivalstemningu með
þunglyndisívafi,“ segir Margrét
og áréttar að þátttakendurnir hafi
allir mjög góðan húmor.
Listin brúar
Margrét segir að mikil gróska
sé í menningarlífi fatlaðra og
ófatlaðra og lítið mál að fá fólk til
samstarfs og bendir á að mörg
áhugaverð samstarfsverkefni
hafi orðið til. Eins og yfirskrift
hátíðarinnar ber með sér brúar
listin landamæri og á setningar-
hátíðinni sem verður í Ráðhúsi
Reykjavíkur kl. 17 verður til að
mynda ljósmyndasýning, Þórar-
inn Eldjárn og Skúli Steinar lesa
úr verkum sínum, Bjöllukórinn
flytur lag sem og þær Hugrún
Dögg Þorfinnsdóttir, meðlimur í
söngflokknum Blikandi stjörnum,
og Ragnheiður Gröndal. Ágúst
Guðmundsson, formaður Banda-
lags íslenskra listamanna, flytur
setningarávarp. Táknmálstúlkur
mun þýða dagskráratriði og
erindi yfir á táknmál.
Sviðslistaveisla
Á mánudaginn verður leiklist-
arveisla í Borgarleikhúsinu þar
sem sýnd verða brot úr leikritun-
um Pókók sem Halaleikhópurinn
sýnir, Viðtalinu sem sýnt er í
Hafnarfjarðarleikhúsinu og leik-
hópurinn Perlan sýnir söguna um
Mídas konung. Þá verður líka
frumsýnt dansverk sem danshóp-
ur Sérsveitarinnar, sem starfar á
vegum Hins hússins og Hreyfi-
þróunarsamsteypunnar hefur
unnið í sameiningu. Myndlistar-
sýningar verða í Galleríi Tukt, á
Sólon Íslandus og á Thorvaldsen,
handverkssýning í Hinu húsinu
og ljósmyndasýning í Hafnarborg
og ljóðakvöld á Hressó í sam-
starfi við Ljóð.is og Nýhil.
„Þetta er í þriðja sinn sem
hátíðin er haldin og stefnt er að
því að þetta verði árlegur við-
burður í menningarlífinu,“ segir
Margrét og að allir sem vilja
koma fram og sýna geti það og
sýni þá frumkvæðið með því að
leita eftir því, en aðstandendur
hátíðarinnar standa ekki sjálfir
að eiginlegum viðburðum.
Frítt er inn á alla viðburði
hátíðarinnar og eru allir velkomn-
ir, nánari upplýsingar um dag-
skrána má nálgast á heimasíðu
Þroskahjálpar, www.throska-
hjalp.is. kristrun@frettabladid.is
Listin brúar landamærin
MYNDLISTARFÓLK SÝNIR Í AUSTURSAL RÁÐHÚSSINS Listhátíðin List án landamæra hefst í dag með veglegri opnunarhátíð í Ráðhúsinu.
FRÉTTABLAÐIÐ/HÖRÐUR
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI