Fréttablaðið - 12.05.2006, Side 40
4
Það er frábær útivera að þeysast
eftir göngustígunum, hlaupandi
eða á línuskautum, með yngsta fjöl-
skyldumeðliminn í kerru. Það þýðir
hins vegar lítið að ætla sér að hlaupa
um með stífa og stirða kerru. Hægt
er að fá sérstakar hlaupakerrur sem
henta vel fyrir dálítinn ærslaskap,
þær eru léttar og meðfærilegar og
á góðum dekkjum, oftast þremur í
stað fjögurra.
Þar sem hlaupakerrur eru oft á
mun meiri ferð en hefðbundnar
kerrur er mikilvægt að gæta fyllsta
öryggis og sjá til þess að barnið sé
vel fest í kerruna. Flestum nýjum
hlaupakerrum fylgir beisli og
mikilvægt er að nota það frá fyrsta
degi jafnvel þótt barnið sé ekki farið
að hreyfa sig mikið. Þá ætti líka
helst að vera klofband í kerrunni
svo barnið sé öruggt. Það segir sig
líka sjálft að ef ætlunin er að hlaupa
með kerruna skiptir miklu máli að
bremsubúnaðurinn sé góður. Hægt
er að fá nánari upplýsingar um
öryggi barna í kerrum á vefsíðunni
www.lydheilsustod.is. Starfsfólk
verslana sem selja hlaupakerrur
veitir einnig góðar upplýsingar.
Best er að kynna sér málin vel og
kaupa kerru sem hentar.
Hlaupið með kríli í kerru
Hlaupakerrur eru frábær búnaður fyrir þá sem vilja hreyfa sig mikið á sama tíma og
þeir eyða tíma með börnunum sínum.
Carena, tvíbura- eða systkinakerra. Þessi
kerra fæst í versluninni Fífu og hefur verið
vinsæl lengi. Hún er sterk og þolir mikið
álag. Verð: 29.900 kr. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
Fislétt Quinny-kerra úr versluninni Fífu.
Bremsur á báðum afturhjólum og hægt er
að smella maxi-cosi barnabílstól á kerruna.
Verð: 35.000 kr.
Baby Sam hlaupakerra. Handbremsa fyrir
framhjólið og öryggistaumur úr kerrunni
sem sá sem hleypur getur haldið í. Góður
öryggisbúnaður. Verð: 13.990.
Sportleg hlaupakerra úr Baby Sam. Gróf
dekk og mjúkt sæti fyrir barnið. Verð:
16.990 kr.
Hlaupakerrur verða sífellt vinsælli tæki. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
Jogger Baby USA hlaupakerra frá Baby Sam
með stórum og stöðugum dekkjum. Kerran
er á sérstöku tilboði á 9.990 kr.
Sund er ákaflega góð íþrótt sem
allir geta tileinkað sér. Sundið
styrkir hjartað, eykur þol og þjálf-
ar vöðvana og er því tilvalin leið
til þess að koma sér í form. Það er
auðvelt að hreyfa sig í vatninu og
allar hreyfingar verða mjúkar. Þess
vegna hentar sundið einstaklega
vel fyrir þá sem eiga við meiðsli að
stríða eða eru viðkvæmir í liðum og
þola því illa að hlaupa eða ganga.
Öllum börnum er kennt að synda
á unga aldri en margir týna sund-
tökunum niður þegar kemur á full-
orðinsár. Undanfarin misseri hafa
sundnámskeið fyrir fullorðna verið
vinsæl enda vilja margir bæta færni
sína í sundinu til þess að geta synt
sér til heilsubótar og ánægju.
Í sumar verða fjölmörg sundnám-
skeið í boði. Brynjólfur Björnsson
sundkennari hefur kennt fullorðn-
um sund undanfarin misseri og í
sumar verður hann með námskeið
í Árbæjarlaug og Laugardalslaug.
Þá stendur einnig til að halda nám-
skeið fyrir ósynda og vatnshrædda
og er Brynjólfur þegar farinn að
skrá á slík námskeið í síma 699
2998. Birna Guðmundsdóttir kennir
skriðsund fyrir fullorðna í Sundlaug
Garðabæjar og í Hafnarfirði ætlar
Sundfélag Hafnarfjarðar einnig að
standa fyrir sundnámskeiðum. Á
Akureyri hefur Ingibjörg Isaksen
kennt fullorðnum sund við góðan
orðstír og í sumar verða slík náms-
ekið einnig í boði.
Syntu inn í sumarið
Víða verður boðið upp á sundnámskeið fyrir fullorðna í
sumar, meðal annars fyrir ósynda og vatnshrædda.
Sund er góð hreyfing fyrir alla. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
Aldur skiptir ekki öllu máli þegar
kemur að hjarta- og æðasjúkdóm-
um. Þeir sem eru ungir að aldri og
stunda enga líkamsrækt geta jafn-
vel haft viðkvæmara hjarta en þeir
sem eru mun eldri en í góðu formi.
Regluleg hreyfing styrkir hjartað,
heldur blóðrásinni góðri og minnk-
ar líkur á ýmsum áföllum. Þá getur
einnig verið gott að skoða stöðuna
reglulega, til dæmis með því að láta
athuga blóðþrýstinginn og mæla
kólesterólmagnið í blóðinu. Ef allt
er eins og það á að vera er hægt að
halda blóðráðsinni góðri og hjart-
anu heilbrigðu með því að...
...REYKJA EKKI
...BORÐA FITULÍTINN MAT OG
FIMM SKAMMTA AF ÁVÖXTUM
OG GRÆNMETI Á HVERJUM
DEGI
...HALDA SÉR Í
KJÖRÞYNGD
...STUNDA
REGLULEGA
LÍKAMSRÆKT
...FORÐAST
STRESS OG
ÁLAG
Hjarta og æðakerfi
Tveir eða þrír bollar af kaffi á dag
geta dregið úr líkum á Alzheimer-
sjúkdómi. Rannsóknir hafa sýnt
að heilmikið er af virkum efnum
í kaffibaunum sem eru góð heils-
unni. Einnig getur kaffi bætt árang-
ur í líkamsrækt ef það er drukkið
rétt fyrir æfingu, en það virkar þó
aðeins sé það gert stöku sinnum.
Of mikið af kaffi hefur hins vegar
slæm áhrif á heilsuna og virðist því
gullni meðalvegurinn vera tveir til
þrír bollar á dag.
Kaffi
■■■■ { heilsa og útivist } ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI