Fréttablaðið - 12.05.2006, Blaðsíða 38
■■■■ { heilsa og útivist } ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■2
„Úrvalið í gerð hjóla hefur raun-
verulega aldrei verið meira heldur
en nú, sem er aftur til komið af því
að sífellt fleiri nýta sér þennan far-
arskjóta í daglegu lífi,“ segir Ragn-
ar Þór Ingólfsson, verslunarstjóri
Arnarins, sem er stærsta reiðhjóla-
verslun á Íslandi og hefur starfað
síðan 1925.
„Við erum með fjallahjól,
götuhjól, stökkhjól og „comfort“-
hjól fyrir fullorðna, með breið-
um hnökkum, fjöðrum í sæti og
reistum stýrum,“ nefnir Ragnar.
„Svo eru svokallaðir „krúserar“,
sem líkjast gömlu eins til þriggja
gíra bandarísku strandhjólunum.
Einnig eru þriggja til sjö gíra hjól
í gamaldags stíl og með fótbremsu
að koma aðeins aftur í tísku. Þá
verða keppnishjólin sífellt vinsælli
og var fyrsta bikarmótið haldið um
síðustu helgi með góðri þátttöku.
Keppnishjólin eru eiginlega þau
einu sem við seljum sem ekki eru
úr áli. Flóran er gríðarlega mikil
og hjólin orðin mun sérhæfðari en
áður.“
„Fyrir fjölskyldufólk erum við
líka með hjólakerrur og tengihjól,
eða einhjól, fyrir börn sem eru
tengd aftan á fullorðinshjól,“ segir
Ragnar. „Þau eru tilvalin fyrir fólk
sem vill hjóla ágæta vegalengd
með lítil börn, án þess að þreyta
þau of mikið.“
„Við erum einnig með raf-
magnsknúin reiðhjól, sem eru til-
tölulega nýtt fyrirbrigði hérlendis,“
segir Ragnar. „Það eru hjól sem
nota má á ýmsa vegu. Hjólin má
keyra alfarið um á rafmagni, nota
rafmagnsmótorinn sem hjálpartól
til að komast upp erfiðar brekkur
og svo framvegis, og svo má fjar-
lægja geyminn og nota hjólið með
hefðbundnum hætti. Sala á raf-
magnsknúnum reiðhjólum hefur
aukist verulega á milli ára,“ bætir
Ragnar við.
Ragnar rekur þá söluaukningu
sem hefur almennt orðið á hjólum
undanfarið að einhverju leyti til
átaksins „Hjólum í vinnuna“, sem
hófst á síðasta ári. Að hans mati
kaupir fólk ekki aðeins hjól í aukn-
um mæli, heldur nýtir þau einnig
betur en áður. Það er ákveðinn
liður í bættum lífsstíl og bara af
hinu góða.
Hjólreiðamenning á uppleið
Úrval hjóla hefur aldrei meira en nú enda fólk farið að nýta sér hjólið mun meira.
Fyrir yngstu hjólreiðamennina. Tengihjól ætlað börnum frá fimm ára aldri, sem tengt er aftan á fullorðinshjól. Svona hjól kostar 13.900 kr.
Til eru margar gerðir og stærðir af tengihjólum í Erninum, bæði fyrir börn og fullorðna. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Hér sést hefðbundið Trek fjalla- og
ferðahjól, sem fæst hjá Erninum og kostar
33.900 kr. Ortlieb-töskurnar eru aukabún-
aður, en þær eru vatnsheldar og kosta á
bilinu 12-14.000 kr. parið.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Trek-hjólið sem Ragnar heldur á heitir
Madone SSL, en þetta er ein útgáfa af hjóli
Lance Armstrong, sem vann hjólreiða-
keppnina Tour de France í sjöunda skiptið
í fyrra. Hjólið er smíðað úr kolefnatrefjum,
að teinum og gírum undanskildum. Hjólið
kostar 700.000 kr. án fótstiga. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Hérna sést eitt rafmagnshjólanna sem eru í boði, en þau kosta frá 100.000 kr. og eru
fáanleg í mörgum gerðum. Hjólið á myndinni kostar 161.000 kr. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Íslenski fjallahjólaklúbburinn hefur
starfað síðan 1990. Upphaflegur til-
gangur með stofnun klúbbsins var
að vinna að bættri hjólreiðamenn-
ingu á Íslandi. Guðbjörn Margeirs-
son varaformaður segir þetta enn
vera baráttumál.
„Nú fyrst eru breytingar að sjást
til hins betra þar sem þingmenn á
borð við Kolbrúnu Halldórsdóttur
í Vinstri grænum eru að stuðla að
bættum samgöngum með áherslu á
hjólreiðar,“ segir Guðbjörn. „Þing-
menn eru farnir að sjá að það er
ekki endalaust hægt að moka undir
einkabílinn,“ bætir hann við.
„Nú hafa hins vegar verið stofn-
uð í kringum klúbbinn regnhlíf-
arsamtök sem heita Landssamtök
hjólreiðamanna,“ segir Guðbjörn.
„Þau tóku við pólitískri hlið klúbbs-
ins, sem beitir sér nú meira í ferða-
málum,“ segir hann enn fremur.
„Við erum með góða ferðadag-
skrá fram undan,“ segir Guðbjörn.
„Má nefna að á hverjum þriðju-
degi kl. 20:00 erum við með ferðir
frá Mjóddinni um Reykjavík og
nágrenni. Svo erum við með opið
hús í klúbbhúsinu okkar að Brekku-
stíg 2 fyrsta fimmtudag hvers mán-
aðar frá kl. 20:00. Þar er fullkomin
viðgerðaraðstaða fyrir hjól og svo
hittast menn til að ræða um hjól-
reiðar og allt sem þeim viðkemur,“
bætir hann við.
„Við erum líka með þrjár helgar-
ferðir skipulagðar fyrir sumar-
ið,“ segir Guðbjörn. „Fyrsta ferð-
in er árleg hjólreiðaferð farin 20.
maí á Nesjavöllum. Í annarri ferð
er rúta tekin upp í Borgarnes og
hjólað þaðan í Skorradal þar sem
gist verður í tjöldum dagana 7.-9.
júlí. Þriðja ferðin er dagana 11.-
13. ágúst. Þá verður farið með
rútu frá BSÍ til Þingvalla, þar sem
gist verður í tvær nætur, hjólað í
kringum Þingvallavatn á daginn
og farið heim á sunnudegi,“ segir
hann loks.
Nánari upplýsingar um dag-
skrána má skoða á heimasíðu
klúbbsins www.this.is/hjol.
Helstu útivistar-
svæði Íslendinga
Mikið er að gerast hjá Íslenska fjallahjólaklúbbnum.