Fréttablaðið - 09.05.2006, Side 50
34 9. maí 2006 ÞRIÐJUDAGUR
sport@frettabladid.is
Valsliðið nánast
stóð og féll með
hans frammistöðu
í fyrra og hann
verður að halda
sínum klassa
áfram í sumar ef
Valur ætlar að
skora mörk. Garðar Gunnlaugs-
son nýtur þess að spila fyrir fram-
an jafn hæfileikaríkan leikmann
og Guðmund. Guðmundur er gríð-
arlega mikilvægur fyrir liðið sem
helsti arkitektinn í sókninni.
LYKILMAÐURINN
Guðmundur Ben.
Hefur lengi verið sagður einn
allra efnilegasti leikmaður lands-
ins og nú kemur í ljós hvort hann
standist þær væntingar sem gerð-
ar hafa verið til hans. Kominn í
gott úrvalsdeildarlið úr 1. deild-
inni og þarf að sanna sig.
FYLGSTU MEÐ....
Pálmi R. Pálmasyni
Vörnin:
Misstu Bjarna Ólaf og Grét-
ar Sigfinn en fá Val Fannar
Gíslason. Hann þarf að
finna sig með Atla Sveini,
ef ekki gætu Valsarar lent
í vandræðum. Breiddin í
miðri vörninni er lítil.
Sóknin:
Guðmundur er frábær leikmaður
en þarf að vera laus við meiðsli.
Garðar er með mikið sjálfstraust
frá því í fyrra og þá hefur Spangs-
berg skorað grimmt í vetur. Lítur
vel út fyrir Valsmenn.
| 4. SÆTI | VALUR
LANDSBANKADEILDIN 2006
LEIKMANNAHÓPURINN
MARKMENN:
Kjartan Sturluson
Sigurður Bjarni Sigurðsson
Kristinn Geir Guðmundsson
VARNARMENN:
Atli Sveinn Þórarinsson
Valur Fannar Gíslason
Birkir Már Sævarsson
Örn Kató Hauksson
Steinþór Gíslason
MIÐJUMENN:
Barry Smith
Ari Freyr Skúlason
Baldur Aðalsteinsson
Matthías Guðmundsson
Pálmi Rafn Pálmason
Sigurbjörn Örn Hreiðarsson
Þorvaldur Makan
Kristinn Hafliðason
Pálmi Rafn Pálmason
SÓKNARMENN:
Guðmundur Benediktsson
Hálfdán Gíslason
Jakob Spangsberg Jensen
Andri Valur Ívarsson
Garðar Gunnlaugsson
KOMNIR: Andri Valur Ívars-
son (frá Völsungi), Barry
Smith (frá Dundee), Jakob Spangs-
berg (frá Leikni), Kristinn Hafliðason
(frá Þrótti), Pálmi Rafn Pálmason
(frá KA), Valur Fannar Gíslason (frá
Fylki), Þorvaldur Makan (frá Fram),
Örn Kató Hauksson (frá KA)
FARNIR: Baldvin Jón Hallgrímsson
í Þrótt, Bjarni Ólafur Eiríksson (til
Silkeborg), Grétar Sigurðsson (í Vík-
ing), Kristinn Lárusson (hættur), Sig-
þór Júlíusson (í Völsung), Sigurður
Sæberg (hættur), Stefán Helgi Jóns-
son (hættur), Þórhallur Hinriksson (í
Þrótt). Markið:
Kjartan er öryggið uppmálað á milli stanganna.
Sterkur markmaður sem gerir fá mistök og er
vanur að ná góðu sambandi við vörnina.
ÞJÁLFARINN
Hans annað tímabil með Valsliðið
en með töluvert breyttan hóp frá
því í fyrra. Góður þjálfari með
mikla reynslu.
Willum Þór Þórsson
Miðjan:
Mjög góður mannskapur. Matthías og Baldur eru
eitraðir kantmenn og Sigurbjörn á miðjunni er akkerið
í liðinu. Þá verður spennandi að fylgjast með Pálma
Rafni og Barry Smith.
Bekkurinn:
Fínn hópur og ef allir eru heilir er bekkurinn
skipaður mönnum sem eru vel frambærileg-
ir úrvalsdeildarleikmenn.
Líklegt byrjunarlið 4-4-1-1
SPÁIN
1 ?
2 ?
3 ?
4 Valur 100
5 Keflavík 92
6 Fylkir 69
7 Grindavík 46
8 Víkingur 41
9-10 Breiðab. 32
9-10 ÍBV 32
Ari Freyr Skúlason
Atli Sveinn Þórarinsson
Kjartan Sturluson
Valur Fannar Gíslason
Steinþór Gíslason
Pálmi Rafn Pálmason Sigurbjörn Hreiðarsson
Matthías Guðmundsson Baldur Aðalsteinsson
Guðmundur Benediktsson
Garðar Gunnlaugsson
Þó að einvígið gegn Haukum í undanúr-
slitum deildabikarsins í handbolta hafi
farið illa hjá Valsmönnum vakti mögnuð
frammistaða markmannsins Pálmars
Péturssonar verðskuldaða athygli. Hinn
22 ára gamli Húsvíkingur varð 24 skot í
tveimur leikjanna og 21 í þeim þriðja og
nánast hélt Valsmönnum á floti lengst
af, en einvígið endaði með 2-1 sigri
Hafnarfjarðarliðsins.
Markvarsla Pálmars í leikjunum var vel
yfir hans meðaltali í vetur þó svo að
hann hafi inni á milli komist í stuð og
varið hátt á þriðja tug skota í einum og
sama leiknum. Og í kjölfarið á leikjunum
gegn Haukum flýgur sú fiskisaga að
Pálmar hafi í raun verið að sýna sig
forráðamönnum Hauka, en eins og
kunnugt er mun markvörður þeirra,
Birkir Ívar Guðmundsson, halda á
vit atvinnumennskunnar í sumar
og leitar Hafnarfjarðarstórveldið nú
logandi ljósi að arftaka hans. Pálm-
ar hló þegar
Frétta-
blaðið bar
þessar
samsæris-
kenningar
undir hann
í gær. „Það er rétt að
mér gekk vel en fyrst og fremst var
ég að sanna mig fyrir Valsmönnum og
stuðningsmönnum liðsins,“ sagði Pálm-
ar. Ég get sagt með hreinni samvisku að
meintur áhugi Hauka hafði ekkert að
segja,“ bætti hann við.
Margt bendir til þess að Óskar
Bjarni Óskarsson verði ekki við
stjórnvöllinn hjá Val á næstu leik-
tíð en hann hefur sjálfur lýst því
yfir að tími sé kominn til breyt-
inga. Samningur Pálmars við
Val er með klásúlu þess
efnis að ef Óskar Bjarni
hættir geti Pálmar
gert slíkt hið sama.
En Pálmar segir að
það sé ekkert að
óttast. „Framhaldið
veltur auðvitað á
því hver verður
þjálfari en mér
líður mjög vel
hjá Val og vil
helst vera hér
áfram.“
MARKVÖRÐURINN PÁLMAR PÉTURSSON: SAGÐUR VERA UNDIR SMÁSJÁ HAUKA
Var ekki að sýna mig fyrir Haukunum
FÓTBOLTI Eins og allir þeir knatt-
spyrnumenn sem spila í deildar-
keppni KSÍ í sumar þurfa dómar-
arnir í þessum sömu deildum að
vera í góðu formi. Dómarar þurfa
að geta hlaupið enda á milli á fót-
boltavellinum í þær níutíu mínút-
ur sem leikurinn stendur yfir og
það helst án þess að blása of mikið
úr nös.
Að stærstu leyti er það á áhyrgð
hvers dómara að vera í fullnægj-
andi formi þegar tímabilið hefst
en að þessu sinni ákvað KSÍ að
fara þá leið að setja dómara á
höfuðborgarsvæðinu í einkaþjálf-
un einu sinni í viku. Þjálfarinn
sem fenginn var í starfið er Egill
Eiðsson, framkvæmdastjóri FRÍ,
en hann er einnig þekktur fyrir að
vera einkaþjálfari Eiðs Smára
Guðjohnsen yfir sumartímann á
Íslandi.
„Ég er nú aðallega að láta þá
hlaupa,“ sagði Egill við Frétta-
blaðið í gær og hló. Um er að ræða
rúmlega fjörutíu manna hóp sem
telur bæði dómara og aðstoðar-
dómara, sem áður gengu undir
starfsheitinu „línuverðir“.
„Við förum í ýmsa þætti, eins
og hraða, snerpu og þol,“ útskýrir
Egill en æfingar dómaranna hjá
honum hófust um miðjan janúar
og fara fram í nýju frjálsíþrótta-
höllinni í Laugardal. Þær fara
fram öll mánudagskvöld en þó
hefur verið breytt út af vananum,
eins og til dæmis í lok apríl þegar
sást til hópsins í göngu upp Esjuna.
„Mánudaginn 1. maí var frí eins
og hjá öðrum og því var ákveðið
að fara upp Esjuna deginum áður.
Dómararnir fóru létt með það,“
segir Egill.
Að sögn Birkis Sveinssonar,
mótastjóra KSÍ, þurfa dómararnir
að gangast undir þrekpróf með
reglulegu millibili og að í þeim séu
gerðar ákveðnar kröfur sem séu í
samræmi reglur UEFA. Birkir
segir að niðurstöður þeirra prófa
sem þegar hafa verið tekin gefi til
kynna að æfingar Egils séu að
gera dómurunum gott.
„Almennt má segja að niður-
stöður þeirra mælinga sem við
gerðum í lok apríl séu betri en
undanfarin ár. Hins vegar er alltaf
eitthvað um meiðsli og til að
mynda erum við í þeirri aðstöðu
nú að 4-5 dómarar hafa enn ekki
lokið þrekprófi og fá þar af leið-
andi ekki að dæma.” - vig
Dómararnir nálgast sitt besta form
Egill Eiðsson, framkvæmdastjóri Frjálsíþróttasambandsins og einkaþjálfari Eiðs Smára Guðjohnsen á
Íslandi, hefur verið með helstu knattspyrnudómara sem búsettir eru á höfuðborgarsvæðinu undir sinni
handleiðslu í vetur. Landsbankadeildin hefst á sunnudaginn og dómararnir eru óðum að komast í form.
Á TOPPI ESJUNNAR Egill Eiðsson sést hér fyrir miðri mynd, umkringdur dómurum, þegar
æfingahópurinn fór í göngu upp Esjuna í lok apríl. FRÉTTABLAÐIÐ/SME
LANDSBANKADEILDIN „Við ætlum að
halda áfram þar sem frá var horfið
og stefnum vitaskuld á
toppinn,“ segir Sigur-
björn Hreiðarsson,
fyrirliði Vals.
Valsmenn hafa misst
nokkra sterka menn úr
hópnum frá því í fyrra,
þeirra á meðal Bjarna
Ólaf Eiríksson og Grét-
ar Sigfinn Sigurðsson.
Þá er Sigþór Júlíusson
farinn í Völsung. „Góðir
menn fóru en þeir sem
komið hafa eru góðir
líka. Við höfum verið að
slípa þetta saman og það
hefur gengið mjög vel.
Við erum með öðruvísi hóp í fyrra
en hvort hann er sterkari verður
bara að koma í ljós,“ sagði Sigur-
björn, sem er þó ánægður með
leikmannahópinn.
„Við erum með góðan átján
manna hóp og auk þess eigum við
eftir að fá Barry Smith frá Skot-
landi og hann ku vera sterkur leik-
maður,“ sagði Sigurbjörn.
Guðmundur Benediktsson þarf
að eiga gott sumar, eins og flestir í
kringum Valsliðið gera sér grein
fyrir. „Gummi verður alltaf lykil-
maður í liðinu. Þegar sá gállinn er
á honum getur hann búið til ýmis-
legt upp úr engu, sem er eiginleiki
sem fáir hafa. Þegar hann er inni á
vellinum er alltaf hægt að finna
hann. Það má samt segja að flestir
í okkar hópi séu lykilmenn eða
lyklar að skrám. Þessir lyklar
þurfa að vera til staðar og standa
sig,“ sagði Sigurbjörn.
Valsmenn unnu FH á sunnu-
daginn í keppninni um Meistara
meistaranna, árlegum leik á milli
bikarmeistaranna og Íslands-
meistaranna þar sem Matthías
Guðmundsson skoraði eina mark-
ið í 1-0 sigri. „Sigurinn gegn FH
var okkur mikilvægur. Hann gefur
okkur aukið sjálfstraust inn í
mótið.“ - hþh
Höldum áfram okkar striki
Fréttablaðið og Sýn spá bikarmeisturum Vals fimmta sæti í Landsbankadeild-
inni í sumar. Sigurbjörn Hreiðarsson segir að liðið stefni á toppinn í sumar.
PÁLMI RAFN Stendur í ströngu í leiknum
gegn FH í fyrradag. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
FÓTBOLTI Varnarmaðurinn Þórhall-
ur Dan Jóhannesson mun líklega
spila með Fylki í Landsbanka-
deildinni í sumar. Þórhallur fór
frá Fylki árið 2004 og gekk í raðir
Fram, sem hann er enn samnings-
bundinn. Þórhallur hefur nú farið
fram á að komast aftur í Fylki.
„Ég talaði við Framarana og
tjáði þeim að ég væri tilbúinn að
spila með þeim í sumar. Samning-
urinn minn var of hár fyrir 1.
deildina en ég bauðst til að ræða
við Brynjar framkvæmdastjóra
um það. Hann sagðist ætla að
hringja í mig en ég hef enn ekkert
heyrt. Ég ber samt engan kala til
hans né Fram, alls ekki, við erum
mjög góðir vinir,“ sagði Þórhallur,
sem ætlar að mæta á æfingar hjá
Fylki fái hann leyfi til þess.
„Ef Leifur hefur not fyrir mig
þá ætla ég að mæta á æfingu og
sjá til hvort ég komist í liðið. Ég
hef ekki æft mikinn fótbolta en
kannski hafa þeir not fyrir mig,“
sagði Þórhallur Dan.
- hþh
Þórhallur Dan Jóhannesson:
Á leið til Fylkis
á nýjan leik
> Logi og Ásgeir í beinni
Landsmönnum gefst frábært tækifæri í
kvöld til að sjá eina heitustu handknatt-
leiksmenn Íslands um þessar mundir
í eldlínunni. Logi Geirsson og Ásgeir
Örn Hallgrímsson mæta þá Flensburg
í þýska úrvalsdeildinni í handbolta.
Leikurinn verður í beinni útsendingu á
Sýn og hefst útsendingin klukkan 17.50.
Flensburg er í öðru sæti deildarinnar
og verða að vinna ætli þeir sér ekki
að missa Kiel langt fram úr sér þegar
skammt er eftir af mótinu. Nýbakaðir
Evrópumeistarar Lemgo eru í sjötta sæti,
í harðri baráttu um Meistaradeildarsæti.
Logi og Ásgeir hafa verið funheitir með
Lemgo undanfarið
og er ekki úr vegi
að nýta þau fáu
tækifæri sem
bjóðast til að
sjá kappana
í essinu
sínu.
Sigfús framlengir
Sigfús Páll Sigfússon, miðjumaður Fram,
sem meðal annars var valinn besti ungi
leikmaður DHL-deildarinnar í vetur af
þjálfurum deildarinnar, hefur framlengt
samning sinn við Safamýrarliðið. Sigfús
skrifaði undir þriggja ára samning.