Fréttablaðið - 09.05.2006, Side 40
9. maí 2006 ÞRIÐJUDAGUR24
timamot@frettabladid.is
MERKISATBURÐIR
1671 Hinn írski Thomas Blood,
eða Blood kapteinn eins
og hann var kallaður, reynir
að stela krúnudjásnunum
úr Tower of London. Hann
er gómaður en náðaður af
konungi vegna bíræfninnar.
1855 Prentfrelsi er lögleitt á
Íslandi að tilskipun kon-
ungs.
1926 Richard Byrd and Floyd
Bennett fljúga fyrstir manna
yfir norðurpólinn.
1955 Vestur-Þýskaland fær inn-
göngu í NATO.
1974 Rithöfundar sameinast í
einu stéttarfélagi, Rithöf-
undasambandi Íslands.
1974 Sverrir Hermannsson talar í
rúmar fimm klukkustundir
á Alþingi til að mótmæla
fyrirhuguðu þingrofi.
2001 Frímerki með súkkulaðiilmi
eru gefin út í Sviss.
Í tilefni af fjörutíu ára afmæli Raun-
vísindastofnunar ákvað stjórnin að
gefa eina milljón króna til tæknivæð-
ingar stofnunar sem hlotið hefur nafn-
ið „Tilraunahús“ og byggir á erlendri
fyrirmynd að vísindasafni fyrir
almenning. Undirbúningsfélag á
vegum Háskóla Íslands, Kennara-
háskólans og Orkuveitunnar vinnur nú
af kappi að því að ýta framkvæmdum
hússins úr vör. „Hugmyndin að Til-
raunahúsi kviknaði fyrir um tveimur
árum síðan en nú fyrst dregur til tíð-
inda“, segir Ari Ólafsson, prófessor í
eðlisfræði, sem fer fyrir nefndinni.
„Hér er um ráðstafanir að ræða til að
fjölga nemendum í raunvísinda- og
tækninámi en straumar af þessu tagi
ganga nú ljósum logum um alla Evr-
ópu,“ heldur Ari áfram. „Evrópusam-
bandið er enda uggandi yfir að ekki
verði unnt að manna tæknisamfélagið
eftir tuttugu ár.“
Hugmyndin að baki eflingar raun-
og tæknivísinda byggir á þremur stoð-
um. „Sú fyrsta er safnið sjálft, sem
miðar að leik vísindalegra hugtaka og
fyrirbæra,“ segir Ari. „Með öðrum
orðum er hugmyndin ekki sú að fólk
horfi aðeins á hluti úr heimi vís-
indanna, heldur fái tækifæri til að fikta
með þá og læri þannig og skilji betur í
hverju tilgangur þeirra er fólgin.
Þannig verður safnið vettvangur fyrir
unga og aldna til að svala vísindafor-
vitni sinni. Eins munu skýringar fylgja
hverju fyrirbæri og hlut til nánari
útlistunar.“ Ari segir aðra stoð felast í
aðgangi grunnskólakennara í náttúru-
vísindum að ráðgjöf og kennsluefni
sem safnið mun veita. „Hér er á ferð-
inni stuðningskerfi kennara í starfi.
Kennarar standa einir og allt of ein-
angraðir í skólunum en safninu er
ætlað að bæta úr þeirri meinsemd,“
bætir Ari við. Þriðja stoðin er endur-
menntunarvettvangur í raunvísindum
fyrir alla kennara landsins. „Þetta
kemur til af því að Aðalnámskráin er
mikið breytt og mikið bæst á kröfur
kennara. Um ræðir endurmenntunar-
námskeið sem skipta mánuðum og
misserum en ekki nokkrum dögum eða
vikum eins og tíðkast í dag. Þetta eru
þær þrjár stoðir sem mynda burðarlið-
inn í byggingu Tilraunahússins,“ segir
Ari að endingu. Viðar Guðmundsson,
prófessor í eðlisfræði og formaður
stjórnar Raunvísindastofnunar, bætir
við „að vísindalæsi landsmanna, sér-
staklega yngri kynslóðarinnar sem enn
á eftir að velja sér starfsvettvang,
hlýtur að teljast mikilvægt. Það er jú
sú kynslóð sem á eftir að efla raunvís-
indi og tækniþekkingu í landinu og
byggja upp hátækni- og þekkingariðn-
að ef byggð á að haldast í landinu.“
Hátíðardagskrá Raunvísindastofn-
unar Háskóla Íslands fer fram hinn
10. maí í stofu 132 í Öskju og hefst
klukkan 15:00. Rektor skólans flytur
ávarp og Áslaug Geirsdóttir prófess-
or og Oddur Ingólfsson dósent flytja
framsöguerindi á sviði efnafræði og
jarðvísinda. Páll Theodórsson vísinda-
maður kynnir brot úr sögu Raunvís-
indastofnunar en framsaga hans nefn-
ist „Frá basli til bjargálna.“
Boðið verður upp á léttar veitingar.
RAUNVÍSINDASTOFNUN HÁSKÓLA ÍSLANDS: 40 ÁRA Á MORGUN, 10. MAÍ
Vísindasafn fær veglegan styrk
VIÐAR GUÐMUNDSSON PRÓFESSOR Skipuleggur hátíðardagskrá Raunvísindastofnunar á morgun.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Þuríður Bára Sigurðardótt-
ir, Lækjarsmára 58, Kópa-
vogi, verður jarðsungin frá
Digraneskirkju mánudaginn
15. maí klukkan 13.00.
Dagsetning jarðarfarar-
innar misritaðist í Frétta-
blaðinu í gær. Er velvirðing-
ar beðist á þessum leiðu
mistökum.
Leiðrétting
Sonja Werner Guðmundsdótt-
ir, Fossheiði 62, Selfossi, lést á
Heilbrigðisstofnun Suðurlands
þriðjudaginn 2. maí.
Jón Bergþór Arngrímsson,
vélstjóri, Skarðshlíð 18, Akureyri,
lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á
Akureyri föstudaginn 5. maí.
Guðmundur Ágúst Kristjáns-
son, andaðist laugardaginn 6.
maí á líknardeild Landspítalans í
Kópavogi.
Helga Sigríður Hannesdóttir,
síðast til heimilis í Jöklaseli 23
í Reykjavík, lést á Landspítala
- háskólasjúkrahúsi, Fossvogi,
aðfaranótt 6. maí.
Ólafur G. Björgúlfsson hdl., fyrr-
verandi skrifstofustjóri Trygginga-
stofnunar ríkisins, er látinn.
JARÐARFARIR
14.00 Halldóra Guðmunda Árna-
dóttir frá Sóleyjartungu,
Akranesi, verður jarðsungin
frá Akraneskirkju.
14.00 Þuríður Hólmfríður
Sigurjónsdóttir, síðast til
heimilis á dvalarheimilinu
Hvammi, Húsavík, verður
jarðsungin frá Húsavíkur-
kirkju.
ANDLÁT
Á þessum degi árið 1978 fannst sund-
urskotið lík Aldos Moro, fyrrverandi
forsætisráðherra Ítalíu, í skotti á bíl í
miðborg Rómar.
Honum hafði verið rænt af hryðju-
verkasamtökum Rauðu herdeildunum
þann 16. mars eftir blóðugan skotbar-
daga fyrir utan heimili Moros.
Stjórnvöld á Ítalíu neituðu að
semja við hinn öfgasinnaða vinstri
hóp þar sem þau töldu að það myndi
grafa undan trúverðugleika og stöð-
ugleika í landinu. Lögreglan og herinn
handtóku hundruð grunaðra hryðjuverkamanna og
fínkembdu landið í leit sinni að „fangelsi fólksins“
þar sem talið var að Moro væri í haldi. Stjórnvöld
reyndu að fá hryðjuverkamennina til leynilegra við-
ræðna en um miðjan apríl neituðu Rauðu herdeild-
irnar að halda viðræðunum áfram og
tilkynntu að Moro hefði verið fundinn
sekur af „dómstóli fólksins“ og
dæmdur til dauða. Í lok apríl reyndu
ræningjarnir að semja við stjórnvöld
um að sleppa þrettán félögum í
Rauðu herdeildunum í skiptum fyrir
Moro. Hinn 7. maí sendi Aldo Moro
kveðjubréf til fjölskyldu sinnar. Hann
var tekinn af lífi hinn 9. maí. Lík hans
fannst skammt frá höfuðstöðvum
Kristilegra demókrata og höfuðstöðv-
um Kommúnistaflokksins.
Moro hafði gegnt forsetisráðherraembætti í fimm
kjörtímabil og var talinn sigurstranglegur í forseta-
kosningum sem halda átti í desember þetta ár.
Hann var af mörgum talinn hæfasti stjórnmála-
maður eftirstríðsáranna.
ÞETTA GERÐIST > 9. MAÍ 1978
Aldo Moro finnst látinnTENZING NORGAY (1914-1986) LÉST ÞENNAN DAG.
„Ef það er synd að vera
annar maðurinn á
tindinn á Everest, þá er
það synd sem ég verð
að lifa með.“
Tenzing Norgay var sjerpi og
aðstoðarmaður Edmunds
Hillary. Þeir félagar voru þeir
fyrstu til að klífa Mount Everest.
Elskuleg systir okkar,
Dagbjört Davíðsdóttir
frá Borgarlandi,
andaðist á Grund við Hringbraut laugardaginn 6. maí.
Halldóra Davíðsdóttir
Kristín Davíðsdóttir
Þökkum auðsýnda samúð og virðingu
vegna andláts frænda okkar og vinar,
Guðlaugs Guðmundssonar
Hringbraut 50, áður Baldursgötu 17,
er lést 22. apríl.
Erla Strand Einar Strand
Ása Sólveig Þorsteinsdóttir
Soffía H. Bjarnleifsdóttir Snorri S. Konráðsson
Bjarnleifur Á. Bjarnleifsson Lilja Gunnarsdóttir
Ólafía Kr. Bjarnleifsdóttir Magnús L. Sigurðsson
og fjölskyldur.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir og
amma,
Sigríður Ólafsdóttir
Mánatúni 4, Reykjavík,
verður jarðsungin frá Fossvogskirkju fimmtudaginn
11. maí kl. 13.
María Friðjónsdóttir Ástmundur Kristinn Guðnason
Ólafur Héðinn Friðjónsson Auður Gunnarsdóttir
Kristín Lára Friðjónsdóttir Erlendur Helgason
og barnabörn.
Elskuleg kona mín, móðir okkar og
tengdamóðir,
Kristín Pálsdóttir
Ægisíðu 44, Reykjavík,
sem andaðist á Landspítalanum þriðjudaginn 2. maí,
verður jarðsungin frá Neskirkju miðvikudaginn 10. maí
kl. 15.00.
Einar Baldvin Pálsson
Sigríður Einarsdóttir Gunnar Sigurðsson
Páll Einarsson Ingibjörg Briem
Baldvin Einarsson Sigrún Steingrímsdóttir
Árni Einarsson Unnur Þóra Jökulsdóttir
Ástkær móðir mín, tengdamóðir og amma,
Þorbjörg Magnúsdóttir
svæfingarlæknir,
sem lést á hjúkrunarheimilinu Droplaugarstöðum,
verður jarðsungin frá Grafarvogskirkju á morgun,
miðvikudaginn 10. maí, kl. 11.00.
Sigríður Hrafnkelsdóttir Richard Korn
Ísak Ríkharðsson
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir og
amma,
Helga Sigríður Hannesdóttir
síðast til heimilis að Jöklaseli 23 í Reykjavík,
lést á Landspítala Háskólasjúkrahúsi, Fossvogi,
aðfaranótt 6. maí sl. Jarðsett verður frá Sauðárkróks-
kirkju laugardaginn 13. maí kl. 14.
Sigurður Hauksson Björk Helgadóttir
Þorsteinn Hauksson Birgitta Bjargmundsdóttir
Hrafnhildur Hauksdóttir Bolli Valgarðsson
Vala Hauksdóttir Þráinn Jensson
og barnabörn.