Fréttablaðið - 09.05.2006, Síða 21
Smáauglýsingasími
550 5000
Auglýsingasími Allt
550 5880
Þú getur pantað
smáauglýsingar á visir.is
FASTEIGNIR HEIMILI HEILSA HÚS BÖRN NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR TÍSKA ATVINNA BRÚÐKAUP TILBOÐ O.FL.
Nú þegar bensínverðið hefur aldrei
verið hærra hefur sala á hjólum aukist
mjög. Margir eru byrjaðir að hjóla í
vinnuna og heim aftur en Þór Tómasson
efnaverkfræðingur hefur gert slíkt
síðastliðin tvö sumur.
Fyrir tveimur árum ákvað Þór að gefa sjálf-
um sér hjól í afmælisgjöf og ákvað hann að
nota gjöfina sína til þess að koma sér í og úr
vinnu. Hann hjólar því samtals rúmlega
sextán kílómetra vegalengd í hvert skipti
sem hann mætir til vinnu og kemur sér
heim aftur. Þór segist vanalega reyna að
vera minnst hálftíma á leiðinni í vinnuna en
sé mun fljótari heim. „Ég reyni að fara
rólega í vinnuna, til þess að verða ekki
útblásinn, og síðan er hægt að hjóla af krafti
heim.“
Fyrir utan að hjóla í vinnuna segist Þór
ekki hjóla neitt sérstaklega mikið. „Ég hef
ekki hjólað neitt sérstaklega mikið fyrir
utan að ég tók þátt í hjólreiðakeppni í fyrra,
þar sem hjólað var frá Hafnarfirði til Bláa
lónsins. Ég var nú reyndar ekki að keppa
þar upp á tíma heldur einungis til skemmt-
unar,“ segir Þór og hlær. Aðspurður segist
Þór ekki stefna á neinn frekari frama í
kapphjólreiðum.
Þó að Þór stundi þessa miklu líkamsrækt
á sumrin segir hann að kílóin fljúgi ekki af
sér. „Þau myndu gera það ef ég væri ekki að
borða meira í staðinn. Ég hef því ekki lést
að neinu ráði.“ Í staðinn segist Þór hafa
fengið aukið þol auk þess sem hann komi
yfirleitt betur upplagður til vinnu. „Ég er að
minnsta kosti miklu betur vakandi, það er
engin spurning. Svo hefur maður líka tíma
til þess að velta málunum fyrir sér á leið-
inni og er því hressari andlega þegar maður
mætir á morgnana.“
Þór stefnir ótrauður á að halda þessari
hefð sinni áfram og er alveg sama hvort
bensínverðið sé hátt eða lágt. „Þetta er það
sem menn eiga að gera og meirihluti fólks
gæti léttilega gert þetta. Nú er einmitt
hjólavika og fólk ætti að nota tækifærið og
hjóla af krafti. Síðan er alveg hægt að halda
áfram þó að vikan sé búin,“ segir Þór glað-
beittur að lokum. steinthor@frettabladid.is
Hjólar í vinnuna
Þór Tómasson, efnaverkfræðingur hjá Umhverfisstofnun, hóf nýlega sitt þriðja sumar þar sem hann hjólar frá heimili sínu á Seltjarnarnesi í vinnu á Suðurlandsbraut og heim aftur að vinnudegi
loknum. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Ráðstefna um heilbrigðar
samgöngur, Látum hjólin snúast,
verður haldin 11. maí. Lýðheilsu-
stöð, Umhverfissvið Reykjavíkur,
Íþrótta- og Ólympíusamband
Íslands og Landssamtök
hjólreiðamanna standa fyrir
ráðstefnunni, sem haldin verður
á Grand Hótel. Skráning fer fram
hjá Lýðheilsustöð.
Skóframleiðandinn Patric Cox
hefur sett fyrirtæki sitt á sölu.
Fyrirtækið er metið á tíu milljónir
punda. Patric Cox er þekktur fyrir
framsæknar auglýsingar á vöru
sinni og er nýbúinn að halda
upp á tuttugu ára starfsafmæli
sitt. Cox hefur enn ekki tjáð sig
um fyrirhugaða sölu.
Matareitranir verða sífellt
algengari í Danmörku. Matvæla-
sérfræðingar segja ástæðuna
vera aukinn innflutning á
kjötvörum þar sem hærra
hlutfall af innfluttu kjöti er sýkt
af salmonellu og kamfílobakter
en það danska. Samkvæmt frétt
Politiken er tíu sinnum algengara
að salmonella finnist í útlensku
kjúklingakjöti en innlendu.
ALLT HITT
[HEILSA TÍSKA]
Heimild: Almanak Háskólans
GÓÐAN DAG!
Í dag er þriðjudagurinn
9. maí, 129. dagur ársins
2006.
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík 4.33 13.24 22.18
Akureyri 4.02 13.09 22.18
SUMARLEGAR BUMBU-
LÍNUR Í SUNDI
Óléttar konur geta tollað í tískunni á
sundlaugarbakkanum.
TÍSKA 7
Markmið Forvarnahússins er að vera í forystu á sviði forvarna
sem snúa að fjölskyldum og börnum, umferðinni og fyrirtækjum.
Herdís hefur um árabil starfað að slysavörnum barna og nú síðast
sem verkefnisstjóri hjá Árvekni innan Lýðheilsustöðvar. Sjóvá
hrósar happi yfir að fá hana til liðs við Forvarnahúsið að sögn
Þórs Sigfússonar, forstjóra Sjóvár. „Starf Herdísar gegnum tíðina
hefur skilað gríðarlegum árangri og Forvarnahúsið vill nýta hennar
reynslu og þekkingu,“ segir hann og bætir því við að Forvarnahúsið
eigi að verða breiður vettvangur stofnana og fyrirtækja og nú þegar
hafi nokkur fyrirtæki bæst í hóp bakhjarla þess.
Í forystu á sviði forvarna
HERDÍS STORGAARD HEFUR VERIÐ RÁÐIN YFIRMAÐUR
FORVARNAHÚSSINS SEM SJÓVÁ ER AÐ SETJA Á LAGGIRNAR.
Herdís Storgaard hefur bent á margt sem til bóta hefur horft í
öryggismálum barna.
KENNIR BÖRN-
UM AÐ SYNDA
Ólafur Þór Gunnlaugsson
hefur rekið sundskólann
Svamla í rúm tuttugu ár.
HEILSA 4