Fréttablaðið - 09.05.2006, Qupperneq 10
9. maí 2006 ÞRIÐJUDAGUR
Sævarhöfða 2 Sími 525 8000 www.ih.is Opið: Mán – fös kl. 9-18 og lau kl. 12-16
Frábært verð og ríkulegur staðalbúnaður!
Rafstýrð leðursæti, 17" álfelgur, 4x4, litað gler, 6 diska geislaspilari,
3 drifstillingar, loftkæling, sjálfskipting, útvarpsfjarstýring í stýri, sóllúga.
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
2
16
5
7
Nissan X-Trail Elegance 3.490.000 kr.
NISSAN X-TRAIL
BORGAÐU MINNA
FYRIR MEIRI LÚXUS!
Öllum Nissan X-Trail sem keyptir
eru fylgir auka dekkjaumgangur,
dráttarbeisli og bensínkort frá
EGO með 50.000 kr. inneign!
��������������������
�������������������
�����������������������������������������������������������������������������������
��������������������������������������������������������������������������������
������������������ ��������� ���� ����������� �������������������� � ���� ���������
������������������������������
�
������������������ �������������� ��������������������������������������������
���������������������������������������������������� ������������
���������������������
LONDON, AP Tony Blair sagðist í
gær ákveðinn í því að sitja áfram
sem forsætisráðherra Bretlands,
þrátt fyrir ítrekaðar áskoranir
jafnt eigin flokksmanna sem ann-
arra um að hann segi af sér sem
fyrst. Hann sagði sigur sinn í kosn-
ingunum á síðasta ári ótvírætt
merki þess að breska þjóðin vildi
hafa hann í þessu embætti.
Hann gagnrýndi sérstaklega þá
félaga í Verkamannaflokknum
sem krefjast afsagnar hans, nú í
kjölfar afhroðs sem flokkurinn
beið í sveitarstjórnarkosningum í
síðustu viku. Hann sagði suma
þeirra vilja draga flokkinn aftur
til vinstri og út af miðju stjórn-
málanna.
„Ég mun berjast gegn því allt
til enda,“ sagði Blair á mánaðar-
legum blaðamannafundi, sem
hann hélt í gær.
Hann tók það fram að hann
myndi segja af sér nógu löngu
fyrir næstu kosningar, sem líklega
verða haldnar árið 2009, til þess að
gefa eftirmanni sínum svigrúm til
þess að festa sig í sessi. Hins
vegar gæti hann ekki nefnt neina
dagsetningu fyrirfram, því það
myndi gera sér ókleift að sinna
starfi sínu.
„Að koma með tímaáætlun
myndi einfaldlega lama starf
stjórnarinnar, stofna í hættu þeim
nauðsynlegu breytingum sem við
erum að gera fyrir Bretland og
þess vegna skaða landið,“ sagði
Blair. „Það myndi ekki binda enda
á þessa truflun, heldur aðeins fara
með hana upp á nýtt stig.“
Blair sagðist „að sjálfsögðu“
enn líta svo á að Gordon Brown
fjármálaráðherra væri besti kost-
urinn í leiðtogaembætti flokksins,
þegar að því kemur að Blair segir
af sér.
Vandræði Blairs hafa hins
vegar orðið vatn á myllu stjórnar-
andstöðunnar. David Cameron,
leiðtogi Íhaldsflokksins, sem vann
mikinn sigur í sveitarstjórnakosn-
ingunum í síðustu viku, boðaði til
blaðamannafundar í gær, klukku-
stund áður en blaðamannafundur
Blairs hófst. Þar sagði hann að
Íhaldsflokkurinn myndi standa sig
miklu betur í ríkisstjórn heldur en
Verkamannaflokkurinn, þar sem
allt logar í illdeilum.
„Það ríkir borgarastríð á æðsta
stigi stjórnsýslunnar,“ sagði
Cameron. „Þeir eru óhæfir,“ bætti
hann við, „þeim er að þrjóta kraft-
urinn og hugmyndirnar, sundraðir
frá toppi til táar.“
gudsteinn@frettabladid.is
Á BLAÐAMANNAFUNDI Í GÆR Forsætisráðherra Breta sagðist ekki geta nefnt ákveðna
dagsetningu fyrirfram um afsögn sína, því þá yrði honum ókleift að stjórna lengur.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Situr af
sér óveðrið
Tony Blair ætlar ekki að láta undan þrýstingi um að
segja af sér, þrátt fyrir hvert vandræðamálið á fætur
öðru og afhroð í kosningum í síðustu viku.
LÖGREGLA Geir Jón Þórisson yfirlög-
regluþjónn segir að lögregluþjónn-
inn sem gaf Fréttablaðinu upplýs-
ingar um hópamyndun unglinga við
Hólagarð í Breiðholti síðastliðið
laugardagskvöld hafi málað ástand-
ið full dökkum litum. „Þetta atvik á
laugardagskvöldið er einstakt atvik.
Við höfum farið í gegnum allar
okkar skrár og það kemur ekkert
fram um vopnaburð fyrr en nú. Lög-
regluþjónninn heimfærði ástandið
þetta kvöld yfir á almennt ástand.“
Geir Jón segir að vissulega sé
hópamyndun við Hólagarð sem
hefur verið til óþurftar fyrir fólk og
skemmdarverk hafi verið framin.
Hann segir að nú verði gæsla hert
mjög. Öll hópamyndun verði leyst
upp strax og þeir einstaklingar sem
beri ábyrgð á hvers konar lögbrot-
um muni verða færðir til foreldra
og haft samband við barnaverndar-
yfirvöld ef þurfa þykir.
Verslunareigendur í Hólagarði
eru þeirrar skoðunar að lýsingar
Bjarna Jónssonar, kráareiganda í
Hólagarði, séu ýktar og gefi ekki
rétta mynd af stöðu mála. Bjarni
segist aftur á móti standa við allt
sem hann hefur sagt. „Við erum búin
að ræða við rekstrarfélagið að hús-
inu í fleiri ár vegna þessa vanda.
Þessi skrílslæti hafa verið hér viku
eftir viku, meira og minna í allan
vetur.“ - shá
Vopnaburður ungmenna við Hólagarð í Breiðholti:
Einstakt atvik