Fréttablaðið - 28.04.2006, Page 81

Fréttablaðið - 28.04.2006, Page 81
FÖSTUDAGUR 28. apríl 2006 49 FÓTBOLTI Mark Hughes, knatt- spyrnustjóri Blackburn í ensku úrvalsdeildinni, segir að það yrði gríðarlegt áfall fyrir þjálfarastétt- ina í Bretlandi ef Luis Felipe Scol- ari yrði ráðinn landsliðsþjálfari Englendinga. Hughes lét þau orð falla í gær þegar fyrstu fregnir bárust af því að enska knatt- spyrnusambandið hefði boðið Scolari starfið. „Það yrði mikið áfall fyrir breska þjálfara ef hann yrði ráð- inn,“ sagði Hughes. „Það hefur verið mikil umræða um nauðsyn þess að næsti þjálfari komi héðan og persónulega hafði ég gert mér vonir um að sú yrði raunin,“ sagði Hughes jafnframt en bætti því við að ferilskrá Scolari væri eins og best gerist. „Hann hefur náð frábærum árangri með landslið í gegnum tíð- ina og rökin gegn því að breskur þjálfari yrði ráðinn voru að fá hæfasta þjálfarann í starfið. En hvort Scolari eigi eftir að ná því sama út úr leikmönnum sem koma frá öðru landi og menningu, með öðruvísi leikstíl og hugarfar en hann hefur áður þekkt, verður að koma í ljós.“ - vig Mark Hughes: Áfall fyrir breska þjálfara MARK HUGHES Yrði ekki ánægður með ráðningu Scolari. NORDICPHOTOS/GETTY IMAGES FÓTBOLTI Sóknarmaðurinn Michael Owen hefur æft af fullum krafti með liði sínu Newcastle og hefur fulla trú á að hann geti tekið þátt í leik liðsins gegn Birmingham á laugardag. Owen hefur verið frá vegna meiðsla í tæpa fimm mán- uði en hefur nú náð fullum bata og vinnur í því af krafti að koma sér í toppform fyrir HM í sumar. „Æfingarnar hafa gengið mun betur en ég átti von á, ég finn ekki fyrir neinum sársauka og svo virð- ist sem beinið sé að fullu gróið,“ segir Owen, sem vonast til að spila á morgun. „Ég hef rætt við þjálf- arann og það getur verið að ég fái að spreyta mig síðustu tuttugu mínúturnar.“ - vig Michael Owen: Með Newcastle á morgun? MICHAEL OWEN Búinn að ná sér í fætinum. NORDICPHOTOS/GETTY IMAGES FÓTBOLTI Luiz Felipe Scolari mun að öllum líkindum taka að sér að þjálfa enska landsliðið í knatt- spyrnu eftir heimsmeistaramótið í Þýskalandi í sumar. Scolari stýr- ir nú landsliði Portúgal en hann er 57 ára gamall og verður samnings- laus í sumar. Brian Barwick, framkvæmda- stjóri enska knattspyrnusam- bandsins, var í Lissabon til að ræða við Scolari, sem hefur gert heiðursmannasamkomulag um að skuldbinda sig ekki til neins starfs fyrir mótið í sumar til að einbeita sér að starfi sínu hjá Portúgal. „Við vorum að ræða við Felipe, sem var hluti af því að ráða nýjan þjálfara,“ staðfesti Barwick í gær en viðræðurnar við Scolari hófust í raun í febrúar. Scolari stýrði landsliði Brasilíu til heimsmeistaratitils árið 2002 en FA mun funda hinn 4. maí og vonast sambandið til þess að geta tilkynnt um nýjan landsliðsþjálf- ara daginn eftir. Talið er að árs- laun Scolari verði um þrjár millj- ónir punda, sem yrði mikil hækkun frá launum hans í dag. Scolari hefur stýrt liðunum sem sendu England út úr síðustu tveimur stórmótum; Brasilía lagði Englandi að velli á HM 2002 og varð síðan heimsmeistari. Þá slógu heimamenn í Portúgal Englend- ingar út á Evrópumótinu árið 2004 en í bæði skiptin var um átta liða úrslit að ræða. Ráðning Scolaris, ef af verður, kemur sem blaut tuska í andlit þeirra Englendinga sem vildu sjá heimamann í stöðunni en Steve McClaren og Sam Allardyce voru hvað mest orðaðir við landsliðs- þjálfarastöðuna sem Sven Göran- Eriksson mun stíga úr eftir HM í sumar. - hþh Leit enska knattspyrnusambandsins að arftaka Sven-Göran Eriksson fer að ljúka: Scolari boðið að taka við SCOLARI Þarf líklega ekki að hugsa sig tvisvar um áður en hann svarar enska knattspyrnu- sambandinu enda er starfið eitt það eftirsóttasta í heimi. NORDICPHOTOS/AFP GOLF Ólöf María Jónsdóttir og Birgir Leifur Hafþórsson standa í ströngu þessa dagana en bæði luku fyrsta keppnisdegi á Áskor- endamótaröðum í golfi í gær. Ólöf María er að keppa á opna Tenerife- mótinu á Spáni en Birgir Leifur keppir á sterku móti á Ítalíu. Birgir Leifur lauk keppni í gær einu höggi yfir pari en hann lék á 72 höggum. Hann fékk þrjá skolla (+1) og tvo fugla (-1) á hringnum. Birgir er í 82.-104. sæti af alls 168 kylfingum en bestu skor dagsins komu frá tveimur Englendingum sem deila efsta sætinu á sjö högg- um undir pari. Þetta er fyrsta mótið sem Birgir Leifur tekur þátt í á þessu keppnistímabili en hann endaði í 85. sæti á styrkleikalista Áskorendamótaraðarinnar á síð- asta ári, sem er besti árangur hans á mótaröðinni til þessa. Ólöf María náði sér engan veg- inn á strik á fyrsta keppnisdegi þrátt fyrir að sýna lipra takta inni á milli. Ólöf María lauk keppni á sjö höggum yfir pari en efstu konur á mótinu voru tveimur höggum undir pari. - hþh Birgir Leifur og Ólöf María: Bæði nokkuð frá sínu besta ÓLÖF MARÍA Er á Spáni þar sem hún keppir á opna Tenerife-mótinu. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.