Fréttablaðið - 09.05.2006, Qupperneq 56
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000
Háir vextir og mikið öryggi!
AR
GU
S
/ 0
6-
02
88
Innlánsreikningar SPRON eru hugsaðir fyrir einstaklinga og
fyrirtæki sem vilja háa vexti og mikið öryggi.
Kynntu þér málið á spron.is
Hávaxtareikningar
KIA umboðið á Ís landi er í e igu Heklu hf . Laugavegi 172 • Reykjavík • s ími 590 5000
KIA Picanto
393 kr.
KIA Picanto 1,0 LX 5 gíra beinskiptur 5 dyra
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
á dag*
Ótrúlegt en satt
KIA Picanto er lipur, fallegur og nútímalegur
og sparneytinn smábíll með skynsamlegri
rýmisnýtingu og veglegum aukabúnaði. Það sakar
svo ekki að verðið á sér ekki hliðstæðu. KIA
Picanto fimm dyra kostar aðeins 1.195.000 kr.
Picanto er einnig fáanlegur sjálfskiptur, einn fárra
smábíla. Fæst einnig með aflmikilli 75 hestafla
og sérlega sparneytinni dísilvél.
Taktu þátt í HM leik KIA og þú átt
möguleika á frábærri ferð fyrir tvo á
úrslitaleik HM í sumar. Allir sem kaupa
KIA bíl hjá KIA umboðinu til 15. júní eiga
möguleika á þessari frábæru ferð.
*11.807 kr. á mánuði m.v. 30% útborgun og
bílasamning hjá SP fjármögnun í 84 mánuði.
A
u
ka
b
ú
n
að
u
r á
m
yn
d
: á
lfe
lg
u
r
����������
�����������������������������
Þegar skoðaðar eru fréttamynd-ir af mannlífinu í íslömskum
löndum eru skilin milli kynjanna
skýr. Karlarnir baða sig á almanna-
færi í sumarhitum, hrópa vígorð
og brenna fána. Almúgakonur
sjást mun sjaldnar taka þátt í mót-
mælum heldur tölta friðsamar um
markaði. Þær eru klæddar frá
toppi til táar, horfa út um rifu og
stundum eru jafnvel augun hulin
neti.
ÁÞJÁN þessara kvenna er fyrir
okkur hér í frelsinu eitt skýrasta
dæmið um þau myrku öfl sem öfg-
unum stýra. Að fötin séu fangelsi
þeirra þá sjaldan sem þeim auðn-
ast að líta dagsins ljós og eru ekki
lokaðar inni á heimilunum. Klæðn-
aðinn lítum við á sem sönnun þess
að múslímakonur séu kúgaðar af
karlmönnum, þeir stjórni samfé-
laginu en þær séu auðmjúkar á
meðan. Skiljum ekki hvernig þær
geta látið bjóða sér þetta. Að þær
skuli ekki gera uppreisn og klæða
sig eins og við.
HÉR í siðmenningunni er konan
fullkomlega frjáls að því að klæð-
ast hverju sem henni þóknast og
hún getur átölulaust berað allt sitt
hold. Auðvitað þætti fáránlegt ef
hún kysi að fara hina leiðina og
sveipa sig serk svo rifaði í augun.
Að ég tali nú ekki um ef hún fengi
sér net fyrir rifuna. Sennilega
myndi samfélagið bregðast harka-
lega við, í besta falli yrði hún að
athlægi. Fjölskyldan yrði miður
sín, börnin sennilega ekki kát með
útganginn á mömmu sinni. Ekki
gaman að láta gömlu konuna mæta
í tjaldinu með andlitsblæjuna á
bekkjarkvöld í skólanum.
FRJÁLSLYNDI okkar birtist í
umburðarlyndi gagnvart klámi og
er þannig einstefna í hina áttina.
Ungar stúlkur eiga helst að vera
orðnar kynþokkafullar svona tólf
ára. Til undirbúnings er víða til
sölu fatnaður á litlar telpur sem
myndi sóma sér á hvaða súlumey
sem er. Bolir með tvíræðum áletr-
unum fyrir alveg niður í tveggja
ára þykja til dæmis dálítið smart.
Á seinni stigum grunnskóla geta
stúlkur átt von á tilboði um aðgang
að góðu partíi ef þær láta blíðu
sína í staðinn og komið hefur í ljós
að einhverjum finnast það sann-
gjörn býtti.
EF serkurinn er sönnun kúgunar
hjá múslimum hlýtur klámið að
vera vitnisburður um frelsið hjá
okkur. Þegar ekkert þykir ósiðlegt
lengur hljótum við að vera orðin
rosalega frjáls.
Klám