Fréttablaðið - 28.04.2006, Side 76

Fréttablaðið - 28.04.2006, Side 76
 28. apríl 2006 FÖSTUDAGUR44 FRÉTTIR AF FÓLKI Leikkonan Sarah Jessica Parker hefur kveðið niður orðróm þess eðlis að hún sé ólétt af barni númer tvö. Slúð- urblöðin fengu þá flugu í höfuðið þegar hún klæddist víðum kjól sem var tekinn saman undir brjóstin og fékk sér ekkert vín á opin- berum vetvangi. „Það að klæðast kjól með mitti í hertogastíl gerir hana ekki ólétta. Og hún drekkur mjög sjaldan,“ sagði talsmaður Parker. Bandaríska poppsöngkonan Mandy Moore mun tala fyrir aukapersónu í einum þáttanna um Simpson-fjölskyld- una. Þátturinn kallast Homer and Marge Turn a Couple Play. Persónan sem Mandy talar fyrir, Fiona, veldur leiðindum hjá Simpson-fjölskyldunni þegar hún biður Hómer að nudda á sér hálsinn og fer það að sjálfsögðu ekki vel í Marge Simpson. Þátturinn verður sýndur í Bandaríkjunum hinn 21. maí. Aðstandendur sjónvarpsþáttarins Strákanna héldu til Manchester í þeim tilgangi að fylgjast með leik Liverpool og Chelsea í undanúr- slitum FA-bikarsins á Old Traff- ord. Skemmst er frá því að segja að ferðin var í meira lagi eftir- minnileg. Liðin tvö hafa lengi eldað grátt silfur saman á knatt- spyrnuvellinum og muna margir eftir því þegar Luis Garcia, leik- maður Liverpool, skoraði umdeilt mark í undanúrslitum meistara- deildarinnar í fyrra. Rígurinn er því gríðarlega mikill milli stuðn- ingsmanna liðanna. Þó að Chelsea-bullurnar hafi lengi haft orð á sér fyrir að vera harðar í horn að taka sagði Auðunn Blöndal að stuðningsmenn Liver- pool hefðu verið mun geðveikari. „Þeir voru alveg rosalega æstir,“ útskýrir Auðunn, sem komst óþægilega að því hversu miklu máli hollustan við liðið skiptir. „Chelsea-aðáendur gera mikið úr meintri fátækt í Liverpool og í hvert skipti sem áhangendur Liverpool kölluðu nafn liðs síns öskruðu hinir bláklæddu að þeir ættu að finna sér vinnu,“ útskýrir Auðunn. „Ég vissi þetta ekkert og fór því í mínu mesta sakleysi að stuðningsmanni Liverpool og bað hann um fara í Chelsea-búning fyrir smá pening. Sá hélt auðvitað að ég væri einhver ríkur Chelsea- plebbi og ég varð virkilega hrædd- ur,“ bætir sjónvarpsmaðurinn við. Sjálfur er Auðunn gallharður stuðningsmaður Manchester Unit- ed og fannst heldur súrt í broti að fyrsta heimsókn hans á heimavöll liðsins skyldi vera vegna leiks Liverpool og Chelsea. „Ég fer alveg örugglega einhvern tímann á leik með United þarna,“ lýsir Auðunn yfir og bætir því við að stuðningsmennirnir hafi ekki sýnt félaginu sínu mikla virðingu. „Á klósettinu voru menn ekkert að vanda sig við að hitta ofan í pissu- skálarnar heldu létu bara flakka á veggina.“ - fgg VILTU PENING? Auðunn Blöndal kom sér í mikla klípu þegar hann bauð Liverpool- áhanganda að klæðast Chelsea-treyju. GUNNAR Í GÓÐUM HÓPI Áhangendur Liverpool voru í miklu stuði og naut Gunnar sín vel meðal þeirra. Reittu boltabullur til reiði Fjórða plata skosku hljómsveitar- innar Snow Patrol kemur út á þriðjudag. Síðasta plata sveitar- innar, Final Straw, seldist í vel á þriðju milljón eintaka um heim allan, enda innihélt hún slagarann Run. Snow Patrol hefur verið starf- andi í tíu ár. Sveitin var stofnuð af forspakkanum Gary Lightbody og trommaranum Jonny Quinn í Dundee í Skotlandi, en þeir eru reyndar báðir frá Belfast. Fyrsta platan kom út 1997 hjá plötuútgáf- unni Electric Honey og hét sveitin þá Polar Bear. Næstu tvær plötur komu út hjá Jeepster Records en þá hafði sveitin breytt nafninu í Snow Patrol. Það var ekki fyrr en sveitin gerði samning við útgáfurisann Polydor sem hjólin fóru að snúast á almennilegum hraða. Fyrrnefnd Final Straw kom út undir því merki árið 2003 og sló í gegn. Nýja platan verður fáanleg í tveimur útgáfum. Önnur útgáfan er einungis fáanleg í takmörkuðu magni, en hún inniheldur auka DVD-mynddisk. Hann inniheldur fimmtán mínútna heimildarmynd um gerð plötunnar, heimildar- mynd um gerð myndbandsins við fyrsta smáskífulagið You´re All I Have og myndbandið sjálft. Fjórða plata Snow Patrol SNOW PATROL Hljómsveitin Snow Patrol er að gefa út sína fjórðu plötu, sem ber heitið Final Straw.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.