Fréttablaðið - 12.05.2006, Page 24

Fréttablaðið - 12.05.2006, Page 24
 12. maí 2006 FÖSTUDAGUR24 fréttir og fróðleikur Háskólarektor kynnti stefnu skólans í gær en eftir henni hefur verið kallað síðan rektor viðr- aði fyrst hugmyndir sínar að gera HÍ samkeppnis- hæfari á alþjóðagrund- velli og skyldi stefna í hóp hundrað bestu háskóla heims á næstu árum. Tvennt hefur þótt standa slíkum ráðagerð- um fyrir þrifum; fjár- skortur og stefnuleysi en nú liggur stefnan skýr fyrir og boltinn því hjá ríkinu hvað viðbótarfjár- magn varðar til að draum- ur stjórnenda skólans verði að veruleika. Sjá má á meðfylgjandi lista grófar útlistanir á þeim takmörk- um sem skólayfirvöld hyggjast ná fram til árins 2011 og eru fyrsti áfangi á langri leið í hóp bestu háskóla heims. Stefnan var einróma sam- þykkt bæði á háskólafundi og í háskólaráði og ríkir samkvæmt heimildum Fréttablaðsins afar mikil almenn ánægja með til- lögur þær er fram hafa komið. Til að þær nái fram að ganga þurfa tekjur skólans að aukast um 4,9 milljarða króna á næstu fimm árum. Er ætlunin að auka sértekjur hans um 1,5 milljarð króna á tíma- bilinu og þá þarf framlag ríkisins að aukast um 3,4 milljarða á sama tíma. Það sam- svarar 10 prósent meðaltalsraun- hækkun á ári hverju. Kristín Ingólfsdóttir, rektor, segir stefnumörkunina standa og falla með ákvörðun stjórnvalda. Án þeirra framlags muni skólinn standa í stað og þar með dragast afturúr þar sem mikil framþróun eigi sér stað í háskólum heimsins og ekki minnst meðal þeirra bestu sem HÍ vill bera sig saman við. „Í ljósi þess að samkeppni í þekking- arsköpun og vísindum hvers konar er að aukast jafnt og þétt í heimin- um þá er ljóst að við hér á landi verðum að svara kalli tímans og gera átak hjá okkur. Það er brýn nauðsyn til en vissulega er frekari fjárstuðningur forsenda þess að við getum hrint markmiðum okkar í framkvæmd.“ Meðal þess sem HÍ mun gera, gangi allt eftir, er að bera sig nákvæmlega saman við nokkra útvalda háskóla erlendis en nokkr- ir þeirra eru þegar á hinum eftir- sótta lista yfir bestu háskóla heims. Þannig geti starfsfólks skólans verið meðvitað um hvernig gangi að hrinda stefnunni í framkvæmd en slíkt segir Kristín ekki hafa verið gert með skipulögðum hætti áður. „Bæði fylgjumst við með afköstum þessara skóla sem eru flestir af svipaðri stærð og Háskóli Íslands og eins öllum nýjungum í kennslu eða rannsóknum. Þannig getum við á öllum tímum borið okkur saman og séð hvar við stönd- um og hvaða árangur hefur náðst.“ Sigurður Örn Hilmarsson, for- maður Stúdentaráðs, lýsti sig afar ánægðan með metnaðarfulla stefnu rektors og sagði nemendur skólans finna vel fyrir þeim aukna krafti sem færst hefði í starf skólans. „Segja má að það sé hægt að finna fyrir miklu meira lífi í skólanum vegna þessara hugmynda og engum dylst að kennarar og aðrir starfs- menn eru afar sáttir og viljugir að ganga þennan veg með rektor. Betri skóli kemur öllum vel.“ Vitað er að menntamálaráð- herra, Þorgerði Katrínu Gunnars- dóttur, hugnast markmið og stefna Háskólans vel en ekki náðist í hana í gær til að fá svör við því hvort ríkið sé tilbúið að koma til móts við skólann til að hægt verði að hrinda stefnu rektors í framkvæmd. Taki ríkið vel í að veita auknu fé til skól- ans mega Íslendingar eiga von á að eiga háskóla í fremstu röð í heim- inum á næstu tíu til fimmtán árum. FRÉTTASKÝRING ALBERT ÖRN EYÞÓRSSON albert@frettabladid.is > Fjöldi grunnskólastjóra eftir kyni Heimild: Hagstofa Íslands Svona erum við Konur Karlar 86 14 29 71 44 56 Konur Karlar Konur Karlar 1985 1995 2005 Sími: 50 50 600 • www.hertz.is www.hertz.is Bókaðu bílinn heima - og fáðu 500 Vildarpunkta Vika í USA 21.200* San Fransisco kr. - ótakmarkaður akstur, kaskó, þjófavörn, flugvallargjald, einn tankur af bensíni, einn auka bílstjóri og skattar. Verð miðað við gengi 1. maí 2006.* 17.800* Florida kr. - ótakmarkaður akstur, kaskó, þjófavörn, flugvallargjald, einn tankur af bensíni, einn auka bílstjóri og skattar. * 23.300* Boston kr. - ótakmarkaður akstur, kaskó, þjófavörn, flugvallargjald, einn tankur af bensíni, einn auka bílstjóri og skattar. Verð miðað við gengi 1. maí 2006.* Verð miðað við gengi 1. maí 2006. ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S H ER 3 25 46 05 /2 00 6 Aðalfundur MS-félags Íslands 2006 verður haldinn laugardaginn 13. maí kl. 1400 stundvíslega á Hótel Sögu, Súlnasal. Farið er að lyftum austan megin frá. Húsið verður opnað klukkan 13.00. Dagskrá: venjuleg aðalfundarstörf. Kaffiveitingar verða í boði félagsins. A.t.h. einungis skuldlausir félagsmenn hafa atkvæðisrétt á fundinum. Félagsmenn hvattir til að mæta. Stjórn MS-félags Íslands Vart líður sá dagur að ekki falli dómur fyrir héraðsdómstólum eða Hæstarétti þar sem misyndismenn sem margir hverjir hafa ítrekað komist í kast við lögin hljóta svokallaða skil- orðsbundna dóma vegna brota sinna. Ástæð- urnar eru almenningi oftast skiljanlegar þegar um væg brot eða fyrsta brot viðkomandi er að ræða en ástæður þess að einstaklingar sem hafa oftar en einu sinni komið fyrir dóm vegna brota og hljóta skilorðsbundna dóma eru mörgum erfiðari að skilja. Stutt er síðan maður hlaut tveggja mánaða skilorðsbundinn dóm fyrir að ráðast á lög- reglumann sem sinnti skyldustörfum sínum í Reykjavík. Slasaðist lögreglumaðurinn ekki en var marinn og skrámaður eftir átökin. Annar árásarmaður á Akureyri hlaut sama dóm fyrir að skalla annan og nefbrjóta illa eftir dans- leik. Fyrri maðurinn hafði aldrei áður verið dæmdur en árásaraðilinn á Akureyri hafði sex árum fyrr fengið hliðstæðan tveggja mánaða skilorðsbundinn dóm vegna alvarlegs brots. Samkvæmt almennum hegningarlögum er dómurum heimilt að fresta fullnustu fangels- isdóms þó skilorð sé rofið á reynslutíman- um, eftir atvikum með breyttum skilyrðum. Skilorðstími má ekki vera skemmri en eitt ár og aldrei lengri en fimm ár. Segir þar einnig að dómurum sé heimilt að nýta skilorðs- réttinn þegar aðstæður eru metnar svo að önnur úrræði en fangelsisdómur séu vænlegri til árangurs enda sé broti ekki svo varið að almannahagsmunir krefjist saksóknar. FBL GREINING: SKILORÐSBINDING DÓMA Heppilegra úrræði en fangelsi HÁSKÓLAREKTOR Kristín Ingólfsdóttir hefur nú sett fram metnaðrfulla stefnu um framtíð Háskóla Íslands. Háskólinn er reiðubúinn MIKIL SAMSTAÐA Deildarforsetar innan Háskóla Íslands fylgdust með þegar rektor kynnti stefnu Háskólans og gerðu góðan róm að. Stefnumörkunin var unnin í samvinnu við þá, nem- endur og aðra starfsmenn skólans. HÁSKÓLI ÍSLANDS Í HÓP ÞEIRRA BESTU: STEFNAN TIL 2011 ■ Fimmfalda fjölda brautskráðra doktora ■ Auka rannsóknarvirkni og gæði rannsókna ■ Fjölga birtingum í virtum alþjóðlegum tímaritum ■ Auka samstarf við erlenda háskóla ■ Auka sókn í samkeppnisjóði rannsókna ■ Stórefla aðstöðu til rannsókna og kennslu ■ Auka þverfræðilegar rannsóknir ■ Efla nýsköpun og tengsl við byggðarannsóknir ■ Laða að hæfustu nemendurna ■ Ráða hæfustu kennarana ■ Efla stuðning- og gæðakerfi kennslu ■ Endurmeta og þróa námsframboð ■ Efla upplýsingatækni ■ Auka ábyrgð nemenda ■ Efla endurmenntun ■ HÍ verði skipt í nokkra skóla ■ Stjórnkerfi skólans styrkt ■ Gæðakerfi skólans efld ■ Styrkja tengsl við atvinnulíf ■ Fjarhagur endurspegli hlutverk og árangur Rektor Háskóla íslands, Kristín Ingólfsdóttir, hefur sett fram skýra stefnumótun til næstu ára hvernig skóla- yfirvöld ætla sér að ná því háleita markmiði að komast í hóp eitt hundrað bestu háskóla heims. Er stefnan unnin í samvinnu við nær alla starfsmenn skólans auk samráðs við fulltrúa nemenda og allnokkra aðila úr atvinnulífinu. Fjárframlög ríkisins þurfa að aukast til muna en skólinn mun einnig reyna að stórauka sértekjur sínar á um- ræddu tímabili án þess að tekin verði upp skólagjöld.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.