Fréttablaðið - 09.05.2006, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 09.05.2006, Blaðsíða 10
 9. maí 2006 ÞRIÐJUDAGUR Sævarhöfða 2 Sími 525 8000 www.ih.is Opið: Mán – fös kl. 9-18 og lau kl. 12-16 Frábært verð og ríkulegur staðalbúnaður! Rafstýrð leðursæti, 17" álfelgur, 4x4, litað gler, 6 diska geislaspilari, 3 drifstillingar, loftkæling, sjálfskipting, útvarpsfjarstýring í stýri, sóllúga. E N N E M M / S ÍA / N M 2 16 5 7 Nissan X-Trail Elegance 3.490.000 kr. NISSAN X-TRAIL BORGAÐU MINNA FYRIR MEIRI LÚXUS! Öllum Nissan X-Trail sem keyptir eru fylgir auka dekkjaumgangur, dráttarbeisli og bensínkort frá EGO með 50.000 kr. inneign! �������������������� ������������������� ����������������������������������������������������������������������������������� �������������������������������������������������������������������������������� ������������������ ��������� ���� ����������� �������������������� � ���� ��������� ������������������������������ � ������������������ �������������� �������������������������������������������� ���������������������������������������������������� ������������ ��������������������� LONDON, AP Tony Blair sagðist í gær ákveðinn í því að sitja áfram sem forsætisráðherra Bretlands, þrátt fyrir ítrekaðar áskoranir jafnt eigin flokksmanna sem ann- arra um að hann segi af sér sem fyrst. Hann sagði sigur sinn í kosn- ingunum á síðasta ári ótvírætt merki þess að breska þjóðin vildi hafa hann í þessu embætti. Hann gagnrýndi sérstaklega þá félaga í Verkamannaflokknum sem krefjast afsagnar hans, nú í kjölfar afhroðs sem flokkurinn beið í sveitarstjórnarkosningum í síðustu viku. Hann sagði suma þeirra vilja draga flokkinn aftur til vinstri og út af miðju stjórn- málanna. „Ég mun berjast gegn því allt til enda,“ sagði Blair á mánaðar- legum blaðamannafundi, sem hann hélt í gær. Hann tók það fram að hann myndi segja af sér nógu löngu fyrir næstu kosningar, sem líklega verða haldnar árið 2009, til þess að gefa eftirmanni sínum svigrúm til þess að festa sig í sessi. Hins vegar gæti hann ekki nefnt neina dagsetningu fyrirfram, því það myndi gera sér ókleift að sinna starfi sínu. „Að koma með tímaáætlun myndi einfaldlega lama starf stjórnarinnar, stofna í hættu þeim nauðsynlegu breytingum sem við erum að gera fyrir Bretland og þess vegna skaða landið,“ sagði Blair. „Það myndi ekki binda enda á þessa truflun, heldur aðeins fara með hana upp á nýtt stig.“ Blair sagðist „að sjálfsögðu“ enn líta svo á að Gordon Brown fjármálaráðherra væri besti kost- urinn í leiðtogaembætti flokksins, þegar að því kemur að Blair segir af sér. Vandræði Blairs hafa hins vegar orðið vatn á myllu stjórnar- andstöðunnar. David Cameron, leiðtogi Íhaldsflokksins, sem vann mikinn sigur í sveitarstjórnakosn- ingunum í síðustu viku, boðaði til blaðamannafundar í gær, klukku- stund áður en blaðamannafundur Blairs hófst. Þar sagði hann að Íhaldsflokkurinn myndi standa sig miklu betur í ríkisstjórn heldur en Verkamannaflokkurinn, þar sem allt logar í illdeilum. „Það ríkir borgarastríð á æðsta stigi stjórnsýslunnar,“ sagði Cameron. „Þeir eru óhæfir,“ bætti hann við, „þeim er að þrjóta kraft- urinn og hugmyndirnar, sundraðir frá toppi til táar.“ gudsteinn@frettabladid.is Á BLAÐAMANNAFUNDI Í GÆR Forsætisráðherra Breta sagðist ekki geta nefnt ákveðna dagsetningu fyrirfram um afsögn sína, því þá yrði honum ókleift að stjórna lengur. FRÉTTABLAÐIÐ/AP Situr af sér óveðrið Tony Blair ætlar ekki að láta undan þrýstingi um að segja af sér, þrátt fyrir hvert vandræðamálið á fætur öðru og afhroð í kosningum í síðustu viku. LÖGREGLA Geir Jón Þórisson yfirlög- regluþjónn segir að lögregluþjónn- inn sem gaf Fréttablaðinu upplýs- ingar um hópamyndun unglinga við Hólagarð í Breiðholti síðastliðið laugardagskvöld hafi málað ástand- ið full dökkum litum. „Þetta atvik á laugardagskvöldið er einstakt atvik. Við höfum farið í gegnum allar okkar skrár og það kemur ekkert fram um vopnaburð fyrr en nú. Lög- regluþjónninn heimfærði ástandið þetta kvöld yfir á almennt ástand.“ Geir Jón segir að vissulega sé hópamyndun við Hólagarð sem hefur verið til óþurftar fyrir fólk og skemmdarverk hafi verið framin. Hann segir að nú verði gæsla hert mjög. Öll hópamyndun verði leyst upp strax og þeir einstaklingar sem beri ábyrgð á hvers konar lögbrot- um muni verða færðir til foreldra og haft samband við barnaverndar- yfirvöld ef þurfa þykir. Verslunareigendur í Hólagarði eru þeirrar skoðunar að lýsingar Bjarna Jónssonar, kráareiganda í Hólagarði, séu ýktar og gefi ekki rétta mynd af stöðu mála. Bjarni segist aftur á móti standa við allt sem hann hefur sagt. „Við erum búin að ræða við rekstrarfélagið að hús- inu í fleiri ár vegna þessa vanda. Þessi skrílslæti hafa verið hér viku eftir viku, meira og minna í allan vetur.“ - shá Vopnaburður ungmenna við Hólagarð í Breiðholti: Einstakt atvik
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.