Fréttablaðið - 08.05.2006, Side 71

Fréttablaðið - 08.05.2006, Side 71
Tölvuleikurinn Reservoir Dogs verður gefin út í haust á vegum Eidos Interactive fyrir Xbox, Play- station 2 og PC. Árið 1992 gaf þá óþekktur leik- stjóri, Quentin Tarantino, út kvik- mynd um fimm menn sem ákváðu að framkvæma hinn fullkomna glæp. Ránið klikkaði, fólk var drep- ið og menn grunaðir um svik. Leik- urinn er byggður á þessari klass- ísku kvikmynd Quentins Tarantino og inniheldur sama söguþráð og tímaröð atburða. Hér er á ferðinni þriðju persónu skotleikur sem fylgir því eftir þegar ránið er skipulagt og fram- kvæmt og fyllir leikurinn í margar eyður sem voru í myndinni. Hvað varð um Mr. Blue og Mr. Brown? Hvar faldi Mr. Pink demantana? Hvað gerðist í raun við ránið? „Við erum mjög stolt af því að vinna að leik sem er byggður á einni frumlegustu mynd okkar tíma,“ segir Helen Lawson, mark- aðsstjóri Eidos. Leikurinn mun innihalda alla tónlistina sem var í myndinni. Í henni kom fram töluvert af sjóð- heitum lögum frá áttunda áratugn- um, þar á meðal Little Green Bag og hið ógleymanlega Stuck In The Middle With You. Leikmenn geta spilað sem allar aðalpersónur myndarinnar í leiknum. Reservoir Dogs breytt í tölvuleik RESERVOIR DOGS Tölvuleikur byggður á kvikmyndinni ódauðlegu er væntanlegur í haust. Nú fer að styttast í að Spice Girl- pæjan Geri Halliwell verði léttari. Geri hefur ekki gefið upp hver barnsfaðirinn sé en menn giska á að það sé handritshöfundurinn Sacha Gervasi sem er 39 ára gam- all. Sjálf er Geri 33 ára og hefur hún undanfarin ár verið búsett í Los Angeles. Hún er sögð yfir sig ánægð með óléttuna en þetta er hennar fyrsta barn. Samkvæmt amerískum venj- um verður að sjálfsögðu haldin svokölluð „baby shower“ fyrir Geri en það er góðvinur hennar, George Michael, sem sér um að halda veisluna. Vinskapur þeirra hefur sveiflast mikið í gegnum árin en þau eru sem sagt vinir núna og hefur George heimtað að fá að sjá um herlegheitin enda mikill smekk- maður. Má búast við því að veislan verði full af stórum blöðrum, frísk- legum blómum, súkkulaði, kökum og frægu fólki en gömlu hljóm- sveitarvinkonur rauða kryddsins eru allar boðnar í veisluna. Þess má geta að Victoria Beck- ham og Geri eru aftur orðnar vin- konur sem er afar gott fyrir Geri sem getur þá leitað til Victoriu vanti hana ráð varðandi barnaupp- eldið. Victoria ætti að geta ausið úr viskubrunni sínum því Beckham- hjónin eiga þrjá syni. Ólétt og alsæl Geri VERÐANDI MAMMA Það verður fljótlega eitthvað annað en hundur sem Geri ber í fanginu en hún væntir nú síns fyrsta barns. Keith Richards, gítarleikari The Rolling Stones, þarf ekki að gang- ast undir heilaskurðaðgerð eftir að hafa dottið úr pálmatré á Fiji- eyjum um síðustu helgi. Upphaflega var talað um að Richards hefði fengið vægan heilahristing en síðan bárust fregnir um að hann þyrfti að fara í skurðaðgerð. Talsmaður Richards segir kappann þvert á móti hafa það gott þessa dagana og ekkert alvarlegt ami að honum. Talið er að hinn 62 ára Richards hafi verið uppi í tré að ná í kókos- hnetur ásamt félaga sínum úr Stones, Ronnie Wood, þegar hann féll til jarðar. The Rolling Stones eiga að hefja tónleikaferð sína um Evrópu þann 27. maí í Barcelóna. Sveitin er að fylgja eftir nýjustu plötu sinni A Bigger Bang, sem fékk fínar viðtökur á síðasta ári. Richards ekki í aðgerð KEITH RICHARDS Gítarleikarinn síungi er að óðum jafna sig eftir að hafa dottið úr pálmatré. NORDICPHOTOS/GETTYIMAGES [KVIKMYNDIR] UMFJÖLLUN Í þriðju myndinni um njósnar- ann Ethan Hunt (Cruise) og félaga hans hefur aðalhetjan dregið saman seglin hjá leyni- þjónustunni SÓV – Samtökum ómögulegra verkefna – og sér eingöngu um þjálfun nýliða fyr- irtækisins. Hann er alsæll með heitkonu sinni (Monaghan) og lifir hinu ljúfa borgaralega lífi þegar fortíðin leitar hann uppi. Útsendara, sem er Hunt sérlega kær, er rænt af þorparanum Owen Davian (Hoffman), sem hefur auk þess í hyggju að festa kaup á mikilli vítisvél. Hunt rennur blóðið til skyldunnar og sameinast gömlum félögum í leiðangri til að frelsa útsendar- ann. Föruneytið hefur ekki erindi sem erfiði og í kjölfarið ákveður Hunt að hafa hendur í hári Davi- ans sem við fyrstu sýn virðist ómögulegt verkefni, ekki síst þar sem skúrkurinn á hauk í horni innan SÓV. J.J. Abrams, heilinn á bak við sjónvarpsþættina Lost og Alias, staðfestir í Mission: Impossible 3 að hann kann að búa til gott aksjón og gott ef þetta er ekki besta myndin í bálknum til þessa. Allar myndirnar bera skýr ein- kenni höfunda sinna; Brian De Palma er meistari myndavélar- innar eins og sást vel í fyrstu myndinni en ofhlaðið framhald Johns Woo var allt að því óbæri- lega leiðinlegt. Abrams fangar andann úr mynd De Palma en leggur áhersluna fyrst og fremst á keyrslu. Sem er vel. Myndin heldur dampi allan tímann með ógrynni af vel stílfærðum atrið- um á borð við innbrot í Vatikanið og fallhlífarstökk af háhýsum í Shanghaí. Leikhópurinn er vel valinn. Tom Cruise gerir það sem hann kann best; hleypur sperrtur undan sprengingum og hangir á hverjum bláþræðinum á eftir öðrum. Þess á milli tekst hann á við hina klassísku valkreppu ofurhetjunnar að gera upp á milli starfs og einkalífs. Leik- gleðin skín af Philip Seymour Hoffman sem skyggir á Cruise í hvert skipti sem þeir sjást saman. Aðrir fá svo sem úr litlu að moða, Laurence Fishburne er nánast eingöngu til sýnis. Magg- ie Q er þó eftirminnileg sem einn af liðsfélögum Hunts og þótt rullan sé lítil lekur töffið af henni. Á heildina litið er óþarfi að velta sér upp úr agnúunum. Mission: Impossible 3 er pott- þéttur sumarsmellur. Bergsteinn Sigurðsson Kröftug keyrsla MISSION: IMPOSSIBLE 3 LEIKSTJÓRI: J. J. ABRAMS Aðalhlutverk: Tom Cruise, Philip Seymour Hoffman, Michelle Monaghan, Ving Rhames, Laurence Fishburne. Niðurstaða: Mission Impossible 3 er pottþétt- ur sumarsmellur. Alls ekki hnökralaus en mikil keyrsla og vel stílfærðir stælar sjá til þess að hún heldur dampi allan tímann.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.