Fréttablaðið - 08.05.2006, Page 80
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
2
16
18
Sævarhöfða 2 Sími 525 8000 www.ih.is Opið: Mánudaga – föstudaga kl. 9.00 - 18.00 og laugardaga kl. 12.00 - 16.00
Nissan NOTE hefur alla kosti fjölskyldubíls og meira til:
Öryggi, lipurð, kraft og þægindi. Það sem gerir NOTE að
nýrri tegund fjölskyldubíls er sérhannað rými fyrir börnin,
öðruvísi útlit og mikill persónuleiki. NOTE er bíll fyrir alla
fjölskylduna, líka krakka með karakter!
Geymsluhólf - kælir fyrir drykki - öryggispúðar - dótahólf - borð - rúmgott farangursrými
Vél. Hö. Gírskipting Verð
NOTE Visia 1,4 88 Beinskiptur 1.740.000 kr.
NOTE Visia 1,6 110 Sjálfskiptur 1.950.000 kr.
NOTE Tekna 1,6 110 Sjálfskiptur 2.090.000 kr.
NÝR
FJÖLSKYLDUBÍLL
FRÁ NISSAN
Krakkabíll með karakter!
Bíóboð! Allir sem koma og reynsluaka nýjum NOTE fá
miða á IceAge eða Hoodwinked meðan birgðir endast!
NISSAN NOTE
Selfossi
482 3100
Umboðsmenn
um land allt
Njarðvík
421 8808
Akranesi
431 1376
Höfn í Hornafirði
478 1990
Reyðarfirði
474 1453
Akureyri
461 2960
HORF‹U EINSOG fiÉR S†NIST!
Yfir 300 sjónvarpsflættir og kvikmyndir
í stafrænum gæ›um á vísir.is
fiÚ ERT SJÓNVARPSSTJÓRI Á
����������
�������������������
Eina manneskjan á plánetunni okkar sem ég er viss um að
hefur heyrt andardrátt Guðs hét
Wolfgang Amadeus Mozart og
fyrsti maðurinn sem gerði skyn-
samlega tilraun til að greiða úr
sálarflækjum okkar hinna sem
ekki höfum jafn næma heyrn hét
Sigmund Freud. Báðir eiga merkis-
afmæli um þessar mundir.
Mozart tvöhundruð og fimmtíu
ára, fæddur 27. janúar 1756 í
Salzborg, Austurríki, Freud
hundrað og fimmtíu ára, fæddur
6. maí 1856 á Mæri en flutti
ungur til Vínarborgar og bjó þar
uns hann hraktist þaðan á flótta
undan nazistum.
ÞRÁTT FYRIR snilligáfuna var
líf þessara manna enginn dans á
rósum. Mozart dó kornungur í
fátækt. Freud dó fjarri heima-
landi sínu, gamall maður á flótta
undan nazistum. Báðir þessir
menn tendruðu ljós sem aldrei
munu slökkna í vitundarlífi mann-
kyns.
EINN SNILLINGUR enn hét
Meyer Amschel og fæddist í
Judengasse í Frankfurt tólf árum
á undan Mozart. Meyer Amschel
átti fimm syni og sendi þá víðs-
vegar um Evrópu til að stofna
peningaveldi sem átti sér ekki
sinn líka í veröldinni. Amschel
yngri tók við af föður sínum í
Frankfurt, Salomon stofnaði
banka í Vínarborg, Nathan í Lund-
únum, Kalman í Napólí og loks
Jakob í París. Rauður skjöldur
utan á húsinu sem Amschel bjó í
þarna í gettóinu í Frankfurt varð
kveikjan að virðulegu eftirnafni
handa honum og sonum hans,
Rothschild, rauði skjöldur.
Á TÍMUM trylltrar efnishyggju
og peningadýrkunar er ekki úr
vegi að staldra við og jafnvel
gera sér dagamun í virðingar-
skyni við þá Mozart og Freud
sem arfleiddu mannkynið að and-
legum auðæfum. Peningahrúgur
Rothschildanna eru komnar á
tvist og bast og helsti minnis-
varði þeirra er þinghúsbygging í
Ísrael sem hýsir Knesset.
ENN EINN snillingur, Heinrich
Heine, sagði: Mammon er Guð og
Rothschild er spámaður hans.
Fyrir mína parta hef ég meiri trú
á spámönnum á borð við Mozart
og Freud, og skynsömu fólki sem
fjárfestir í auðæfum sem mölur
og ryð fá ekki grandað. Með allri
virðingu fyrir Kauphöll Íslands.
Sigmund, Wolf-
gang og Meyer